Búast við því að stýrivextir hafi náð hámarki og fari að lækka á ný næsta haust

Verðbólguvæntingar hafa batnað. Nú telja þeir sem sýsla með skuldabréf að hún verði komin niður í 5,1 prósent eftir ár og að þá hefjist hægt vaxtalækkunarferli. Verðbólguvæntingar til lengri tíma eru þó enn vel yfir markmiðum Seðlabankans.

Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Auglýsing

Ný könnun Seðla­banka Íslands, sem gerð var á meðal mark­aðs­að­ila á skulda­bréfa­mark­aði, sýnir að þeir telji að stýri­vextir hafi náð hámarki í bili, en þeir eru nú 5,75 pró­sent og hafa hækkað um fimm pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra. Þar kemur einnig fram að aðspurðir telji að stýri­vextir fari að lækka á ný á þriðja árs­fjórð­ungi 2023, verði 5,25 pró­sent í nóv­em­ber á næsta ári og 4,5 pró­sent í nóv­em­ber 2024. Um er að ræða lægri vexti en mark­aðs­að­il­arnir bjugg­ust við að myndu verða á næstu árum þegar síð­asta könnun Seðla­bank­ans var gerð í ágúst. Þá bjugg­ust þeir við því að stýri­vextir yrðu komnir upp í sex pró­sent í byrjun árs 2023.

Hækkun stýri­vaxta hefur leitt af sér miklar hækk­anir vöxtum íbúða­lána. Fyrir þá sem eru með breyti­lega vexti á slíkum getur það þýtt mikla hækkun á greiðslu­byrði á mán­uði. Í síð­asta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans var til að mynda tekið dæmi af 40 millj­óna króna óverð­tryggðu jafn­greiðslu­láni á breyti­legum vöxt­um. Afborg­anir af því höfðu hækkað um 77 þús­und krónur frá júlí 2021 til sama mán­aðar ári síð­ar. Síðan þá hafa vextir hækkað meira, og greiðslu­byrðin sömu­leið­is. 

Það eru þó ekki allir með slík lán. Í minn­is­blaði Seðla­bank­ans sem lagt var fram í fjár­laga­nefnd fyrr í þessum mán­uði kom fram að greiðslu­byrði allra íbúða­lána hefði auk­ist að með­al­tali um 13 til 14 þús­und krónur á mán­uði frá byrjum árs 2020 og fram í ágúst 2022 hjá nýjum lán­tak­end­um, eða rúm­lega 160 þús­und krónur á ári. Hægt er að lesa meira um ástæður þessa í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans hér.

Verð­bólgan áfram tölu­vert frá mark­miði

Alls var könn­unin send  til 36 mark­aðs­að­ila á skulda­bréfa­mark­aði, Um er að ræða banka, líf­eyr­is­sjóða, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóða, verð­bréfa­miðl­ana, fyr­ir­tækja með starfs­leyfi til eigna­stýr­ingar og trygg­inga­fé­laga. Svör feng­ust frá 33 aðilum og var svar­hlut­fallið því 92 pró­sent.

Auglýsing
Niðurstöður hennar gefa til kynna að vænt­ingar svar­enda séu bjart­sýnni en í ágúst. Nú búast þeir við að verð­­bólgan, sem nú er 9,4 pró­­sent, verði að með­al­tali 9,2 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ung og komin niður í 5,1 pró­sent eftir ár. Þá segja svar­endur að þeir reikni með að verð­bólgan verði 4,2 pró­sent eftir tvö ár, sem er enn umtals­vert yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands, en það er 2,5 pró­sent. Raunar spá mark­aðs­að­ilar því að verð­bólgan kom­ist ekki mjög nálægt því mark­miði  en verð­bólgu­vænt­ingar til fimm ára voru 3,6 pró­sent og til tíu ára 3,5 pró­sent. Þetta er þó minni verð­bólga en mark­aðs­að­ilar reikn­uðu með í könn­un­inni í ágúst. 

Mark­aðs­að­ilar voru líka spurðir um afstöðu til taum­halds pen­inga­­stefnu Seðla­­bank­ans. Í svörum þeirra kom í ljós að þeim hefur fækkað mikið sem telja að það sé of laust. Hlut­fall þeirra nú er 18 pró­sent. Það var 67 pró­sent í ágúst og 71 pró­sent í apr­íl. 

Þeim sem töldu að taum­haldið væri hæfi­legt fjölg­aði úr 29 í 67 pró­sent frá því í ágúst. Í apríl töldu ein­ungis 17 pró­sent að það væri hæfi­legt. Um 15 pró­sent svar­enda telja taum­haldið of þétt sem er nokkur aukn­ing frá því í ágúst þegar hlut­fallið var fjögur pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent