Íslensk heimili rétta úr kútnum

Fjárhagsstaða fjölskyldna hefur batnað nokkuð hratt að undanförnu, samhliða hækkun á virði lífeyris- og fasteigna. Það eru langsamlega stærstu eignir heimila í landinu.

24216414821_774b5e8eb2_o.jpg
Auglýsing

Eftir erf­ið­leika sem blöstu við mörgum eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unn­ar, haustið 2008, þá er heim­ils­bók­hald fjöl­skyldna í land­inu, sé litið yfir með­al­tals­töl­ur, farið að líta mun betur út. Eigna­staða heim­ila hefur batnað veru­lega, og skuldir hafa dreg­ist sam­an, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Fjár­eignir aukast mikið

Hér sést hvernig eignaskiptingin er hjá heimilum. Fasteignir og lífeyrissjóðseign er svipuð. Mynd: Hagsjá.Hreinar fjár­eign­ir heim­ila juk­ust um sautján pró­sent milli ára og námu ríf­lega 2.600 millj­örð­u­m króna í árs­lok 2014 sam­kvæmt nýupp­færðum tölum Hag­stofu Íslands. Það jafn­gild­ir 131,7 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Aukn­ing upp á sautján pró­sent milli­ ára telst vera mikið í sögu­legu sam­hengi.

Skuldir um 1.900 millj­arðar

Fjár­eignir heim­ila námu tæp­lega 4.600 millj­örðum í árs­lok 2014, en stærstur hluti þeirra, eða 76 pró­sent, eru líf­eyr­is­rétt­indi. Virði hluta­bréfa í eigu heim­ila jókst um tæp­lega fjórð­ung á milli áranna 2013 og 2014 og nam tæpum 64 millj­örðum króna í árs­lok 2014. Skuld­ir heim­ila voru Rúm­lega 1.900 millj­arð­ar. Jákvæður mis­munur fjár­eigna og skuld­bind­inga nemur því um 700 millj­örð­um, sé mið tekið af stöðu mála í lok árs 2014.

Auglýsing

Fast­eignir stór hlut­i ­eigna

Áþreif­an­leg­ustu og sýni­leg­ustu eign­ir hvers heim­ilis eru fast­eign og öku­tæki.  Þær eignir FJáreignir heimila, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.eru ekki taldar til fjár­eigna, ­sam­kvæmt grein­ingu Hag­stofu Íslands. „Séu fast­eignir og öku­tæki heim­il­anna skoð­að­ar í sam­an­burði við fjár­eignir kemur í ljós að fast­eignin er álíka stór og líf­eyr­is­rétt­indin og öku­tækja­eignin að jafn­aði minni en eign í verð­bréfum og hluta­bréf­um,“ segir í Hag­sjá Lands­bank­ans, þar sem kafað er ofan í fjár­hags­stöðu heim­il­anna.

Góð ávöxtun líf­eyr­is­sjóða

Bæði fast­eignir og líf­eyr­is­eign heim­ila minnkuð­u ­tölu­vert í hrun­inu, fast­eign­irnar mun meira, enda lækk­aði raun­verð fast­eigna, sé horft sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­ið, mikið í verð­bólgu­skot­inu sem fylgdi geng­is­falli krón­unn­ar. Báðir eigna­flokkar hafa stækkað veru­lega frá árin­u 2010 og á það sér­stak­lega við um líf­eyr­is­rétt­indi heim­il­anna. Fast­eignin var ­stærsta eign heim­il­anna allt fram til árs­ins 2010 en síðan þá hef­ur líf­eyr­is­eignin verið stærsta eign íslenskra heim­ila. Fast­eigna­verð hefur farið hækk­andi að und­an­förnu, og nemur hækk­unin um 30 pró­sentum frá hruni. Spár gera ráð fyrir að fast­eigna­verð muni hækka um 25 pró­sent fram til árs­ins 2018, en eins og alltaf þegar slíkar spár eru settar fram, þá eru marg­vís­legar óvissu­for­send­ur. Til dæmis hvernig verð­lag mun þróast, en um þessar mundir er verð­bólga um 1,5 pró­sent, einu pró­sentu­stigi lægra en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands.

Það má meðal ann­ars rekja til góðrar ávöxt­unar líf­eyr­is­sjóða lands­manna á und­an­förnum árum, en í fyrra er ­á­ætluð raun­á­vöxtun um 8,1 pró­sent. Sé horft yfir ára­bilið frá 2011 til og með­ 2015, þá hefur með­al­tals­raun­á­vöxtun verið á bil­inu 6,5 til 7 pró­sent á ári. Í sögu­legu til­liti er það há ávöxt­un, en höggið sem kom á líf­eyr­is­sjóð­ina í hrun­inu 2008 nam um 22 pró­sentum

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None