Prentsmiðjan og skuldir Árvakurs við hana færðar úr útgáfufélagi Morgunblaðsins

Í lok september var ákveðið að færa prentsmiðjuna Landsprent út úr Árvakri og til móðurfélagsins Þórsmerkur. Með fylgdu skuldir Árvakurs við tengdan aðila, Landsprent, upp á 721 milljón króna. Hlutafé í móðurfélaginu var aukið um 400 milljónir króna.

Guðbjörg Matthíasdóttir, er stærsti einstaki eigandi Þórsmerkur og Árvakurs ásamt börnum sínum. Hún settist í stjórn félaganna fyrir skemmstu.
Guðbjörg Matthíasdóttir, er stærsti einstaki eigandi Þórsmerkur og Árvakurs ásamt börnum sínum. Hún settist í stjórn félaganna fyrir skemmstu.
Auglýsing

Búið er að færa Lands­prent, ­sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, út úr Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og stærsta við­skipta­vini Lands­prents. Það var gert á hlut­hafa­fundum sem haldnir voru í bæði Þórs­mörk, móð­ur­fé­lagi Árvak­urs sem á nær allt hlutafé í því, og Árvakri 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn með fram­lagn­ingu og sam­þykkt áætl­unar um upp­skipt­ingu Árvak­urs. Skipt­ingin felur í sér að Lands­prent er fært úr Árvakri og til móð­ur­fé­lags­ins Þórs­merk­ur. Í fund­ar­gerð stjórn­ar­fundar Þórs­merkur segir að á sama tíma hafi verið sam­þykkt hluta­fjár­aukn­ing upp á 400 millj­ónir króna „sem þegar hefur verið sam­þykkt á árinu og greidd til félags­ins.“

Við skipt­ing­una lét Árvakur af hendi eignir sem metnar voru á 997 millj­ónir króna og skuldir upp á 721 milljón króna. Eignin sem færð var yfir er bók­fært virði Lands­prents. Skuldin sem fær­ist yfir er að uppi­stöðu skuld Árvak­urs við Lands­prent, sem hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum.

Þetta má lesa úr skjölum sem nýverið voru send til fyr­ir­tækja­skráar vegna þessa.

Auglýsing
Árvakur skil­aði hagn­aði upp á 110 millj­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­tap félags­ins var hins vegar 113 millj­ónir króna. Ástæðan fyrir hagn­að­inum fólst í hlut­deild í afkomu dótt­ur- og hlut­deild­ar­fé­laga, sem var jákvæð um 243 millj­ónir króna. Þar skipti lang­mestu hlut­­­deild í Lands­­­prenti, en hún var 196 millj­­­ónir króna í fyrra. Án þess hagn­aðar sem Lands­prent sýndi hefði Árvakur því verið rek­inn í tapi á árinu 2021. 

Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina Lands­prents sem átti kröfur á tengd félög upp á 730,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þær kröf­ur, sem eru á Árvak­ur, uxu um 410,2 millj­ónir króna á tveimur árum, frá byrjun árs 2020 og út síð­asta ár. Með því spar­aði Árvakur sér greiðslur tíma­bund­ið, en stórjók skuldir sínar við félag í sinni eig­u. 

Skipt­ing­unni, sem færir Lands­prent yfir til móð­ur­fé­lags­ins Þórs­merk­ur, er ætlað að taka á þess­ari skulda­stöðu. Við hana lækka skuldir Árvak­urs við tengda aðila um 721 milljón króna og sú skuld fær­ist til Þórs­merk­ur, nú eig­anda Lands­prents. 

Eftir skipt­ing­una fara eignir Árvak­urs, sem á Morg­un­blað­ið, mbl.is og K100 og tengda miðla, úr tæp­lega 2,2 millj­arði króna í 1,2 millj­arð króna og eignir Þórs­merkur hækka að sama skapi um tæpan millj­arð króna. 

Guð­björg í stjórn en Ásdís Halla út

Í ár var ný stjórn Þórs­merkur og Árvak­urs. Sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár var sú stjórn skipuð 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og ofan­greind skipt­ing og hluta­fjár­aukn­ing var ákveð­in. Þar kom meðal ann­ars fram að Ásdís Halla Braga­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri í háskól­ar-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sagði sig úr stjórn­un­um, en lög banna auka­störf æðstu emb­ætt­is­manna og ráð­herra.

Í hennar stað sett­ist Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir, aðal­eig­andi Ísfé­lags Vest­manna­eyja, í stjórn­irn­ar. Sig­ur­björn Magn­ús­son, faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, ráð­herra í ráðu­neyt­inu sem Ásdís Halla starfar í, er áfram sem áður stjórn­ar­for­maður félag­anna tveggja.

Davíð Oddsson hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá árinu 2009. Mynd: RÚV/Skjáskot

Stærsti eig­and­inn fyrir síð­­­­­ustu hluta­fjár­­­aukn­ingu voru Guð­­­­björg Matt­h­í­a­s­dóttir og börn henn­­­­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­­­­manna­eyja. Sam­an­lagt átti sá hópur 25,5 pró­­­­sent hlut. 

Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjá­v­­­­­ar­af­­­­urð­ir, í eigu Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga, með 19,4 pró­­­­sent eign­­­­ar­hlut.  

Legalis, félag sem Sig­­ur­­björn stjórn­­­ar­­for­­maður veitir for­­stöðu á 13,4 pró­­sent.. Félagið Í fjár­­­fest­ingar ehf., í eigu Katrínar Pét­­ur­s­dótt­­ur, for­­stjóra Lýs­is, og Gunn­laugs Sæv­­ars Gunn­laugs­­son­­ar, stjórn­­­ar­­for­­manns Ísfé­lags Vest­­manna­eyja, á 8,72 pró­­sent. Auk þess á Lýsi beint 2,96 pró­sent hlut. 

Mikið tap og fallandi lestur

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Morg­un­­blaðs­­sam­­stæð­unni hafi verið aukið um 100 millj­­­­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­­­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­­­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­­­­fé­lags Skag­­­­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­­­­ar.

400 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ingin sem sam­þykkt var í lok sept­em­ber bæt­ist því við þá tölu. Alls hefur nýtt hlutafé verið sett inn í sam­steypuna fjórum sinnum frá árinu 2019, en sam­an­lagt umfang þess er einn millj­arður króna. 

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­­urs í febr­­­­úar 2009 hefur útgáfu­­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals vel yfir tvo millj­­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­­fé. 

Þegar nýju eig­end­­­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­­­blað­ið, flagg­­­­­­skip útgáf­unn­­­­­­ar, lesið af rúm­­­­­­lega 40 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Í síð­­­­­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 17,3 pró­­­­­­sent og hefur ein­ungis einu sinni mælst lægri, í ágúst 2022. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist átta pró­­­­sent.

Vefur útgáf­unn­­­­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­­­­­­­ustu mis­­­­­s­eri hefur Vís­ir.is, vefur í eigu Sýn­­­­­­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­­­­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en mið­l­­­arnir tveir hafa und­an­farið verið með afar svip­aðan fjölda inn­­­lita á viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent