Rifta samningi við Fáfni um skipasmíði og krefjast bóta

Norsk skipasmíðastöð hefur rift samningi við íslenska félagið Fáfni Offshore um smíði skips fyrir það. Hún ætlar að krefjast bóta og selja skipið, sem er ekki fullbúið, upp í skuldir. Sápuóperan um Fáfni Offshore heldur áfram.

Polarsyssel er eina skip Fáfnis Offshore sem er fullsmíðað og með verkefni.
Polarsyssel er eina skip Fáfnis Offshore sem er fullsmíðað og með verkefni.
Auglýsing

Skipa­smíða­stöð­in Havy­ard Ship Technology hefur rift samn­ingi við íslenska félagið Fáfni Offs­hore um smíði á nýju fimm millj­arða króna skipi þess. Áður hafði afhend­ingu skips­ins verið frestað tví­veg­is, síð­ast til apríl 2019. Nú grein­ir norski vef­ur­inn Maritime frá því að samn­ingum við Havy­ards við Fáfni Offs­hore hafi verið rift og að skipa­smíða­stöðin muni krefj­ast bóta fyrir það tap sem hún telur sig hafa orðið fyrir vegna máls­ins. Havy­ard mun einnig krefj­ast þess að skip­ið, sem er ekki full­bú­ið, verði selt upp í skuld­ir.

Skipið sem um ræð­ir, Fáfn­ir Vik­ing, er í eigu Polar Maritime ehf., dótt­ur­fé­lags Fáfn­is Offs­hore. Fáfni hefur ekki tek­ist að tryggja skip­inu, sem átti að nýt­ast við þjón­ustu við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, nein verk­efni og þar með hefur ekki feng­ist láns­fjár­mögn­un til að klára smíði þess. Fáfn­ir Offs­hore tap­aði tveimur millj­örðum króna á árinu 2015 og virði helstu eignar þess, olíu­þjón­ustu­skips­ins Pol­ar­sys­sel, var færð niður um 785 millj­ónir króna á því ári vegna erf­iðra mark­aðs­að­stæðna. Íslenskir bankar og líf­eyr­is­sjóðir hafa tapað háum fjár­hæðum á fjár­fest­ingu og lánum til Fáfn­is Offs­hore.

Var sætasta stelpan á ball­in­u...árið 2014

Síðla árs 2014 var Fáfn­ir Offs­hore ein sætasta stelpan á fjár­fest­ing­ar­ball­inu. Íslenskir fjár­fest­ar, aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir í gegnum fram­taks­sjóði, keppt­ust við að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu fyrir millj­arða króna. Það var „hiti“ í kringum fyr­ir­tækið og menn létu það ekk­ert mikið á sig fá þótt heims­mark­aðs­verð á olíu hefði hrunið úr um 115 dölum á tunnu sum­arið 2014 í um 60 dali í jan­úar 2015. Her­mann Þór­is­son, fram­kvæmda­stjóri Horns II, tal­aði meira að segja um það í við­tali við Mark­að­inn, fylgi­blað Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í þeim mán­uði að Fáfnir væri „fyr­ir­tæki sem mjög áhuga­vert væri að sjá fara á mark­að. Vissu­lega eru erf­iðar mark­aðs­að­stæður í olíu­geir­anum akkúrat í dag, en þær voru mjög góðar fyrir sex mán­uð­u­m.“ Her­mann sagði að ef ytri aðstæður myndu batna þá gæti Fáfn­ir Offs­hore vel verið nógu stórt til að fara á mark­að.

Auglýsing

Ári síðar var heims­mark­aðs­verð á olíu komið niður í 26,7 dali á tunnu. Það er tæp­lega fjórð­ungur þess sem það var sum­arið 2014. Þum­al­putta­reglan er sú að til að olíu­vinnsla á norð­lægum slóðum borgi sig þurfi heims­mark­aðs­verð á olíu að vera að minnsta kosti 60 dalir á tunnu. Tugir skipa sem gera út á sama markað og Fáfn­ir Offs­hore hefur verið lagt og fyr­ir­tækin sem eiga þau glíma nú við mik­inn rekstr­ar­vanda. Þá hefur olíu­borpöllum í Norð­ur­sjó fækkað mik­ið. 

Verðið á olíu hefur hækkað umtals­vert að und­an­förnu og er nú um 55 dalir á tunnu. Það dugar hins vegar ekki til að kveikja aftur í olíu­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó, sem Fáfn­ir Offs­hore er ætlað að þjón­usta. 

Skip sem kost­aði yfir fimm millj­arða

Fáfn­ir Offs­hore á skip­ið Pol­ar­sys­sel, sem kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unn­ar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða til tíu ára um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Sá samn­ingur gengur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefur skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó. 

Í októ­ber 2015 var gerður nýr samn­ingur við sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða. Hann átti að tryggja Pol­ar­sys­sel verk­efni í níu mán­uði á ári og var síðan stað­festur í febr­úar 2016. Þessi samn­ingur er eina verk­efni Fáfn­is Offs­hore sem stendur og því gríð­ar­lega mik­il­væg­ur.  

Fáfn­ir Offs­hore var stór­huga verk­efni og fyr­ir­tækið ætl­aði sér stóra hlut­i. ­Stein­grím­ur Erl­ings­son, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, þykir mjög dríf­andi eld­hugi og náði að sann­færa ansi marga á árinu 2014 um þau tæki­færi sem biðu handan við horn­ið. Í nóv­em­ber 2014 var Stein­grímur við­mæl­andi á fræðslu­fundi VÍB, sem er hluti af Íslands­banka. Þar sagði hann meðal ann­ars að Fáfn­ir Offs­hore stefndi að því að vera með 3-4 skip í rekstri á næstu árum. 

Fund­ur­inn var aðgengi­legur á net­inu í rúmt ár eftir að hann fór fram. Eftir að mál­efni Fáfn­is Offs­hore komu aftur í umræð­una fyrir nokkrum vikum var hann hins vegar fjar­lægður af net­inu.

Afhend­ing á seinna skipi Fáfnis tafð­ist og tafð­ist

Sam­hliða lækk­and­i ol­íu­verð­i jókst vandi Fáfn­is Offs­hore jafnt og þétt. Kjarn­inn greindi frá því í byrjun des­em­ber 2015 að afhend­ing á Fáfni Vik­ing, skipi í eigu Fáfn­is Offs­hore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars 2016 en sam­kvæmt sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­inn­ar Hay­vard Ship Technologies AS var síðar ákveðið að afhend­ing þess myndi frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017. Í fyrra­haust var enn ákveðið að fresta afhend­ingu skips­ins, nú til apríl 2019. Því sam­komu­lagi fylgdi þó krafa um að gengið yrði frá fyr­ir­fram­greiðslu á hluta ­kaup­verðs­ins í byrjun jan­úar 2017. Það gekk ekki eftir og því hef­ur Hay­vard nú rift samn­ingum við Fáfni Offs­hore, ætlar að sækja bætur og selja skip­ið, sem er að hluta byggt, upp í skuld­ir. 

Stein­grími Erl­ings­syni, stofn­anda Fáfn­is Offs­hore, var sagt upp störfum sem for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins fyrir rúmu ári. Heim­ildir Kjarn­ans herma að miklir sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið milli stjórnar Fáfn­is Offs­hore og Stein­gríms í aðdrag­anda upp­sagnar hans.

Stein­grím­ur, sem á enn 21 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá, stofn­aði Fáfni Offs­hore árið 2012. Hann reyndi í jan­úar 2016 að kaupa hlut tveggja stærstu hlut­hafa Fáfn­is Offs­hore, sjóð­anna Akurs og Horns II, sem eru í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, banka og VÍS, fyrir brota­brot af því fé sem sjóð­irnir hafa lagt í fyr­ir­tæk­ið. Sam­kvæmt fréttum DV um málið hafði Stein­grímur tryggt sér fjár­mögnun hjá kanadíska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Prospect Fin­ancial Group. Hall­dór J. Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­banka Íslands, er starfs­mað­ur Prospect Fin­ancial Group. Til­boð­i ­Stein­gríms var hafn­að.

Íslenskir bankar tapa á íslensku olíu­út­rásinni

Íslenskir bankar veðj­uðu umtals­verðum fjár­munum á útrás í norska olíu­iðn­að­inn. bæði Arion banki og Íslands­banki lán­uðu sam­tals um 5,7 millj­arða króna á árunum 2013 og 2014 til norska félags­ins Havila Shipp­ing ASA, sem er á leið í gjald­þrot.

Íslands­­­banki hefur ekki viljað upp­­lýsa um hvert ætlað tap bank­ans á lánum til Havila er. Í árs­­reikn­ingi bank­ans, sem birtur var í febr­­úar 2016,  kom fram að bank­inn hefði bók­að virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­­­iðn­­­að­inn. ­Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­­­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til Fáfn­is Offs­hore, sem Íslands­banki fjár­magn­aði. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­­­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja ­sem þjón­usta olíu­­­iðn­­­að­inn. Alls voru útlán til við­­­skipta­vina 665,7 millj­­­arð­­­ar­ króna um síð­­­­­ustu ára­­­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­­­örðum króna.

Í árs­­reikn­ingi Arion banka fyrir árið 2015 kom fram að bank­inn hafði fært veru­­­lega var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu á lán til­ er­­­lendra fyr­ir­tækja í þjón­ust­u­­­starf­­­semi tengdri olíu­­­­­leit, í kjöl­far erf­ið­­­leika á þeim mark­aði, á síð­­­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Ekki var til­­­greint um hversu mikið lánið var fært niður en þar kom hins vegar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­­­arður króna á árinu. Í af­komutil­kynn­ingu Arion banka sagði að nið­­­ur­­­færsl­­­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lánum sem bank­inn ­yf­­­ir­tók frá AFL –spari­­­­­sjóði á árinu 2015.

Sam­­­kvæmt árs­­­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð ­niður á öðrum árs­fjórð­ungi síð­­­asta árs. Um þriggja millj­­­arða króna var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færsla var færð á efna­hags­­­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú ­nið­­­ur­­­færsla er því að mestu leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn ­reiknar með miklum afföllum vegna þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None