Auglýsing

Vinur minn vék sér upp að mér fyrir nokkru og sagði: „Gunn­ar, ég ætla að flytja. Líf mitt gengur bara ekki nógu vel í þess­ari íbúð. Ég þarf að breyta til.“ Mað­ur­inn flutti milli póst­núm­era og um stund leið honum bet­ur, en áður en langt um leið var hann engu sælli á nýja staðn­um. Vand­inn var auð­vitað sá að honum leið ekki vel sama hvar hann var. Vand­inn var að hann átti óupp­gerðar sakir við for­tíð­ina sem hann lagði ekki í að takast á við. Svo flutti hann auð­vitað aftur með sama árangri.

Ég er auð­vitað engu skárri. Ég vil stundum kenna öðru um. Ég skelli skuld­inni á for­eldra mína fyrir að hafa gert mér að læra á trompet en ekki sax­ó­fón. Þá væri ég örugg­lega hluti af Mánu­djass­geng­inu á Húrra - þess í stað næ ég ekki fram einum tón úr trompet­inu þótt líf mitt lægi við. Fót­bolta­fer­ill­inn varð að engu því ég fékk ekki nógan stuðn­ing þegar hið sanna er auð­vitað að ég lagði mig ekki nógu mikið fram.

Við Íslend­ingar erum ekki svo ólík ónafn­greinda vini mín­um. Við viljum oft frekar takst á við vanda­mál með því að breyta ytri aðstæðum frekar en að horfa á vand­ann sjálf­an. Þetta birt­ist sjaldan betur en kringum kosn­ing­ar. Að vísu ekki for­seta­kosn­ing­ar, þó svo þær virð­ist aðal­lega snú­ast um for­tíð­ina, heldur þing­kosn­ing­ar, sveita­stjórn­ar­kosn­ingar og kosn­ingar innan stjórn­mála­flokka.

Auglýsing

Lausnin er yfir­leitt nýtt fólk. Út með það gamla og inn með það nýja. Vanda­málin virð­ast samt sem áður bara hrann­ast upp. Þessi sömu leið­ar­stef halda enda­laust áfram - verð­trygg­ing, hús­næð­is­vandi, kvóta­kerf­ið, heil­brigð­is­mál og svona mætti lengi telja. Kyn­slóð eftir kyn­slóð, kosn­ingar eftir kosn­ingar þá virð­ist fátt breyt­ast nema and­lit­in.

Og við getum engum kennt um nema okkur sjálf­um. Við getum ekki búist við betri stétt stjórn­mála­manna en þeirri sem við erum til­búin að velja. Fjögur ár kunna að hljóma eins og langur tími en í sögu þjóðar eru þau sand­korn. Í réttu sam­hengi þá eru það sjaldn­ast stóru málin sem raun­veru­lega hafa áhrif á hvern við veljum til að halda um taumana. Á sama tíma og ríkið greiðir niður skuldir á met­hraða, sem er jákvætt, þá er mann­fjölda­þróun að sliga heil­brigð­is­kerfið því hjúkr­un­ar­heim­ili geta ekki lengur hýst allt það fólk sem þarf á þjón­ustu þeirra að halda. Hvor­ugt þess­ara er lík­legt til að hafa áhrif á hvernig nema örfáir kjósa en hvort tveggja mun hafa mikil áhrif á hvenig Ísland verður á næstu ára­tug­um.

Þangað til þetta rennur almenni­lega upp fyrir okkur verðum við áfram ónefndi vinur minn sem flytur til að kom­ast burt frá vand­an­um. Við getum leyft okkur að vona að í þetta skipti verði öll lof­orðin efnd og allt verði eins og það á að vera hratt, örugg­lega og sárs­auka­laust. Þá væru hins vegar allar líkur á að við þurfum að flytja aftur eftir fjögur ár. Það sem þarf eru hund­leið­in­legar lang­tíma­á­ætl­anir sem staðið er við um hvernig á að leysa flókin og erfið vanda­mál sem við vitum að muni þurfa að takast á við á næstu árum. Ég bíð í alvör­unni spenntur eftir flokknum sem kemur með raun­hæfar hug­myndir að lausnum á flóknum vanda­mál­um, ekki bara fal­legar myndir af fram­bjóð­endum og þunna súpu af mis­við­eig­andi suð­orð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiSleggjan
None