Forstjóri Borgunar segir ömurlegt að vera þjófkenndur

Borgun
Auglýsing

Haukur Odds­son, for­stjóri Borg­un­ar, segir það ömur­leg­t að hafa verið þjóf­kenndur vegna sölu á hlut Lands­bank­ans í Borg­un. Hann telur Stein­þór Páls­son, banka­stjóra Lands­bank­ans, hafa í nokkru til­liti far­ið fram úr sér í sam­tölum við fjöl­miðla um málið og látið falla orð sem mögu­leg­t sé að túlka á þann veg að Haukur hafi svikið fé út úr bank­an­um. Haukur seg­ir enn­fremur að vöxtur Borg­unar sé eftir áætl­unum og hafi ekki átt að koma nein­um á óvart. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta stóra við­tal­inu sem Hauk­ur veitir eftir að Borg­un­ar­málið komst aftur á dag­skrá í byrjun árs, og birt er í Við­skipta­Mogg­anum í morg­un.

Þegar Eign­ar­halds­fé­lagið Borg­un, í eigu stjórn­enda ­Borg­unar og með­fjár­festa þeirra, keypti 31,2 pró­sent hlut rík­is­ins í Borgun var ­fyr­ir­tækið metið á sjö millj­arða króna. Í nýlegu mati sem KPMG fram­kvæmdi er virði þess metið á 19-26 millj­arða króna.

Auglýsing

Ekki honum að kenna heldur honum að þakka

Í við­tal­inu segir Haukur að það sé „eðli­leg­asti hlut­ur í heimi“ að for­stjóri fjár­festi í því fyr­ir­tæki sem hann starfi hjá. Það sama eigi við um aðra stjórn­endur og starfs­menn og að það sé gert í sam­vinnu við þá að­ila sem eru að koma að fyr­ir­tæk­inu. „Mér var ljóst á þessum tíma að mér bar að greina kaup­endum og selj­endum satt og rétt frá öllu því sem varð­aði félag­ið og það gerði ég að sjálf­sögðu eftir minni bestu vit­und. Þar var ekk­ert dreg­ið und­an. Það er ömur­legt að vera í raun þjóf­kenndur vegna eftir á orð­inna ­at­burða. Ég tel að Íslands­met hafi verið slegið í eft­irá­speki í þessu máli. Því er jafn­vel haldið fram að við hefðum átt að vita hvernig verð­þró­unin á félag­in­u yrði. Árið 2008 var fyr­ir­tækið metið á 500 til 600 millj­ónir króna. Í dag er ­fyr­ir­tækið metið á tutt­ugu og eitt­hvað millj­arða. Það er ekki eitt­hvað sem er mér að kenna, eins og umræðan virð­ist snúast um. Það er hins vegar mér og ­starfs­fólk­inu ásamt stjórn­inni að þakka. Það væri nær að líta þannig á.“

Haukur segir að ráð megi gera fyrir því að hlut­irnir hefð­u litu öðru­vísi út ef hann hefði ekki verið meðal kaup­enda og hann seg­ist hafa skiln­ing á því. „En hvað varðar spurn­ingar um það hvort ég hafi ein­hvern tíma sagt ósatt þá liggur það fyrir í öllum fyr­ir­liggj­andi gögnum að við höfum sagt satt og rétt frá hverjum ein­asta hlut. Það er sannað því það stendur skjal­fest í gögn­um hjá þriðja aðila, KPMG. Okkar fram­ganga var 100% eftir bók­inni að öllu leyt­i.“

Aukið virði átti ekki að koma neinum á óvart

Í við­tal­inu við Við­skipta­Mogg­ann er Haukur spurður af því hvað orsaki þá miklu virð­is­aukn­ingu sem orðið hefur á Borgun á síð­ustu tæpu fimmtán mán­uðum frá því að Lands­bank­inn, sem er í 98 pró­sent í eigu rík­is­ins, ­seldi hlut sinn. Hann segir fyrst og fremst tvær ástæður að baki því. „Í fyrsta lagi það að ávöxt­un­ar­krafa á íslensk hluta­bréf hríð­lækkar á tíma­bil­inu og í öðru lagi það að áætl­anir sem við lögðum upp með hafa gengið eft­ir. Þá get­ur verið að trú á því að við getum risið undir þeim mark­miðum sem við höfum sett ­fyr­ir­tæk­inu hafi áhrif. Rekst­ur­inn hefur gengið vel og áhættan í umhverf­inu er al­mennt minni. Sam­spil þess­ara þátta veldur því að verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins hef­ur hækk­að. Ég spyr hins veg­ar, er þessi verð­mæta­aukn­ing eitt­hvað ó­eðli­leg þegar litið er til þess sem gerst hefur ann­ars stað­ar? Visa Europe hækk­aði úr 3 millj­örðum doll­ara í 25 millj­arða á tveimur árum. Annað dæmi má ­nefna héðan frá Íslandi. Hefur Nýherji ekki fjór­fald­ast í verði á skömmum tíma? Hefur það fyr­ir­tæki hækkað óeðli­lega mik­ið? Svona er þetta ein­fald­lega með­ hluta­bréf. Einnig er rétt minna á að verð­mat er ekki sama og verð, þannig að óvíst er að ein­hver sé til­bú­inn að kaupa hlut í fyr­ir­tæk­inu á því verði sem verð­mat­ið ­gefur vís­bend­ingar um.“

Aðspurður um hvort hið aukna verð­mæti sé þá í takt við þær áætl­anir sem kynntar voru í að­drag­anda þess að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu segir Haukur að ekk­ert sem gerst hafi hjá Borgun sé á skjön við það sem kaup­endur og selj­end­ur ­fengu að sjá í kynn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins. „Vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins hefur gengið eftir áætl­unum og hefur ekki komið mér á óvart og ætti í raun ekki að koma neinum á óvart.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None