Ríkisskattstjóri hefur opnað 250 mál vegna Panamaskjalanna

Ráðist var í nýjar aðgerðir hjá Ríkisskattstjóra árið 2016 í kjölfar kaups íslenska ríkisins á hluta af Panamaskjölunum.

Áhrif Panamaskjalanna má gæta í breyttum áherslum Ríkisskattstjóra.
Áhrif Panamaskjalanna má gæta í breyttum áherslum Ríkisskattstjóra.
Auglýsing

Rík­is­skatt­stjóri rann­sakar enn mál tengd hluta Panama­skjal­anna sem ríkið keypti árið 2015. Alls hefur hann opnað 250 mál vegna þeirra. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Rík­is­skatt­stjóra fyrir árið 2016.

Meðal nýj­unga í skatta­eft­ir­liti hjá emb­ætt­inu er skoðun á heim­ils­festi athafna­manna sem eru með skráð lög­heim­ili erlendis en eiga umtals­verð­ar­ ­eignir hér á landi. Í árs­skýrsl­unni kemur fram að nán­ast allir athafna­menn sem tengj­ast aflands­fé­lögum og hafa valið sér búsetu í löndum með hag­kvæma skatt­lagn­ingu hafi verið teknir til skoð­un­ar.

Einnig var farið af stað með skoðun á notk­un er­lendra kredit­korta hér á landi í þeim til­gangi að sjá hvort þau séu tengd við hugs­an­lega skatt­skylda íslenskra aðila.

Rík­is­skatt­stjóri segir að vinna við aflands­gögnin sem keypt hafi verið á árinu 2015 hafi haf­ist í fyrra og geng­ið vel, búið hafi verið að opna mál á yfir 250 aðila. Ljóst er hins vegar að fjöldi þeirra mála mun ekki hljóta end­ur­á­kvörð­un,  m.a. vegna ald­urs mála sem og vegna fyrn­ing­ar­reglna.

Auglýsing

Ljóst er að Panama­skjölin hafi leitt til­ ­sér­tækra aðgerða í öðrum ríkj­um, en OECD kall­aði til sér­staks fundar um skjöl­in í apríl 2016. Á honum var stofn­aður vinnu­hópur um gagna­lek­ann og við­brögð skatta­yf­ir­valda við hon­um, en Rík­is­skatt­stjóri á sæti í hon­um.

Gögnin þegar borgað sig

Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur fékk Pana­ma­gögnin sem íslensk stjórn­völd keyptu  árið 2015 einnig til umfjöll­un­ar. Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­­­­fé­lög með íslenska kenn­i­­­­tölu fyrir í þeim gögn­um, sem keypt voru fyrir 37 millj­­ónir króna. Skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri hefur tekið 34 mál til rann­­sóknar á grund­velli gagn­anna og nú þegar krafið fjóra ein­stak­l­inga um 82 millj­­ónir króna vegna meinta skattsvika þeirra, sem er næstum þre­­föld sú upp­­hæð sem greitt var fyrir gögn­in. Rann­­sókn er ein­ungis lokið í þremur málum og tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna gruns um refsi­verða hátt­­semi. Þá er rann­­sókn í sjö málum á loka­­stigi.

Bryn­­dís Krist­jáns­dóttir sagði í sam­tali við Kjarn­ann í maí að öll önnur mál úr skjöl­un­um, utan þeirra 34 sem skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri tók til rann­­sókn­­ar, hafi verið send til Rík­­is­skatt­­stjóra til frek­­ari með­­­ferð­­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent