Íslenska ríkið reynir að koma í veg fyrir að sérfræðingur verði skipaður

Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn hélt tvö aflandskrónuútboð í sumar á grunni laga sem samþykkt voru fyrr á þessu ári.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn hélt tvö aflandskrónuútboð í sumar á grunni laga sem samþykkt voru fyrr á þessu ári.
Auglýsing

Íslenska ríkið reynir nú að koma í veg fyrir að hér­aðs­dómur Reykja­víkur skipi sér­fræð­inga til að meta hvort ríkið hefði efna­hags­legar for­sendur fyrir því að neita að skipta aflandskrónum tveggja banda­rískra vog­un­ar­sjóða á mark­aðs­gengi í aflandskrón­u­út­boði sem fram fór í júní. Lög­menn stjórn­valda hafa fengið frest til þess að skila inn frek­ari skrif­legum rök­stuðn­ingi fyrir því að það eigi ekki að skipa sér­fræð­inga í mál­inu. Bloomberg greinir frá.

Seðla­­banki Íslands hélt tvö aflandskrón­u­út­­­boð í júní þar sem eig­endum aflandskróna bauðst að skipta þeim yfir í evrur gegn afslætti. Fjöldi banda­rískra sjóða sem eiga slík­ar ákváðu að taka ekki þátt í útboð­unum tveim­­ur, en í því síð­­­ari bauðst bank­inn til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­­­hæð sam­­­þykktra til­­­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­­arðar króna og hækk­­­aði ein­ungis um fimm millj­­­arða króna milli útboða. Alls voru 188 millj­­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­­ar­um­­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­­arðar króna.

Tveir sjóð­ir, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­tal LP, sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­­lausa reikn­inga í refs­ing­­­ar­­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­­­bank­inn bauð þeim, og var umtals­vert undir mark­aðs­gengi. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­­­manni sínum að kanna grund­­­völl fyrir mög­u­­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­­setn­ingar sem sam­­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­­ar­­­upp­­­­­töku og brot á jafn­­­ræð­is­­­reglu. Fyrsta skrefið í þeirri við­leitni var að fara fram á það við hér­aðs­dóm Reykja­víkur að sér­fræð­ingar verði skip­aðir til að fara yfir lög­mæti þeirra aðgerða sem fram­kvæmdar voru gegn aflandskrónu­eig­endum með lögum sem sam­þykkt voru fyrr á þessu ári. 

Auglýsing

Á Bloomberg er rætt við Guð­rúnu Þor­leifs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra efna­hags­mála og fjár­mála­mark­aðar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hún segir að stjórn­völd séu að verja sig með sama hætti í mál­inu og þau geri í öðr­um. Það sé þó óvenju­legt, ef ekki for­dæma­laust, að stefn­andi fari fram á að dóm­stólar skipi sér­fræð­inga til að sinna því hlut­verki sem sjóð­irnir vilja að þeir sinni. Mót­mæli stjórn­valda snú­ast um að sjóð­irnir tveir séu að fara fram á að vald sér­fræð­ing­anna til að kom­ast að nið­ur­stöðu verði of umfangs­mik­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None