Lífeyrissjóður verzlunarmanna ríður á vaðið og hækkar vexti á íbúðalánum

Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hefur tilkynnt að vextir á breytilegum óverðtryggðum lánum til sjóðsfélaga hans muni hækka frá 1. október í kjölfar nýjustu stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Hækkunin er umfram hækkun stýrivaxta.

Það er orðið mun dýrara að skuldsetja sig til íbúðakaupa en það var fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Það er orðið mun dýrara að skuldsetja sig til íbúðakaupa en það var fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Auglýsing

Stjórn líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna ákvað á fundi sínum á fimmtu­dag að hækka vexti á óverð­tryggðum breyti­legum íbúða­lánum úr 5,73 í 6,56 pró­sent, eða um 0,83 pró­sentu­stig. Breyt­ingin tekur gildi 1. októ­ber næst­kom­andi. Um er að ræða lán fyrir 70 pró­­sent af kaup­verði sem að hámarki mega vera 75 millj­­ónir króna.

Þetta er gert í kjöl­far þess að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig, í 5,5 pró­sent, síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. 

Aðrir líf­eyr­is­sjóðir sem eru stór­tækir í íbúða­lán­um: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), Gildi og Brú hafa ekki til­kynnt um vaxta­hækk­anir síðan að ákvörðun Seðla­bank­ans lá fyr­ir. Þá hafa stóru við­skipta­bank­arn­ir: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, ekki til­kynnt um hækk­anir enn sem komið er. 

Það er þó búist við að allir ofan­greindir muni hækka óverð­tryggða útláns­vexti sína í nán­ustu fram­tíð. 

Fólk flykkt­ist í breyti­lega óverð­tryggða vexti

Hlut­fall lána sem er á breyti­legum vöxtum hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum, en kjör á þeim urðu um tíma mjög skap­leg eftir að Seðla­bank­inn lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Aðsókn í óverð­tryggð lán, sem fela í sér hærri greiðslu­byrði en hrað­ari nið­ur­greiðslu á höf­uð­stól, jókst í þessu ástandi. Hlut­fall þeirra af öllu útlánum til íbúð­ar­kaupa var 15 pró­sent um mitt ár 2016 og 27,5 pró­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið í 56 pró­sent. 

Auglýsing
Hlut­­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú yfir 70 pró­­­­sent en var 55 pró­­­­sent í byrjun árs 2020. Á þessu tíma­bili hafa bank­­arnir hagn­­ast um tugi millj­­arða króna og und­an­farið hefur vaxta­munur þeirra farið hækk­­and­i.

Stýri­vextir hafa hækkað um 4,75 pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra vegna við­leitni Seðla­bank­ans til að stemma stigu við sífellt auk­inni verð­bólgu, en hún mælist nú um 9,9 pró­sent. Bank­inn spáir því að verð­bólgan fari í 10,8 pró­sent fyrir lok árs. Helsti drif­kraftur hennar hefur verið hækk­andi íbúða­verð. 

Íbúða­mark­aður far­inn að kólna

Íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækk­­aði um 1,1 pró­­sent milli mán­aða, sam­­kvæmt nýbirtri mán­að­­ar­­skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un­­ar. Það er mun minni hækkun milli mán­aða en hefur mælst milli mán­aða í nokkuð langan tíma og því ljóst að aðgerðir Seðla­bank­ans til að draga úr vilja og getu til lán­töku eru að hafa áhrif. 

Íbúða­verð á svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­­sent síð­­­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­­sent síð­­asta árið. Ef horft er aftur til upp­­hafs kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins, sem hófst af alvöru hér­­­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækkað um 48 pró­­sent.

Á land­inu öllu hækk­­aði íbúða­verð um 26,4 pró­­sent frá júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Verðið hækk­­aði meira í nágranna­sveit­­ar­­fé­lögum höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu og ann­­ars staðar á lands­­byggð­inni en í höf­uð­­borg­inni sjálfri og sveit­­ar­­fé­lög­unum sem liggja að henn­i. 

Athygl­is­vert er að frá sum­r­inu 2020 hefur verð­bil á íbúðum auk­ist þannig að dýrar íbúðir virð­­ast hafa hækkað meira í verði en ódýr­­ar, sam­­kvæmt sam­an­­tekt HMS. 

Stór­aukin greiðslu­byrði heim­ila

Greiðslu­byrði hús­næð­is­lána lækk­aði skarpt þegar Seðla­bank­inn hóf að lækka stýri­vexti í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Strax um síð­ustu ára­mót, þegar stýri­vextir voru tvö pró­sent, var greiðslu­byrði íbúða­lána á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó orðin svipuð og hún var fyrir far­ald­ur­inn vegna vaxta- og verð­hækk­ana á íbúða­mark­aði. Síðan þá hafa stýri­vextir verið hækk­aðir um 3,5 pró­sentu­stig og greiðslu­byrði lána stór­auk­ist sam­hliða.

Í hag­sjá Lands­­bank­ans sem birt var í lok júní, skömmu eftir að stýri­vextir voru hækk­aðir í 4,75 pró­sent, var tekið dæmi af 40 millj­­óna króna láni á lægstu óverð­­tryggðu vöxt­­um. Vaxta­­byrði þeirra hafði þá hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­bank­inn bjóst við því að vextir myndu halda áfram að hækka og að vaxta­­byrðin aukast um 25 þús­und krónur í við­­bót á þessu ári. Gangi sú spá hans eftir hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i. Það þýðir að lán­tak­and­inn borgar tæp­lega einni og hálfri milljón króna meira í afborg­anir á árs­grund­velli en áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent