Davíð Þór, Sigurður Tómas og Ragnheiður efst á lista

Samkvæmt mati hæfisnefndar um mat á umsækjendum um starf dómara við Landsrétt var einn þeirra sem ráðherra gerir tillögu um í starfið númer 30 hjá nefndinni.

7DM_0415_raw_2103.JPG
Auglýsing

Davíð Þór Björg­vins­son, Sig­urður Tómas Magn­ús­son og Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, voru þrjú hæfust að mati hæf­is­nefndar um mat á umsækj­endum um starf dóm­ara við Lands­rétt. Davíð Þór var með ein­kunn­ina 7,35, Sig­urður Tómas 6,775 og Ragn­heiður 6,65, sam­kvæmt gögnum sem Kjarn­inn hefur undir höndum og birt erum með frétt­inn­i. 

Fundi stjórn­skip­un­ar-og eft­ir­lits­nefndar Alþingis þar sem fjallað var um skipan dóm­ara við Lands­rétt lauk í kvöld án nið­ur­stöðu, en einn þeirra sem met­inn var meðal 15 hæfustu, Ást­ráður Har­alds­son hrl., sagði til­lögu ráð­herra um skipan dóm­ara, þar sem fjórar breyt­ingar voru gerðar á mati hæf­is­nefnd­ar, ekki vera í sam­ræmi við lög. Undir þetta tók Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands. 

Hér má sjá hvernig listi hæfisnefndarinnar var.Sam­kvæmt lista hæf­is­nefnd­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­son númer 14 á list­an­um. Einn þeirra sem Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, gerir til­lögu um að verði á meðal 15 dóm­urum við Lands­rétt er Jón Finn­björns­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­nefnd­ar­inn­ar. Þá er Eiríkur Jóns­son númer 7 á lista hæf­is­nefnd­ar­inn­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara.

Fyrr­nefndir Ást­ráður Har­alds­son og Eiríkur Jóns­son, ásamt Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni og Jóni Hösk­ulds­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­son og Jón Finn­björns­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara við Lands­rétt eru Aðal­steinn E. Jón­as­son, Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ás­mundur Helga­son, Dav­íð Þór Björg­vins­son, Her­vör Þor­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­ars­dótt­ir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, Sig­urður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Sig­ríður kom bæði á fund nefnd­ar­innar í morgun og eftir hádeg­ið. Minni­hlut­inn í nefnd­inni telur vafa leika á því að til­laga hennar um þá 15 ein­stak­linga sem skipa skulu stöður dóm­ara við Lands­rétt stand­ist lög þar sem ráð­herra leggur til að fjórir ein­stak­lingar verði skip­aðir sem ekki voru á lista hæf­is­nefndar yfir þá hæf­ustu til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. 

Á meðal þeirra sem komu á fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar voru for­maður hæfn­is­nefnd­ar­inn­ar, Gunn­laugur Claessen, Björg Thoraren­sen, pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti, Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags­ins og Ingi­björg Þor­steins­dótt­ir, vara­for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands.

Hér með­fylgj­andi má sjá hvernig hæf­is­nefndin horfði til reynslu umsækj­enda, og hvernig hún var met­in.

Hæfisnefndin mat reynslu umsækjenda eftir þessum mælikvörðum.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent