Framleiðsla í fiskeldi jókst um 169 prósent milli 2016 og 2020

Tekjur fiskeldisfyrirtækja hafa tvöfaldast frá 2016 og útflutningsverðmæti afurða þeirra hafa þrefaldast. Launþegum í geiranum hefur hins vegar ekki fjölgað nálægt því jafn mikið, eða um 32 prósent á sama tímabili.

Sjókvíareldi á Vestfjörðum.
Sjókvíareldi á Vestfjörðum.
Auglýsing

Tekjur fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli áranna 2016 og 2020. Á fyrra árinu voru þær 14,4 millj­arðar króna en í fyrra voru þær 33,7 millj­arðar króna. 

Á sama tíma­bili hefur fram­leiðslan auk­ist úr 15,1 þús­und tonnum á ári í 40,6 þús­und tonn, eða um 169 pró­sent. Langstærstur hluti fram­leiðsl­unnar er lax, eða 34 þús­und tonn.

Heild­ar­tap varð þó á starf­semi atvinnu­grein­ar­innar í fyrra upp á 62 millj­ónir króna, eftir að hún hafði skilað 1,7 millj­arða króna hagn­aði á árinu 2019.

Þetta kemur fram í Sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­gagna­grunni Deloitte ­sem kynntur var á Sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­deg­inum 2021 sem fór fram í morg­un. Gagna­grunn­­ur­inn nær utan um rekstur 90 pró­­sent sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi en fjár­­hæð­­irnar hafa verið upp­­­reikn­aðar til að end­­ur­­spegla allan geir­ann. 

Auglýsing
Útflutningsverðmæti fisk­eldis hafa að sama skapi auk­ist umtals­vert. Árið 2016 voru þau 9,6 millj­arðar króna, sam­kvæmt tölum frá Hag­stofu Íslands. Næstu tvö ár á eftir voru útflutn­ings­verð­mætin á milli 13,1 til 13,7 millj­arðar króna en á árinu 2019 næstum tvö­föld­uð­ust þau frá fyrra ári og voru 25 millj­arðar króna.

Í fyrra bætt­ist svo enn við og heild­ar  útflutn­ings­verð­mæti voru 29,3 millj­arðar króna, sem er meira en þrisvar sinnum það sem þau voru árið 2016.

Störfum fjölgað um 32 pró­sent

Þeim sem starfa í geir­anum hefur hins vegar ekki fjölgað jafn mik­il. Árið 2016 voru laun­þegar sem störf­uðu við fisk­eldi alls 398 tals­ins. Næstum þrjú árin fjölg­aði þeim um 90  og í fyrra bættur 37 ný stöðu­gildi við. 

Alls störf­uðu því 525 manns í fisk­eldi sem laun­þegar í fyrra, sem er 32 pró­sent fleiri en í árs­lok 2016. 

Í kynn­ingu Deloitte í dag kom fram að efna­hags­reikn­ingur fisk­eldis sem atvinnu­greinar væri nokkuð sterk­ur. Í árs­lok í fyrra var eigið fé geirans 36 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 52 pró­sent. Skuldir allra fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sem eru með starf­semi á Íslandi voru á sama tíma 34 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent