Lífeyrissjóðir og bankar stórtækir í kaupum á hlut ríkisins í Reitum

Hverjum seldi ríkið eignarhluti sína í fasteignafélaginu Reitum? Kjarninn rýndi í hreyfingar á markaði sem sýna hverjir eru nú eigendur hlutanna sem ríkið seldi. Ríkisbankarnir Landsbankinn og Íslandsbanki keyptu fyrir um tvo milljarða í Reitum.

reitir.jpg
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóðir og Lands­bank­inn sjálfur keyptu stærstan hlut af eign rík­is­ins, í gegnum félagið Lind­ar­hvol, í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum, sem ­skráð er á mark­að, en sam­tals fékk Lind­ar­hvoll 3,9 millj­arða króna fyrir 6,38 ­pró­sent hlut í félag­inu, eða um 47 millj­ónir hluta.

Þetta má lesa út úr gögnum sem sýna hreyf­ingar á eign­ar­hlutum hlut­hafa í Reitum í kringum við­skipt­in. Þannig keypti Lands­bank­inn hlut sem nemur ríf­lega fjórtán millj­ónum hluta fyrir um 1,2 millj­arða króna í vik­unni 18. til 25. ágúst, en við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins fóru fram 22. ágúst.

Bankar stór­tækir

Þá keypti Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna 3,5 millj­ónir hluta ­fyrir um 306 millj­ónir króna, á fyrr­nefndu tíma­bili. Kvika banki er skráður með 10,8 millj­ónir hluta fyrir 948 milj­ón­ir, Íslands­banki með ríf­lega 9 millj­ónir hluta fyrir 796 millj­ón­ir og Arion banki 1,8 millj­ónir hluta fyrir 160 millj­ón­ir, þegar skoð­aður er listi yfir stærstu hlut­hafa og breyt­ingar á honum milli vikna.

Auglýsing

Vátrygg­inga­fé­lag Íslands, VÍS,  er skráð inn á topp 20 list­anum með 7,85 millj­ón­ir hluta fyrir 687 millj­ónir króna. Aðrar breyt­ingar á lista yfir stærstu hlut­hafa eru vega­minn­i. 

Gild­i líf­eyr­is­sjóð­ur, sem er stærsti eig­andi Reita með ríf­lega 14 pró­sent hlut, virð­ist ekki hafa keypt neitt af því sem ríkið seldi, en Reitir bætti lít­il­lega við eign sína í félag­inu með því að kaupa 988 þús­und hluti fyrir ríf­lega 86 millj­ónir króna, og nemur eign­ar­hlutur Reita í félag­inu sjálfu nú 2,3 pró­sent.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Eignarhlutir ríkisins í Reitum voru vistaðir í félaginu Lindarhvoli.

Útboði á eign­ar­hlut ­rík­is­sjóðs Íslands í Reitum fast­eigna­fé­lagi hf. lauk klukkan 8:30 mánu­dag­inn 22. ágúst 2016. Mark­aðsvið­skipti Lands­bank­ans höfðu umsjón með útboð­inu.

Fjár­festar ósk­uðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reit­um, eða sem nemur 9,9% af heild­ar­hlutafé í Reit­um, að því er fram kom í til­kynn­ingu Lands­bank­ans.

Ríkið seldi allt sitt

Sölu­gengi í útboð­inu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heild­ar­nafn­verð sam­þykktra til­boða, eftir skerð­ingu var 47.222.796 hlutir eða ­sem sam­svara 6,38% af heild­ar­hlutafé Reita. Heild­ar­sölu­verð­mæti sam­þykktra til­boða eftir skerð­ingu er því rúm­lega 3,9 ma.kr. Að útboð­inu loknu á rík­is­sjóður ekki eign­ar­hlut í Reit­um.

Meðal verðmætustu eigna Reita eru verslunarmiðstöðin Kringlan.

Öll sam­þykkt til­boð voru boðin fjár­festum á sama geng­i, þar sem lægsta sam­þykkta gengi réð sölu­geng­inu. Sam­þykkt til­boð sem bár­ust á sama gengi og sölu­gengi voru skert sem nam umfram­eft­ir­spurn, að því er fram kom í til­kynn­ingu Lands­bank­ans, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafn­verð­i ­sem var lág­marks­fjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboð­inu. Til­boðum sem bár­ust á lægra gengi en sölu­gengi var hafn­að.

Við­skipta­dagur vegna útboðs­ins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og afhend­ing­ar­dagur vegna við­skipt­anna var mið­viku­dag­ur­inn 24. ágúst 2016.

Miklar eignir seldar á næst­unni

Lind­ar­hvoll á umtals­verðar eign­ir, en félagið var stofnað 15. apríl til að ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu, eftir því sem við á, á eignum rík­is­sjóðs, sem kom til rík­is­ins frá slita­búum hinna föllnu banka að stórum hluta.

Meðal eign­ar­hluta eru hluti í eft­ir­töldum félög­um: 

ALMC eign­ar­halds­fé­lag ehf.

AuÐur I fag­fjár­fest­inga­sjóður

Bru II Venture Capi­tal Fund

DOHOP

Eim­skip hf.

Eyr­ir­ In­vest hf.

Inter­net á Íslandi

Klakki ehf.

Lyfja hf.

Nýi Norð­ur­turn­inn ehf.

S Hold­ing ehf.

SAT eign­ar­halds­fé­lag hf.

SCM ehf.

Sím­inn hf.

Stærstu eig­endur Reita eru líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, eins og áður seg­ir, með 14,1 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna með 12,9 pró­sent, LSR A-deild 10,2 pró­sent, Arion banki með 8,3 pró­sent, LSR B-deild 3,7 pró­sent og líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi með 2,5 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóðir fara með meira en helm­ing hluta­fjár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None