Laun Birnu lækka um 40 prósent

Ríkið á Íslandsbanka að fullu og því eru laun bankastjóra undir kjararáði.

Birna Einarsdóttir
Auglýsing

Kjara­ráð hefur í fyrsta skipti síðan ríkið eign­að­ist Íslands­banka úrskurðað um laun banka­stjóra bank­ans, Birnu Ein­ars­dótt­ur, og lækka þau um 40 pró­sent en sam­kvæmt árs­reikn­ingi Íslands­banka voru þau um 3,6 millj­ón­ir.



Sam­kvæmt
úrskurði ráðs­ins, verða laun hennar rúmar tvær millj­ónir með yfir­vinnu og álagi sem fylgir starf­inu, en í ákvörð­un­ar­orðum sínum er vitnað til inn­byrðis sam­ræmis sem þurfi að vera fyrir hendi þegar laun sem kjara­ráð ákvarðar eru ann­ars vegar og vitnað meðal ann­ars til launa banka­stjóra Lands­banka Íslands í því sam­heng­i. 

Mögu­lega munu laun Birnu taka aftur breyt­ingum þann 1. júlí næst­kom­andi. Þá taka gildi ný lög um kjara­ráð. Sam­kvæmt þeim flyst ákvörð­un­ar­vald um laun banka­stjór­ans aftur frá kjara­ráði til stjórnar bank­ans.

Í úrskurði Kjara­ráðs kemur fram, að Birna hafi sent bréf  9. sept­em­ber 2016 í fyrra, þar sem hún fjall­aði um störf sín fyrir Íslands­banka. „Í bréf­in­u kemur fram að Íslands­banki og banka­stjór­inn hafi hlotið fjöl­mörg verð­laun á síð­ustu árum ­fyrir fram­úr­skar­andi stjórn­un, rekst­ur, þjón­ustu og mannauðs­mál. Í fjögur ár í röð hafi Ís­lands­banki verið val­inn besti bank­inn á Íslandi af alþjóð­lega fjár­mála­tíma­rit­inu Euromo­n­ey. Í nið­ur­stöðu dóm­nefndar hafi verið horft til góðs árang­urs í rekstri bank­ans og stefnu hans al­mennt. Þá hafi einnig verið litið til fram­tíð­ar­sýnar Íslands­banka um að veita best­u ­banka­þjón­ustu á Íslandi og árang­urs bank­ans í nýsköpun með það að mark­miði að ein­falda ­banka­við­skipti. Ánægja við­skipta­vina Íslands­banka hafi mælst mikil og hafi bank­inn hlot­ið hæstu ein­kunn banka í Íslensku ánægju­vog­inni und­an­farin þrjú ár. Þá hafi Íslands­banki hlot­ið Hvatn­ing­ar­verð­laun jafnréttis­mála í ár. Nið­ur­staða dóm­nefndar hafi verið ein­róma og þyk­i ­bank­inn upp­fylla þætti bæði í innra og ytra umhverfi fyr­ir­tæk­is­ins sem stuðli að aukn­u ­jafn­rétti. Verð­launin séu veitt því fyr­ir­tæki sem hafi stuðlað að auknum mögu­leikum beggja kynja til starfs­frama, jöfnum launum kynj­anna í stjórn­enda­stöðum og auk­inni vit­und um þann á­vinn­ing sem jafn­rétti hafi fyrir fyr­ir­tækið og sam­fé­lag­ið,“ segir í úrskurð­in­um. 



Þá er einnig vitnað til bréfs stjórnar Íslands­banka, þar sem Birna er sögð hafa skilað fram­úr­skar­andi störfum fyrir bank­ann, og að hann hafi mik­inn hag að því að geta boðið sam­keppn­is­hæf laun sem séu í takt við mark­að­inn hverju sinn­i. 

Auglýsing

Gagn­kvæm­ur ­upp­sagn­ar­frestur á samn­ingi Birnu er tólf mán­uðir og láti banka­stjóri af störfum að eigin ósk eru settar hömlur á atvinnu­starf­semi hans næstu sex mán­uði, að því er fram kemur í bréfi stjórn­ar­inn­ar.



Kjar­arað rök­styður ákvörðun sína, með eft­ir­far­andi hætti:

„Í 8. gr. laga um kjara­ráð segir að það skuli við úrlausn mála gæta inn­byrðis sam­ræmis í starfs­kjörum þeim sem það ákveð­ur, og að þau séu á hverjum tíma í sam­ræmi við laun í þjóð­fé­lag­inu hjá þeim sem sam­bæri­legir geta talist með til­liti til starfa og ábyrgð­ar. Við á­kvörðun sína skal kjara­ráð gæta þess að föst laun fyrir dag­vinnu, ann­arra en for­seta Íslands­, verði ekki hærri en föst laun for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt 3. gr. Við ákvörðun launa­kjara ­sam­kvæmt 4. gr. lag­anna skuli sér­stak­lega gæta sam­ræmis milli þeirra og þeirra kjara hjá ­rík­inu sem greidd eru á grund­velli kjara­samn­inga ann­ars vegar og ákvarð­ana kjara­ráðs ­sam­kvæmt 3. gr. hins veg­ar. Þá skuli kjara­ráð ætíð taka til­lit til almennrar þró­unar kjara­mála á vinnu­mark­að­i. 

Í 10. gr. lag­anna segir að ráðið skuli taka mál til með­ferðar þegar því þyk­i þurfa og ætíð ef orðið hafa veru­legar breyt­ingar á þeim launum í þjóð­fé­lag­inu sem höfð skulu til við­mið­unar sam­kvæmt lög­unum eða á störfum þeirra sem úrskurð­ar­vald ráðs­ins tekur til­. Kjara­ráð hefur ekki áður ákveðið banka­stjóra Íslands­banka hf. laun. Með vísan til þess inn­byrðis sam­ræmis sem kjara­ráði ber að hafa að leið­ar­ljósi og áður er gerð grein fyrir er við á­kvörðun launa­kjara banka­stjóra Íslands­banka hf. horft til launa­kjara for­stöðu­manna ann­arra fjár­mála- og lána­stofn­ana sem undir kjara­ráð heyra, svo sem banka­stjóra Lands­bank­ans hf. ­Með hlið­sjón af fram­an­sögðu hefur kjara­ráð ákveðið að laun banka­stjóra Íslands­banka hf. skuli vera sem segir í ákvörð­un­ar­orð­i. 

Ákvörð­un­ar­orð 

Mán­að­ar­laun banka­stjóra Íslands­banka hf. skulu vera sam­kvæmt launa­flokki 502-141, nú 1.131.816 krón­ur. Að auki skal greiða honum 100 ein­ingar á mán­uði fyrir alla yfir­vinnu og á­lag er starf­inu fylg­ir. Kjara­ráð 2017.4.003 5 Ein­ing er 1% af launa­flokki 502-136, nú 9.572 krón­ur.

Ein­ingar greið­ast alla mán­uð­i árs­ins, einnig í sum­ar­leyfi. Af því leiðir að ekki er greitt orlofsfé á ein­ing­ar. ­Laun eru miðuð við fullt starf þannig að ekki komi til frek­ari greiðslna nema kjara­ráð úr­skurði um það sér­stak­lega. Um almenn starfs­kjör banka­stjóra Íslands­banka hf. gilda reglur kjara­ráðs um starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra félaga sem eru að meiri­hluta í eigu rík­is­sjóðs og dótt­ur­fé­laga þeirra frá 17. nóv­em­ber 2015.“

Und­ir­rita þau Óskar Bergs­son, Hulda Árna­dóttir og Svan­hildur Kaaber, frá Kjara­ráði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None