Ríkissaksóknari taldi sterkar líkur á að málið hefði fyrnst í meðförum yfirvalda

Hæstiréttur
Auglýsing

„Ástæða aft­ur­köll­un­ar­innar var sú að við yfir­ferð máls­ins í tengslum við gerð ágrips í því til Hæsta­réttar á liðnum vik­um, vakn­aði það við­horf að sterkar líkur væru á að málið hefði fyrnst í með­förum yfir­valda. Rann­sókn rýfur fyrn­ingu en í  ljósi þess að rann­sókn máls­ins beind­ist aðal­lega að sak­ar­giftum sem síðar reynd­ust ekki vera hlít­andi refsi­heim­ildar fyrir og rann­sókn­ar­tím­inn verður ekki nema að litlu leyti skýrður með rann­sókn á þeim sak­ar­giftum sem áfrýjað var til Hæsta­rétt­ar, eftir sýknu­dóm hér­aðs­dóms, teljum við að slíkur vafi sé á að rofi á fyrn­ing vegna þeirra brota hafi verið komið fram.“



Þetta kemur fram í svari Helga Magn­úsar Gunn­ars­son, aðstoð­ar­rík­is­sak­sókn­ara, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans til Rík­is­sak­sókn­ara, um hvers vegna ákveðið var að fella niður áfrýjun í Aserta-­mál­inu svo­kall­aða, sem greint var frá í gær. 
Ákært var vegna meintra brota á 8. grein laga um gjald­eyr­is­mál þar sem segir að leyfi Seðla­bank­ans þurfi til að eiga milli­göngu um gjald­eyr­is­við­skipti hér á landi, en fallið var frá stórum hluta máls­ins árið 2013. Í des­em­ber 2014 voru þeir sýkn­aðir af þeim hluta máls­ins sem eftir stóð.

Ákærðir í mál­inu voru Gísli Reyn­is­son, Ólafur Sig­munds­son, Markús Máni Michaels­son Maute og Karl Löve Jóhanns­son, en mál­inu er nú lokið og þeir sak­lausir af þeim sökum sem beindust að þeim.



Helgi Magnús segir í svar­inu til Kjarn­ans, að við heild­ar­mat á mál­inu hafi þetta verið nið­ur­stað­an, að fella niður áfrýj­un­ina. Fjár­skortur og of mik­ill hæga­gangur við máls­með­ferð sé ein af ástæð­un­um. „
Heild­ar­mat á mál­inu og þeim tíma sem lið­inn var leiddi til þess­arar nið­ur­stöðu sem og það að ljóst var að áfram­hald­andi með­ferð máls­ins fyrir Hæsta­rétti ofan á það sem á undan var komið var ósann­gjörn gagn­vart sak­born­ing­um, einkum vegna þess að nokkrar líkur eru á að Hæsti­réttur mundi sýkna í mál­inu vegna fyrn­ing­ar,“ sagði Helgi.

Bréf Ríkissaksóknara var stutt. Ein setning, um að fallið hafi verið frá áfrýjun.



Helgi Magnús segir að sjón­ar­mið Rík­is­sak­sókn­ara hafi ekki fengið hljóm­grunn við afgreiðslu fjár­laga. Æski­legt væri að starfs­skil­yrðin væru ekki þannig, að Rík­is­sak­sókn­ari þyrfti að sitja undir ámæli fyrir að brjóta reglur um afgreiðslu­tíma mála.

Auglýsing

„Hafa verður í huga að frá fyrstu yfir­heyrslu sak­born­inga í jan­úar 2010 til næstu í júní 2012 liðu tæp 2 1/2 ár. Þessi sjón­ar­mið fengu ekki neina umfjöllun í hér­aðs­dómi og komu ekki upp við yfir­ferð máls­ins í tengslum við ákvörðun um að áfrýja því. Dráttur á afgreiðslu þessa máls er í sam­ræmi við drátt sem orðið hefur á málum vegna álags hjá Rík­is­sak­sókn­ara og vissu­lega væri æski­legt að rík­is­sak­sókn­ara væru búin betri starfs­skil­yrði þannig að hann þyrfti ekki að sitja undir ámæli fyrir að brjóta reglur um afgreiðslu­tíma mála en svona er það bara og okkar sjón­ar­mið hafa ekki fengið hljóm­grunn þrátt fyrir t.d. athuga­semdir rík­is­end­ur­skoð­unar á síð­asta ári um fjár­skort emb­ætt­is­ins og það að til­tölu­lega lága fjár­hæð þarf til að bæta úr.“



Arnar Þór Stef­áns­son hrl., lög­maður Ólafs Sig­munds­sonar sem var einn ákærðu í mál­inu, sagði í gær, að málið hefði „frá degi eitt“ ekki verið neitt mál, og því hefði aldrei átt að ákæra í því. „Lík­leg­ast þarf eng­inn að bera ábyrgð á þessu - frekar en fyrri dag­inn,“ bætti hann við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiInnlent
None