Ákvarðanir meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar aftur dæmdar ólöglegar

vestmannaeyjar.jpg
Auglýsing

Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands ógilti með dómi sem féll í gær tvær á­kvarð­anir meiri­hluta hlut­hafa í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyj­um, sem er á meðal fimm stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, um sam­runa ­út­gerð­ar­fé­lags­ins Ufsa­bergs við hana og ákvörðun um að auka hluta­fé Vinnslu­stöðv­ar­inn­ar. Ákvarð­an­irnar voru teknar þann 8. októ­ber 2014 og vor­u ­eig­endur Stillu, sem á minni­hluta í Vinnslu­stöð­inni, á því að við­skiptin sem þær snér­ust um myndu valda Vinnslu­stöð­inni tjón­i. 

Eig­end­urn­ir, bræð­urnir Guð­mundur (kennd­ur við Brim) og Hjálmar Krist­jáns­syn­ir, töldu að Vinnslu­stöðin væri allt of lág­t ­metin í við­skipt­unum og að ákvarð­an­irnar hafi ekki verið teknar með hags­mun­i ­fyr­ir­tæk­is­ins í huga. Þetta er í annað sinn sem dóm­stólar fjalla um sam­runa ­fyr­ir­tækj­anna en árið 2013 ógilti Hæsti­réttur Íslands sam­ein­ingu félag­anna.

Ára­langar deilur

Auglýsing

Stilla á ríf­lega 30 pró­sent hlut í Vinnslu­stöð­inni og hafa átök staðið yfir á milli þeirra og hóp Vest­manna­ey­inga, sem á tæp­lega 70 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, í ára­ráð­ir. Vinnslu­stöðin keypti upp­haf­lega hluti í Ufsa­bergi á ár­unum 2008 og 2011 gegn vilja Stillu sem fór með málið fyrir dóm­stóla. Í mar­s 2013 ógilti Hæsti­réttur sam­runa félag­anna. Í kjöl­farið var ný sam­runa­á­ætl­un ­sam­þykkt á hlut­hafa­fundi 8. októ­ber 2014, sem Stillu-bræður sættu sig ekki við. Þeir fóru því á ný með málið fyrir dóm­stóla og unnu það mál í gær í hér­aði.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Stilla hefur sent frá sér vegna ­dóms­ins kemur fram að hér­aðs­dómur Suð­ur­lands hafi nú ógilt sam­run­ann með söm­u rökum og Hæsti­réttur gerði árið 2013. „Full­trúar Stillu töldu nauð­syn­legt að fá svar dóm­stóla við því hvort meiri­hluti hlut­hafa og stjórnar Vinnslu­stöðv­ar­inn­ar væru að brjóta á rétti minni­hlut­ans. Nú liggur fyrir stað­fest­ing tveggja dóms­stiga á því að svo hafi ver­ið,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Vilja að ráðu­neytið skipi rann­sókn­ar­menn

Í henni kemur einnig fram að í fram­haldi af aðal­fund­i Vinnslu­stöð­ar­innar í júní síð­ast­liðnum hafi Stilla óskað eftir því við Atvinn­u- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­ið, „með vísan í þau rétt­indi sem minni­hluta hlut­hafa eru ­tryggð í hluta­fé­laga­lög­um, að ráð­herra skipi rann­sókn­ar­menn til þess að skoða við­skipti meiri­hluta hlut­hafa Vinnslu­stöðv­ar­innar og eig­enda Ufsa­bergs ­út­gerð­ar. Nú er þeirrar nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins beð­ið“.

Stilla útgerð hefur einnig óskað eftir því að Árs­reik­inga­skrá fram­leng­i úr­skurð sinn um að skipa auka end­ur­skoð­endur til að vinna með kjörn­um end­ur­skoð­endum í félag­inu m.a. vegna þess­ara við­skipta. „Árs­reikn­inga­skrá hef­ur á síð­ustu tveimur árum fall­ist á þessi sjón­ar­mið og er nú beðið nið­ur­stöðu um á­fram­hald­andi skipan auka end­ur­skoð­anda fyrir Vinnslu­stöð­ina“. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None