Greiðslubyrðin svipuð og fyrir faraldurinn

Í kjölfar mikilla vaxtalækkana hjá Seðlabankanum lækkuðu afborganir af húsnæðislánum til muna. Þessi lækkun er nú að miklu leyti gengin til baka, þar sem bæði húsnæðisverð og vextir hafa hækkað á undanförnum mánuðum.

Gata
Auglýsing

Lít­ill munur er á greiðslu­byrði hús­næð­is­lána á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú og fyrir far­ald­ur­inn, en hún hefur auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum vegna vaxta- og verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aðn­um. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar, sem kom út í morg­un.

Kaup­verð í sér­býli hækkað um 22 pró­sent

Sam­kvæmt skýrsl­unni nam með­al­kaup­verðið á íbúð í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 58 millj­ónir króna í nóv­em­ber, og hefur það hækkað um tvær millj­ónir króna frá því í sama mán­uði árið áður. Hækk­unin var enn meiri hjá íbúðum í sér­býli, en verð þeirra fór úr 80,2 millj­ónum króna í 98 millj­ónir á einu ári.

Sem fyrr er kaup­verðið á fast­eignum lang­hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en dregið hefur úr mun­inum á verð­inu í höf­uð­borg­inni og nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess á síð­ustu mán­uð­um. Með­al­kaup­verðið á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum nam tæpum 45 millj­ónum króna í nóv­em­ber, á meðan íbúðir á vest­ur­landi seld­ust fyrir tæpar 40 millj­ónir króna. Lægst var kaup­verðið á Vest­fjörðum þar sem íbúðir seld­ust að með­al­tali fyrir 23 millj­ónir króna.

Auglýsing

Minni greiðslu­byrði en 2019

HMS segir lágt vaxta­stig vera einn af þeim þáttum sem hafa haft hvað mest áhrif á þróun íbúða­verðs frá upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins. Með vaxta­lækk­unum Seðla­bank­ans, sem hófust árið 2019, hafi greiðslu­byrðin á hús­næð­is­lánum minnkað til muna, sér­stak­lega ef tekið er til­lit til verð­bólgu yfir tíma.

Í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins snar­minnk­aði svo greiðslu­byrðin í kjöl­far þess sem Seðla­bank­inn lækk­aði vexti sína um 2,25 pró­sentu­stig á nokkrum mán­uð­um. Á fyrri hluta síð­asta árs var því mun auð­veld­ara að standa straum af útborg­unum af íbúð en áður, þrátt fyrir að íbúða­verð væri í örum vexti á þeim tíma.

Á síð­ustu mán­uðum hefur hafa svo þrá­látar verð­hækk­an­ir, til við­bótar við vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans, farið að segja til sín og er nú nær öll minnkunin í greiðslu­byrði á lánum fyrir íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gengin til baka. Greiðslu­byrðin er enn 13,7 pró­sentum minni en hún var á toppi upp­sveifl­unnar á íbúða­mark­aði árið 2019, en er nú komin á svip­aðar slóðir og hún var á fyrir far­ald­ur­inn.

Líf­eyr­is­sjóðir með end­ur­komu á lána­markað

Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um áður jókst ásókn í hús­næð­is­lán hjá líf­eyr­is­sjóð­unum í nóv­em­ber, í fyrsta skipti frá því í maí 2020. Í þeim mán­uði fóru sjóð­irnir að bjóða upp á vexti á lán­unum sem voru sam­keppn­is­hæfir við lána­kjör bank­anna.

Sam­kvæmt HMS voru lægstu óverð­tryggðu vext­irnir ekki hjá við­skipta­bönk­unum í nóv­em­ber í fyrra, heldur hjá líf­eyr­is­sjóð­un­um. Hjá bönk­unum var hægt að fá hús­næð­is­lán á rúm­lega fjög­urra pró­senta vöxt­um, en bestu vaxta­kjör hjá líf­eyr­is­sjóð­unum voru í kringum 3,5 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent