Minni hlutabréf og meiri húsnæðislán

Virði hlutabréfa í eigu íslensku lífeyrissjóðanna dróst mikið saman í nóvember, á meðan þeir juku við sig í skuldabréfum. Ásókn í húsnæðislán hjá sjóðunum jókst sömuleiðis í mánuðinum, í fyrsta skipti frá því í maí 2020.

Hús í miðbæ Reykjavíkur
Auglýsing

Alls dróst heild­ar­virði hluta­bréfa líf­eyr­is­sjóð­anna um 75 millj­arða króna í nóv­em­ber. Á sama jókst hlut­deild þeirra í inn­lendum og erlendum skulda­bréfum um 36 millj­arða króna, auk þess sem útlán þeirra til heim­ila juk­ust um 7,6 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­bank­ans um stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna.

Ásókn í óverð­tryggð hús­næð­is­lán

Líkt og Kjarn­inn hefur áður fjallað um buðu Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, Gildi og Brú upp á óverð­tryggð hús­næð­is­lán í nóv­em­ber á svip­uðum kjörum og buð­ust hjá við­skipta­bönk­un­um. Saman eiga þeir rúm­lega helm­ing af allri hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Líkt og mán­uð­ina á undan minnk­aði áhug­inn á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum líf­eyr­is­sjóð­anna, þar sem ný lán voru 2,2 millj­örðum krónum minni en upp­greiðslur á gömlum lán­um. Á sama tíma jókst hins vegar áhug­inn á óverð­tryggðum útlán­um, þar sem ný lán voru 3,7 millj­örðum meiri en upp­greiðslur gam­alla lána.

Auglýsing

Nóv­em­ber var fyrsti mán­uð­ur­inn þar sem heild­ar­virði nýrra lána var meira en upp­greiðslur frá því í maí árið 2020, en þá stórjókst ásókn í hús­næð­is­lán hjá bönk­unum í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans.

Úr hluta­bréfum í skulda­bréf

Stærstu breyt­ing­arnar í eignum líf­eyr­is­sjóð­anna á milli mán­aða var hins vegar í hluta­bréfa- og skulda­bréfa­safni þeirra. Virði inn­lendra hluta­bréfa í eigu sjóð­anna dróst saman 4 pró­sent, eða um 43 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þennan sam­drátt má rekja til sveiflna í hluta­bréfa­verði, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar dróst saman um 4 pró­sent á sama tíma.

Erlend hluta­bréfa­eign dróst hins vegar ein­ungis saman um eitt pró­sent, eða um 31 millj­arð króna, á sama tíma. Lækk­unin er þó svipuð ef tekið er til­lit til krón­unn­ar, sem styrkt­ist um tæp tvö pró­sent í mán­uð­in­um.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir högn­uð­ust þó á því að ávöxtun skulda­bréfa jókst sam­hliða lægra verði á hluta­bréf­um, en skulda­bréfa­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækk­aði um tæpt pró­sent í mán­uð­in­um. Virði inn­lendrar skulda­bréfa­eignar sjóð­anna hækk­aði hins vegar um 1,5 pró­sent, eða um 34 millj­arða króna. Einnig jókst erlend skulda­bréfa­eign sjóð­anna um rúman millj­arð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent