Einungis 14 prósent landsmanna ánægð með núverandi útfærslu kvótakerfisins

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru þeir einu sem eru ánægðari með núverandi útfærslu kvótakerfisins en óánægðari. Hjá öllum öðrum flokkum er andstaðan við kerfið miklu meiri en stuðningur við það.

HBGrandi
Auglýsing

Alls segj­ast 66 pró­sent lands­manna, tveir af hverjum þrem­ur, vera óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. Þar af segj­ast 38 pró­sent vera mjög óánægð með hana. 

Tæpur fimmt­ung­ur, 19 pró­sent aðspurðra, seg­ist ekki hafa sterka skoðun á útfærsl­unni en ein­ungis 14 pró­sent eru ánægð með hana. 

Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Öldu - félag um sjálf­bærni og lýð­ræði, dag­anna 8. til 14. júlí síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun sem 945 manns svör­uðu. Úrtakið voru Íslend­ingar á aldr­inum 18 ára og eldri og voru valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR, sem telur lið­lega 18 þús­und manns sem valdir voru með með til­vilj­un­ar­úr­taki úr þjóð­skrá. 

Spurn­ingin sem þátt­tak­endur voru fengnir til að svara var eft­ir­far­andi: Hversu ánægð(­ur) eða (óá­nægð­ur) ertu með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi?

Sjálf­stæð­is­menn einu sem eru ánægðir

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru þeir einu sem eru ánægð­ari með útfærslu kvóta­kerf­is­ins en óánægð­ari. Alls segj­ast 42 pró­sent þeirra vera ánægðir með hana en 25 pró­sent eru óánægð. 

Auglýsing
Innan hinna tveggja stjórn­ar­flokk­anna er meiri­hluti kjós­enda þeirra ósáttur með það kerfi sem er við lýði. Hjá Fram­sókn segj­ast 46 pró­sent kjós­enda flokks­ins vera óánægð með það en 23 pró­sent ánægð. Innan raða Vinstri grænna mælist and­staðan 75 pró­sent en ell­efu pró­sent eru ánægð með kerf­ið.

And­staðan við núver­andi útfærslu kvóta­kerfis í sjáv­ar­út­vegi er mikil á meðal allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Mest er hún hjá kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins (94 pró­sent) og kjós­endum Píratar (93 pró­sent). Kjós­endur Sam­fylk­ingar fylgja þar á eftir (88 pró­sent), svo Flokks fólks­ins (79 pró­sent) og Við­reisnar (78 pró­sent). Hjá and­stöðu­flokk­unum er óánægjan minnst hjá kjós­endum Mið­flokks, en mælist samt sem áður 71 pró­sent. 

Unga fólkið óánægð­ast

Munur er á óánægju milli ald­urs­hópa. Hún mælist mest hjá ungi fólki, innan ald­urs­hóps­ins 18-29 ára, þar sem 74 pró­sent aðspurðra sögð­ust óánægð með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins og ein­ungis átta pró­sent sögð­ust ánægð. 

Ekki er mikil munur á and­stöð­unni eftir búsetu, en 69 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er óánægð með kerfið og 62 pró­sent þeirra sem búa á utan þess. Óánægjan eykst með hærra mennt­un­ar­stigi en er minnst hjá þeim sem hafa hæstar tekj­ur. 

Mest ánægja með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins mælist í hópi stjórn­enda og æðstu emb­ætt­is­manna, en 25 pró­sent þeirra segj­ast ánægðir með núver­andi útfærslu kerf­is­ins.

Sam­herjar með sterka stöðu

Mikil sam­þjöppun hefur orðið innan kvóta­kerf­is­ins á und­an­förnum árum. Miðað við síð­asta birta lista Fiski­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­ar­vinnslan, ásamt dótt­ur­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 7,7 pró­sent hans. Miðað við það sem var greitt fyrir afla­heim­ildir Bergs ætti virði þess kvóta að vera um 92 millj­arðar króna. Afla­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar eru bók­færðar á um 30 millj­arða króna. Tveir stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og Kjálka­nes.

Næst stærsta fyr­ir­tækið á list­anum yfir þær útgerðir sem erum með mestu afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu er einmitt Sam­herj­i. 

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­­sent kvót­ans. Sam­an­lagt heldur Sam­herji því á níu pró­sent úthlut­aðra veiði­heim­ilda. 

Gjög­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,3 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um, sem er 27,5 millj­arða króna virði.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­­sent kvót­ans. 

Sam­an­lagt virði þessa kvóta sem Sam­herji heldur á, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­heim­ild­ir, er um 107,6 millj­arðar króna.

Þessir aðil­ar: Síld­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mögu­legt að séu tengd­ir, halda því sam­tals á 19 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 227 millj­arðar króna.

Nokkrar blokkir fyr­ir­ferða­miklar

Brim, sem er skráð á mark­að, er sú útgerð sem heldur beint á mestum kvóta, eða 10,41 pró­sent hans. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á 43,97 pró­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,57 pró­­sent af öllum afla­heim­ild­­um. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar, for­­stjóra Brims.

Til við­­bótar heldur útgerð­­ar­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,43 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 15,51 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 184,1 millj­arðar króna miðað við síð­ustu við­skipti með kvóta.

Kaup­­­­­fé­lag Skag­­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,51 pró­­­­­sent heild­­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­­sent í Vinnslu­­­­­stöð­inni í Vest­­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­­sent heild­­­­­ar­afla­hlut­­­­­deild. Þá á Vinnslu­­stöðin 48 pró­­sent hlut í útgerð­­ar­­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­­manna­eyj­um, sem heldur á 0,8 pró­­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­­ías Cecils­­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,27 pró­­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­­ar­kvóti þess­­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­­sent, og er því undir 12 pró­­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­­greindir með öðrum hætti.

Mark­aðsvirði þess kvóta, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti, er um 132,4 millj­arðar króna.

Þessar þrjár blokkir, sú sem hverf­ist í kringum Sam­herja, sú sem hverf­ist í kringum Brim og sú sem hverf­ist í kringum útgerð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, heldur því sam­tals á 45,6 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt mark­aðsvirði hans er um 544,8 millj­arðar króna. 

Alls er 67,4 pró­sent alls úthlut­aðs afla í höndum 15 útgerða sem margar hverjar tengj­ast inn­byrð­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent