Nova orðið stærst á farsímamarkaði og gagnamagn fjórfaldaðist á tveimur árum

Síminn er ekki lengur með mesta markaðshlutdeild á farsímamarkaði á Íslandi, en hann hefur hafst slíka frá upphafi farsímavæðingar. 4G hefur leitt af sér gríðarlega gagnamagnsnotkun. 365 gengur hægt að fjölga viðskiptavinum í fjarskiptarekstri sínum.

Símafyrirtæki
Auglýsing

Nova er orðið það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem er með mest­a ­mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Alls eru 34 pró­sent allra áskrifta á far­síma­neti hjá Nova en 33,8 pró­sent hjá Sím­an­um. Voda­fone er í þriðja sæti með­ 28,1 pró­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­sent hlut­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­förn­um ár­um. Um mitt ár 2008 var Sím­inn með 56,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði og Voda­fone með 36,4 pró­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild ­fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­sent.  Nú er hún um 62 pró­sent.  Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu ­Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var á þriðju­dag.

Sím­inn er enn með lang­flesta við­skipta­vini í fastri áskrift, en þar er hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins 42,5 pró­sent og nærri þrír af hverjum fjórum við­skipta­vinum Sím­ans eru í fastri áskrift. Voda­fone er með 31,5 pró­sent af þeim mark­aði og Nova með 19 pró­sent. Þá er uppi­staðan af þeim við­skipta­vin­um ­sem 365 er með í far­síma­þjón­ustu með fasta áskrift.

Auglýsing

68 pró­sent við­skipta­vina Nova eru hins vegar með svo­kall­að frelsi, eða fyr­ir­fram­greidda far­síma­þjón­ustu.

4G-­bylt­ingin breytti öllu 

Fjar­skipta­mark­að­ur­inn hefur tekið miklum breyt­ingum á und­an­förnum árum og snýst nú um svo miklu meira en bara sím­töl. Aðal­á­herslan nú er á gagna­magn, sem sést vel á þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á gagna­magni á far­síma­net­inu á und­an­förnum árum. Á árinu 2013 not­uðu Íslend­inga 2,7 millj­ón­ir ­gíga­bæta á far­síma­net­inu. Í fyrra not­uðu þeir 10,2 millj­ónir gíga­bæta, eða tæp­lega fjórum sinnum meira magn.

Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­­tíma­bil fjar­­skipta­­geirans er að líða undir lok og gagna­­flutn­inga­­tíma­bilið að taka við. Tíðn­i­heim­ildir fyrir 3G, ­fyrsta há­hraða­kyn­slóð far­síma­­nets­­kerf­ið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­­kerfi en far­síma­­kerfi og gerð­i ­gagna­­flutn­ing ­mög­u­­leg­­an.

Næsti fasi stend­ur nú yfir, skrefið yfir í 4G-­­kerf­ið. Skref­ið ­sem verður tekið upp á við með henn­i er stærra en margir átta sig á. Hrað­inn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­­ari en hröð­­ustu ADS­L-teng­ing­­ar.

4G-væð­ingin á Ísland­i hófst af alvöru á árinu 2014 þeg­ar ­fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist. 

Í fyrra urðu 4G-kort í fyrsta sinn fleiri en 3G-kort. Nú eru 43,3 pró­sent ­út­gef­inna far­síma­korta 4G en 39,4 pró­sent þeirra 3G. Til sam­an­burðar má nefna að í árs­lok 2013 voru sex pró­sent Íslend­inga með 4G-kort í sím­anum sín­um.

Við­skipta­vinum 365 í inter­neti fjölg­aði um 114

Nova er með lang­sterk­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­net­i. ­Mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­sent á meðan að Sím­inn er með 18,3 pró­sent og Voda­fone með 12,8 pró­sent. Ein­ungis 4,1 pró­sent af ­gagna­magns­notkun á far­síma­neti í fyrra var á meðal við­skipta­vina 365.

Þessi ­notkun segir þó ekki alla sög­una. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér og á vinnu­stöðum frekar en að not­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u. Alls eru 48,8 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­um. Voda­fone er ­með 29 pró­sent og eru þessir tveir aðilar með tölu­verða yfir­burði á mark­aðn­um. Þannig hefur staðan hald­ist und­an­farin ár.  365 missti mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­að­i í fyrra þegar hlut­fall hennar fór úr 13 pró­sentum í 12,6 pró­sent. Við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins í inter­net­þjón­ustu fjölg­aði úr 15.551 í 15.665, eða um 114 tals­ins. Hringdu bætti hins vegar vel við sig á síð­asta ári og jók ­mark­aðs­hlut­deild sína úr 3,7 pró­sent í 5,4 pró­sent. Alls voru við­skipta­vin­ir Hringdu í  inter­net­þjón­ustu 6.741 um síðustu ára­mót, eða 2.308 fleiri en þeir voru ári áður.

Nova hefur ekki selt inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi á und­an­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u.  Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Sex af hverjum tíu hjá Sím­anum

Í töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­­skipta­­stofn­unar er nú birt  yf­ir­­lit ­yfir heild­­ar­­fjölda á­skrif­enda með sjón­­varp yfir IP-­­net. Þ.e. hvern­ig „­sjón­varps­­box­in“ skipt­­ast á milli­ þeirra aðila sem bjóða við­­skipta­vin­um sínum upp á að vera með sjón­­varp í gegn­um ­netteng­ing­­ar. Þeir aðilar eru t­veir, Sím­inn og Voda­­fone og þeir virð­­ast hafa ­skipt mark­aðnum nokkuð bróð­­ur­­lega á milli sín á und­an­­förnum árum. Sím­inn er með­ um 61 pró­­sent mark­aðs­hlut­­deild en Voda­­fone um 39 pró­­sent. Og þannig hef­ur ­staðan verið árum sam­­an.

Þar skipt­ir ugg­­laust miklu máli að ekki er hægt að tengj­ast ­sjón­varpi Sím­ans í gegn­um ­ljós­­leið­­ara­­net, sem byggst hefur upp á und­an­­förn­um árum, heldur bara sjón­­varpi Voda­­fo­­ne. Þess í stað býður Sím­inn upp á svo­­kall­að ­ljós­­net, sem teng­ist inn í heim­ili í gegnum kop­­ar­­taug.

Tekjur vegna fjar­skipta vaxa milli ára

Í skýrslu Póst- og fjar­­skipta­­stofn­un­ar er birt yfir­­lit yfir heild­­ar­­tekjur af fjar­­skipta­­starf­­sem­i. Tekj­ur af fjar­skipta­starf­semi voru sam­tals 54.834 millj­ónir króna í fyrra og juk­ust um ­rúman 2,5 millj­arða króna á milli ára.  Þær voru tæp­­lega ­sex millj­­örðum krónum hærri en þær voru árið 2012. Mest­ar ­tekj­urnar koma vegna far­síma­rekstur (16,1 millj­arðar króna) en tekjur vegna ­gagna­flutn­ings og inter­net­þjón­ustu juk­ust úr 8,9 í 9,8 millj­arða króna. Þá skil­aði sjón­varps­þjón­usta 3,3 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None