Tchenguiz sótti um leyfi til að áfrýja - Gæti tafið gerð nauðasamnings Kaupþings um tvö ár

000-DV1177607-1.jpg
Auglýsing

Vincent Tchengu­iz, bresk-íranskur fjár­festir sem höfðað hefur mál gegn slita­búi Kaup­þings, sótti á föstu­dag um heim­ild hjá áfrýj­un­ar­dóm­stóli í Bret­landi til að áfrýja skaða­bóta­kröfu sinni gegn búinu. Þetta hefur Kjarn­inn fengið stað­fest hjá ráð­gjöfum Tchengu­iz. Sam­þykki dóm­ari að leyfa Tchenguiz að áfrýja gæti það sett nauða­samn­ing Kaup­þings í algjört upp­nám og tafið slit bús­ins um allt að tvö ár. Það myndi þýða að nauða­samn­ingur muni ekki geta klár­ast fyrir ára­mót og því legg­ist 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á eignir þess, sam­kvæmt áætlun stjórn­valda um losun hafta sem kynnt var í byrjun júní.

Kaup­þing hefur þegar samið við íslensk stjórn­völd um að mæta þeim stöð­ug­leika­skil­yrðum sem sett voru fram í áætlun þeirra um losun hafta. Til­lögur að því sam­komu­lagi voru lagðar fram áður en að  áætl­unin var kynnt með látum í Hörpu í byrjun júní. Sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans, sem sér­fræð­ingar hafa farið yfir, fela þeir samn­ingar í sér að Kaup­þing greiði íslenska rík­inu ríf­lega 100 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag, miðað við að sölu­and­virði Arion banka sé 80 pró­sent af bók­færðu virði eigin fjár hans í dag.

Bók­fært virði eigna Kaup­þings í lok árs 2014 var hins vegar 799,9 millj­arðar króna. Ef 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á þær allar þá myndi hann skila íslenska rík­inu yfir 300 millj­örðum króna.

Auglýsing

Kjarn­inn leit­aði eftir við­brögðum frá slita­stjórn Kaup­þings vegna mögu­legrar áfrýj­unar Tchenguiz fyrir helgi og hvort mála­rekst­ur­inn setji nauða­samn­ing bús­ins í upp­nám. Svar hennar var ein­falt: „Slita­stjórn Kaup­þings hyggst ekki tjá sig um þetta“.

Tilkynnt var um aðgerðaráætlun stjórnvalda við losun hafta í byrjun júní síðastliðinn. Kynning á aðgerðunum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsendingu. Til­kynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynn­ing á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ing­u.

 

Vill fá 460 millj­arða króna



Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, Kaup­þingi og Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni, sem situr í  slita­stjórn bús­ins, fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 millj­arða punda, um 460 millj­arða króna, í bætur vegna þessa.

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchengu­iz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaup­þing hefði ella ekki ­getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchengu­iz. Hann telur að með þessu hafi Kaup­þing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðsl­um, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

Engin efn­is­leg nið­ur­staða liggur fyrir



Í lok júní hafn­aði breskur und­ir­dóm­stól ­mála­til­bún­aði Jóhann­esar Rún­ars um að þar­lendir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu í mál­inu gegn hon­um. Jóhannes Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem ein­ungis íslenskir dóm­stólar hefðu lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús Kaup­þings, en af því verður ekki. Kjarn­inn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum hjá slita­búi Kaup­þings um hver það er sem greiðir fyrir málsvörn Jóhann­esar Rún­ars í mál­inu en það hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um það.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson situr í slitastjórn Kaupþings. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Kjarn­inn hefur dóm­inn undir höndum og það er vert að taka fram að í honum er ekki tekin nein efn­is­leg afstaða til efn­is­at­riða máls­ins heldur ein­ungis hvort dóm­stóll­inn hafi lög­sögu yfir þeim sem stefnt var. Þetta var sér­stak­lega tekið fram í nið­ur­stöðu dóm­ar­ans.

Dóm­stóll­inn taldi málið hins vegar varða atburði sem áttu sér stað á breskri grundu og því verði þeir teknir fyrir af bresku rétt­ar­kerfi. Hins vegar var við­ur­kennt að breskir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu yfir slita­búi Kaup­þings enda geri íslensk gjald­þrota­lög ráð fyrir því að íslenskir dóm­stólar hafi einir lög­sögu yfir þeim. Þeirri ákvörðun gat Tchenguiz mögu­lega áfrýj­að.

Stór hluti eigna bús­ins gæti endað hjá Tchenguiz vinni hann málið



Tchenguiz sótti um leyfi til að gera nákvæm­lega það, að áfrýja mál­inu, á föstu­dag. Dóm­ari mun nú þurfa að taka ákvörðun um hvort Tchenguiz fái að gera það. Ef það leyfi fæst, og málið fer aftur fyrir dóm­stóla, áætla ráð­gjafar Tchenguiz að mála­rekst­ur­inn geti tekið allt að tvö ár. Og að slit Kaup­þings tefj­ist um þann tíma.

Ástæðan er ein­fald­lega sú að eignir slita­bús Kaup­þings voru um síð­ustu ára­mót, líkt og áður sagði, um 800 millj­arðar króna. Ef krafa Tchengu­iz, sem er upp á 460 millj­arða króna, helst lif­andi er ljóst að stór hluti eigna bús­ins verði bund­inn vegna henn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None