Fjárfestingar Kínverja í Bretlandi gætu dregist saman í kjölfar Huawei banns

Búnaður Huawei á að vera með öllu horfinn úr 5G kerfinu í Bretlandi fyrir árslok 2027. Í vikunni tók Donald Trump heiðurinn fyrir ákvörðun Breta en bresk stjórnvöld segja öryggisástæður liggja að baki ákvörðuninni.

Huawei Shanghai
Auglýsing

Kín­verjar munu grípa til nauð­syn­legra aðgerða í kjöl­far þess að Bretar hafa lagt bann við því að bún­aður Huawei verði not­aður í 5G fjar­skipta­kerfum í Bret­landi. Þetta kemur fram í frétt Reuters en þar segir að kín­verska við­skipta­ráðu­neytið hafi gefið það út að málið hafi haft nei­kvæð áhrif á vilja Kín­verja til fjár­fest­inga í Bret­landi.



Þar er haft eftir Gao Feng, tals­manni við­skipta­ráðu­neyt­is­ins, að nú sé verið að leggja mat á aðgerðir breskra stjórn­valda. Hann segir bannið stang­ast á við reglur um frjálsa verslun og að Kín­verjar muni leita allra leiða til að verja laga­legan rétt kín­verskra fyr­ir­tækja.

Auglýsing


Á þriðju­dag ákváðu bresk yfir­völd að frá og með næstu ára­mótum mættu þar­lend fjar­skipta­fyr­ir­tæki ekki nota búnað frá Huawei í yfir­stand­andi upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þá þurfa fyr­ir­tækin að fjar­lægja allan búnað frá Huawei sem nú þegar er í notkun innan kerf­is­ins fyrir árs­lok 2027



Kín­versk yfir­völd telja ákvörðun Breta hafa verið tekna vegna póli­tískrar pressu frá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta. Gao Feng hvetur Breta til þess að leið­rétta þessi mis­tök og verja þar með sterk við­skipta­leg tengsl þjóð­anna.



Á blaða­manna­fundi í vik­unni sagði Don­ald Trump sig bera ábyrgð á ákvörðun Breta en þessu hafna bresk yfir­völd. Þau segja að áhyggjur af örygg­is­málum hafi legið að baki ákvörð­un­inni auk áhyggja af því að fram­boð á bún­aði frá Huawei gæti skerst vegna þeirra þving­ana sem Banda­ríkin beita fyr­ir­tæk­ið.



Banda­rísk yfir­­völd hafa hvatt vest­ræn ríki til þess að snið­­gang Huawei í upp­­­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þau telja bún­­að­inn geta verið not­aðan til njósna af hálfu Kín­verja. Þeim ásök­unum hafa for­svar­s­­menn Huawei hafn­að. Fyr­ir­tæk­inu er meinað að nota hug­­búnað og tækni frá Banda­­ríkj­unum í fram­­leiðslu og vöru­­þróun en bannið nær einnig til fram­­leið­enda sem sjá Huawei fyrir íhlut­­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent