Þau verkefni sem Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, vann fyrir Orku Energy, voru öll erlendis. Hann kom ekki að kaupum félagsins á Enex-Kína af Orkuveitu Reykjavíkur og Geysi Green Energy né að kaupum þess á Iceland America Energy og fjórðungshlut Orkuveitu Reykjavíkur í Envent Holding af Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2011. Þetta kemur fram í svari aðstoðarmanns Illuga við fyrirspurn Kjarnans um vinnu ráðherrans fyrir Orku Energy.
Á meðal þess sem spurt var um í fyrirspurninni var hvað Illugi fékk greitt fyrir störf sín fyrir félagið. Í svari Sigríður Hallgrímsdóttur, aðstoðarmanns Illuga, er þeirri spurningu ekki svarað en sagt að hægt sé að skoða „tekjur þingmanna og margra annarra í opinberum gögnum“.
Fyrirspurn Kjarnans var send 29. apríl síðastliðinn og svar barst við henni í dag, 12. maí, eftir ítrekanir eftir svörum. Fyrirspurnin var í formi fimm spurninga um aðkomu Illuga að viðskiptum Orku Energy og fjárhagslega hagsmuni hans af störfum fyrir félagið.
Starfaði sem ráðgjafi
Illugi starfaði sem ráðgjafi hjá Orku Energy á árinu 2011 á meðan að hann var í leyfi frá þingstörfum vegna rannsóknar á starfsemi peningamarkaðssjóðsins Sjóðs 9 hjá Glitni, en Illugi sat í stjórn sjóðsins fyrir hrun.
Eftir að Illugi varð mennta- og menningarmálaráðherra eftir kosningarnar vorið 2013 hefur hann verið viðstaddur viðburði þar sem Orka Energy á viðskiptalega hagsmuni undir. Í desember 2013 var hann viðstaddur þegar Orka Energy skrifaði undir samstarfssamning við kínverska héraðið Xianyang og Sinopec Star Petroleum um þróun á jarðvarmanýtingu og frekari útþennslu á hitunarkerfum í Xianyang. Undirritun samningsins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy undirritaði Haukur Harðarson, stjórnarformaður félagsins, samkomulagið.
. Í desember 2013 var Illugi Gunnarsson, mennta- og menningamálaráðherra, viðstaddur þegar Orka Energy skrifaði undir samstarfssamning við kínverska héraðið Xianyang og Sinopec Star Petroleum um þróun á jarðvarmanýtingu og frekari útþennslu á hitunarkerfum í Xianyang. Undirritun samningsins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy undirritaði Haukur Harðarson, stjórnarformaður félagsins, samkomulagið. Mynd: Orkaenergy.com
Illugi heimsótti svo Kína í lok mars síðastliðins. Á meðal þeirra sem voru með í för í þessari ferð ráðherrans til Kína voru fimm fulltrúar Orka Energy. Einn þeirra var Haukur Harðarson, stjórnarformaður Orku Energy. Á öðrum degi heimsóknar sinnar, þann 22. mars, kynnti hann sér jarðvarmaverkefni í Xionxian héraði, sem unnin eru af SGEG, sem Orka Energy China á 49 prósent hlut í.
Þann 25. mars hitti Illugi Fu Chengyu, stjórnarformann Sinopec. Samkvæmt dagskrá ferðar ráðherrans, sem Hringbraut hefur birt opinberlega, tóku fimm aðilar utan Illuga þátt í fundinum með Fu Chengyu. Þrír þeirra voru íslenskir embættismenn. Hinir tveir voru frá Orku Energy. Annar þeirra var Haukur Harðarson.
"Nokkur fjárhagsleg áföll"
Eftir Kínaferðina hófu fjölmiðlar að spyrjast fyrir um tengsl Illuga við Orku Energy. Hann skýrði loks frá því í hádegisfréttum RÚV 26. apríl síðastliðinn að hann hefði selt íbúð sína í Vesturbæ Reykjavíkur til Hauks Harðarsonar. Þá voru liðnir 20 dagar frá því að hann var fyrst spurður um tengsl sín við félagið af fjölmiðlum. Hann setti síðan stöðuuppfærslu inn á Facebook daginn eftir þar sem kom fram að hann hefði selt íbúðina fyrir 53,5 milljónir króna árið 2013 og að hann leigi hana nú til baka af Hauki á 230 þúsund krónur á mánuði. Illugi var því orðinn ráðherra þegar hann seldi íbúðina. Ástæðan hafi verið „nokkur fjárhagsleg áföll“ sem á hann og eiginkonu hans dundu fyrir nokkrum árum.
Kjarninn greindi frá því sama dag að eitt þessarra áfalla hafi verið gjaldþrot Sero ehf., félags sem Illugi hafi átt hlut í og varð gjaldþrota í nóvember 2012. Ekkert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú félagsins.
Illugi hefur sagt að hann hafi sýnt frumkvæði af því að upplýsa um þessi tengsl sín við Hauk. Stundin hefur hins vegar sagt frá því að fjölmiðillinn hefði árangurslaust reynt að fá svör frá Illuga um tengsl hans og Orku Energy, meðal annars vegna þess að Haukur Harðarson hefði keypt íbúð Illuga samkvæmt afsali frá 23. júní 2014, áður en hann skýrði frá kaupunum í hádegisfréttum RÚV.
Hvað er Orka Energy?
Orka Energy var stofnað snemma árs 2011. Stærsti eigandi félagsins er Orka Energy Pte Ltd, félag með skráð heimilsfesti í Singapúr. Kjölfestufjárfestir í því félagi er Haukur Harðarsson.
Nokkrum mánuðum eftir að Orka Energy var stofnað komst félagið í fréttir á Íslandi þegar það keypti Enex-Kína af fyrrverandi eigendum þess, Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Geysi Green Energy. Illugi Gunnarsson, núverandi mennta- og menningarmálaráðherra, vann ráðgjafastörf fyrir Orku Energy á árinu 2011.
Kaupverðið var ekki gefið upp en það var 1,6 milljarðar króna miðað við það verð sem Orkuveita Reykjavíkur fékk fyrir tæplega fimmtungshlut sinn. Orka Energy lét ekki staðar numið þar heldur keypti líka aðrar eignir sem höfðu verið inni í Reykjavik Energy Invest, hinum fræga útrásararmi Orkuveitunnar. Eignirnar sem um er að ræða voru Iceland America Energy og fjórðungshlutur í Envent Holding, sem átti jarðvarmafyrirtæki á Filippseyjum.
Illugi er ekki eini ráðherrann sem hefur verið viðstaddur undirritanir hjá Orku Energy. Hann er hins vegar eini ráðherrann sem hefur þegið greiðslu frá félaginu á einhverjum tímapunkti.
Kaupverðið var ekki gefið upp en það var 1,6 milljarðar króna miðað við það verð sem Orkuveita Reykjavíkur fékk fyrir tæplega fimmtungshlut sinn. Orka Energy lét ekki staðar numið þar heldur keypti líka aðrar eignir sem höfðu verið inni í Reykjavik Energy Invest, hinum fræga útrásararmi Orkuveitunnar. Eignirnar sem um er að ræða voru Iceland America Energy og fjórðungshlutur í Envent Holding, sem átti jarðvarmafyrirtæki á Filippseyjum.
Salan á Enex-Kína og Envent Holding varð að miklu pólitísku þrætuepli vorið 2012, enda var hlutur Orkuveitu Reykjavíkur í félögunum seldur án auglýsingar. Vegna umfjöllunar um söluna sendi Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að Orkuveitan hafi átt engra annarra kosta völ en að selja hluti sína. Ástæðan var samkomulag REI við Geysir Green Energy frá marsmánuði árið 2010 þar sem félögin skuldbundu sig gagnvart hvort öðru til að taka þátt söluferli félaganna þegar og ef annar aðila krefðist þess. „Af þessu samkomulagi leiddi að stjórn og stjórnendur REI stóðu frammi fyrir því vali í júní 2011 að gera annað tveggja; selja hlut sinn í Enex-Kína og Envent til Orku Energy (OE) sem GGE hafði samþykkt ellegar kaupa hlut GGE. Sem sagt fá 3-400 milljónir í kassann eða leggja út 1.800 milljónir. Allar aðstæður í rekstri REI og ekki síður OR voru með þeim hætti að valið varð næsta einfalt,“ segir í yfirlýsingu Haraldar Flosa.
Í samstarfi með stærsta fyrirtæki Kína
Nafni Enex-Kína var síðar breytt í Orka Energy China ehf. Félagið á, samkvæmt síðasta birta ársreikningi, 49 prósent hlut í kínversku félagi sem heitir Shaanxi Green Energy Geothermal Development (SGEG), sem vinnur að þróun og rekstri jarðvarmaorkuvera í Kína. Sá hluti SGEG sem er ekki í eigu Orku Energy China, alls 51 prósent hlutur, er í eigu kínverska orkufyrirtækisins Sinopec, stærsta fyrirtækis Kína og þriðja stærsta fyrirtækis í heimi. Tekjur Sinopec á árinu 2014 voru, samkvæmt lista Fortune Global 500, 457 milljarðar dala og hagnaður fyrirtæðisins tæplega níu milljarðar dala, eða rúmlega 1.200 milljarðar króna. Einungis Walmart og Royal Dutch Shell voru stærri í heiminum.
Hjá SGEG vinna á vel á þriðja hundrað manns og stefna félagsins er að hita upp 100 milljón fermetra af íbúðar- og atvinnuhúsnæði fyrir árið 2020 auk þess sem það hyggur á stórtæka rafmagnsframleiðslu. Fyrirtækið átti eignir upp á 17,3 milljarða króna í lok árs 2013 og eigið fé þess í lok þess árs var 8,8 milljarðar króna.
Markaðurinn, fylgiblað Fréttablaðsins um efnahagsmál og viðskipti, greindi frá því í nóvember 2012 að Richard Chandler Corporation (RCC) hefði keypt 33 prósenta hlt í móðurfélagi Orku Energy Holding. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskráar greiddi RCC tólf milljónir dala, um 1,6 milljarð króna, fyrir hlutinn. RCC, sem er staðsett Singapore, var stofnað af Richard F. Chandler, nýsjálenskum fjárfesti. Sá er vægast sagt vellauðgur, en eignir hans eru metnar á um 390 milljarða króna.