Ljóðin féllu eins og hvítar fjaðrir af himnum ofan

Ólöf Sverrisdóttir leikkona ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi og við það fóru ljóðin að koma til hennar í svefnrofanum á morgnana. Afraksturinn ber heitið „Hvítar fjaðrir“ og safnað er fyrir útgáfu ljóðabókarinnar á Karolina fund.

Ólöf Sverrisdóttir ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi í eitt ár. Úr varð ljóðabókin Hvítar fjaðrir.
Ólöf Sverrisdóttir ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi í eitt ár. Úr varð ljóðabókin Hvítar fjaðrir.
Auglýsing

Leik­konan Ólöf Sverr­is­dóttir hefur starfað sem sögu­kona um ára­bil hjá Borg­ar­bóka­safni Reykja­vík­ur. Hún hefur kennt leik­list í ára­tugi, bæði börnum og full­orðnum en hún og Ólafur Guð­munds­son reka leik­list­ar­skól­ann Opnar dyr.

Ólöf hefur nýverið lokið meistara­gráðu í rit­list frá Háskóla Íslands en hefur líka sjálf kennt rit­list hjá End­ur­menntun HÍ. Hún er nú að gefa út sína fyrstu ljóða­bók en áður hefur hún gefið út barna­sög­una Sóla og sól­in.

En Ólöf hefur skrifað ljóð lengi. „Eig­in­lega síðan ég lærði að lesa og skrifa. Með hléum sam­t,“ segir hún. „En þessi ljóð komu til mín aðeins öðru­vísi. Ég tók ákvörðun að skrifa ljóð á hverjum degi en ég heyrði við­tal við aðra skáld­konu sem hafði gert það í eitt ár. Þegar ég hafði ákveðið það fóru þau að koma til mín í svefn­rof­anum á morgn­ana. Síðan ákvað ég að pósta ljóð­unum á Face­book-­prófíl­inn minn áður en ég næði að hugsa of mikið og fara að efast um að þau væru nógu góð.“

Auglýsing
Ólöf við­ur­kennir þó að hún hafi stundum breytt þeim aðeins seinna um dag­inn. Alla­vega leið­rétt staf­setn­inga- og mál­fræði­villur ef hún hafi séð slíkt. „Það kom líka fyrir að ferlið héldi áfram í heita pott­inum og ég bætti ein­hverju við þegar ég hafði tíma.“

Það kom Ólöfu á óvart hversu margir urðu hrifnir af ljóð­unum og hún var hvött til þess að gefa þau út. „Mér fannst stundum eins og þau væru frekar eins og skila­boð af annarri vídd sem ég setti í ljóða­form. Stundum birt­ust myndir eða mig dreyndi eitt­hvað sem ég setti í orð eða ljóða­form. Alla­vega er ég mjög glöð að aðrir kunnu að meta þennan texta og mér fannst nauð­syn­legt að gefa þau út áður en ég héldi áfram. Ég veit ekki hvort næstu ljóð verði í þessum stíl og fannst ég verða að loka þessum kafla með þess­ari bók.“

Las Svartar fjaðrir upp til agna sem ung­lingur

Nafnið á ljóða­bók­inni kom út frá nokkrum ljóðum þar sem hvítar fjaðrir koma fyr­ir. „En í raun­inni fannst mér hug­mynd­irnar koma eins og fjaðrir að ofan,“ segir Ólöf.

„Ég tala um mun­inn á svörtum og hvítum fjöðrum en þar er ég líka að vitna í ljóða­bók Dav­íðs Stef­áns­sonar Svartar fjaðrir en þau ljóð las ég upp til agna sem barn og ung­ling­ur. Þessi ljóð eru mjög ólík þeim og ég gæti auð­vitað aldrei farið að bera mín ljóð saman við þá snilld. En nafnið eða tit­ill­inn lét mig ekki í friði svo ég lét und­an. Stundum er eins og maður fái ekki alveg að stjórna flæð­inu. Flæðið tekur yfir. Þess vegna veit ég eig­in­lega ekk­ert hvað kemur næst,“ segir Ólöf.

Hún seg­ist vona að ein­hverjir vilji hjálpa sér að mæta kostn­aði við útgáf­una en hún kemur líka heim til fólks og les upp eða sendir Sólu sögu­konu til að segja sögur ef fólk velur það.

„Börnin elska Sólu og það er ágætis díll sem boðið er uppá hérna á Kar­ól­ina fund.“

Hér má nálg­ast söfnun fyrir útgáfu Hvítra fjaðra á Karol­ina fund.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk