Tillaga dómsmálaráðherra samþykkt 31 - 22

Stjórnandstaðan vildi vísa málinu frá og fresta málinu í nokkrar vikur til að fá betri umfjöllun um málið.

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Meiri­hluti Alþingis sam­þykkti til­lögu Sig­ríðar And­er­sen dóms­mála­ráð­herra um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt. Stjórn­ar­and­staðan var öll á móti til­lögu ráð­herra. Þing­menn meiri­hlut­ans, 31, kusu með til­lög­unni en 22 þing­menn stjórn­ar­and­stöðu voru á móti, átta greiddu ekki atkvæði, og tveir voru fjar­ver­andi.

Fyrst var frá­vís­un­ar­til­laga felld, 31 - 30, sem gerði ráð fyrir meiri máls­með­ferð­ar­tíma til­lögu ráð­herra, en svo var til­laga ráð­herra sam­þykkt, 31 - 22. 

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sögðu til­lögu Sig­ríðar vera alveg órök­studda, en sem kunn­ugt er voru gerðar fjórar breyt­ingar á lista hæf­is­nefndar um mat á umsækj­end­um. Stjórn­ar­and­staðan sagði breyt­ing­ar­til­lögu Sig­ríðar órök­studda og að það þyrfti lengri tíma til að fara yfir mál­ið. 

Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, frá Píröt­um, sagði í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar að valið með henni væri skýrt. „Nú kjósum við um gamla Ísland, eða nýja Ísland,“ sagði Birgitta, og horfði til þing­manna í saln­um. Margir þing­manna Pírata stigu í ræðu­stól, og sögðu með þess­ari máls­með­ferð þá væri verið að skapa vantaust á dóms­kerf­in­u. 

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans, þá mat hæf­is­­­nefnd um mat á umsækj­endum í stöðu dóm­­­ara við Lands­rétt Davíð Þór Björg­vins­­­son, Sig­­­urð Tómas Magn­ús­­­son og Ragn­heiði Harð­­­ar­dóttur hæfust.

Sam­­­­kvæmt lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­­­­son hrl., sem hefur talið til­­­lögu dóms­­­mála­ráð­herra lög­­­brot - líkt og Lög­­­­­manna­­­fé­lag Íslands - númer 14 á list­an­­­­um. Einn þeirra sem Sig­ríður Á. And­er­­­­sen, dóms­­­­mála­ráð­herra, gerir til­­­­lögu um að verði á meðal 15 dóm­­­­ara við Lands­rétt er Jón Finn­­­­björns­­­­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar. Þá er Eiríkur Jóns­­­­son númer 7 á lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­­­­lögu um í stöðu dóm­­­­ara.

Ást­ráður Har­alds­­­­son og Eiríkur Jóns­­­­son, ásamt Jóhann­esi Rún­­­­­­­ari Jóhanns­­­­syni og Jóni Hösk­­­­ulds­­­­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­­­­fríður Ein­­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­­son og Jón Finn­­­­björns­­­­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­­­­lögu um í stöðu dóm­­­­ara við Lands­rétt eru Aðal­­­­­­­steinn E. Jón­a­s­­­­son, Arn­fríður Ein­­­­ar­s­dótt­ir, Ás­­­­mundur Helga­­­­son, Dav­­­­íð Þór Björg­vins­­­­son, Her­vör Þor­­­­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­­­­ar­s­dótt­ir, Jóhannes Sig­­­­urðs­­­­son, Jón Finn­­­­björns­­­­son, Krist­­­­björg Steph­­­­en­­­­sen, Oddný Mjöll Arn­­­­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­­­­ar­dótt­ir, Sig­­­­urður Tómas Magn­ús­­­­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­­­son og Þor­­­­geir Ingi Njáls­­­­son.

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, VG, og Brynjar Níels­son, Sjálf­stæð­is­flokki, voru ekki við­stödd atkvæða­greiðsl­una, vegna tengsla við umsækj­endur um starf dóm­ara við Lands­rétt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent