Fjórðungur bankastarfsmanna með yfir milljón á mánuði

Bankastarfsmenn leggja mesta áherslu á styttingu vinnuviku í yfirstandandi kjarasamningum. Meðaltal heildarlauna þeirra eru 838 þúsund krónur á mánuði. Hjá Eflingu er launahækkun langmikilvægasta baráttumálið, enda meðallaun þar 479 þúsund.

miðlari
Auglýsing

Alls eru 24,7 pró­sent allra starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækjum með yfir eina milljón króna í laun á mán­uði. Þar af eru 12,6 pró­sent með meira en 1,2 millj­ónir króna á mán­uði en ekki er greint frekar hversu há laun þess hóps eru yfir eru.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í kjara­könnun sem Gallup gerði fyrir Sam­tök starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SSF) í októ­ber í fyrra. Alls tóku 2.786 félags­menn sam­tak­ana þátt, sem þýðir að þátt­takan var 74 pró­sent. Sam­kvæmt frétt á heima­síðu SSF gefur könn­unin „mjög ábyggi­lega mynd af kaupi og kjörum félags­manna“. Þorri félags­manna í sam­tök­unum vinnur hjá bönkum lands­ins.

Í könn­un­inni kom meðal ann­ars fram að með­al­tals­laun starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hafi verið 838 þús­und krónur á mán­uði í októ­ber í fyrra.  Þau höfðu hækkað úr 692 þús­und í febr­úar 2006, eða um 21 pró­sent. Á sama hækk­aði launa­vísi­talan um 18,7 pró­sent.

Auglýsing

Þeir sem skil­greindir voru sem „hærri stjórn­end­ur“, alls 169 þeirra sem svör­uðu könn­un­inni, voru með tæp­lega 1,5 millj­ónir króna að með­al­tali í laun á mán­uði. Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, er lík­ast til launa­hæsti banka­maður lands­ins. Hann var með rúm­lega 6,2 millj­ónir króna í laun á árinu 2018.  

til sam­an­burðar má nefna að mið­gildi heild­ar­launa á Íslandi á árinu 2017 var 618 þús­und krón­ur, sem þýðir að helm­ingur launa­manna var með laun undir þeirri upp­hæð. Laun Hösk­uldar eru því tíföld sú upp­hæð.

Leggja mesta áherslu á styttri vinnu­viku

Flestir hátt laun­aðir starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja eru ánægðir með launin sín, en ekki all­ir. Þannig sýndi könn­unin að um tíu pró­sent þeirra sem eru með yfir eina milljón króna í laun á mán­uði séu óánægð með það sem þau fá útborg­að.

Könn­unin sýnir einnig að fleiri starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja leggja áherslu á stytt­ingu vinnu­tíma (41,9 pró­sent) en hækkun launa (39,1 pró­sent) í yifr­stand­andi kjara­samn­ing­um. Í sam­bæri­legri könnun sem Gallup gerði fyrir Efl­ingu, og kynnt var í des­em­ber í fyrra, kom fram að 61 pró­sent félags­manna þar vildi leggja mesta áherslu á hækkun launa og 15 pró­sent á hús­næð­is­mál. Ein­ungis ell­efu pró­sent töldu stytt­ingu vinnu­tíma vera mik­il­væg­asta kjara­mál­ið. Hjá Efl­ingu voru enda með­a­tals­heild­ar­laun félags­manna sem voru í 100 pró­sent starfi 479 þús­und krón­ur. Það þýðir að meðal heild­ar­launa þeirra sem starfa í fjár­mála­geir­anum eru 75 pró­sent hærri en félags­manna í Efl­ingu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent