Stofnandi Blackwater á leynilegum fundi með Rússum

Rannsókn á tengslum baklands Trumps við Rússa er í fullum gangi, og ný púsl bættust við í gær.

Erik Prince, stofnandi Blackwater.
Erik Prince, stofnandi Blackwater.
Auglýsing

Erik Prince, stofn­andi einka­hers­ins umdeilda Blackwa­ter, sat fund með trún­að­ar­mönnum Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seta, hinn 11. jan­úar síð­ast­lið­inn, og var mark­miðið með fund­inum að koma upp sam­skipta­leið á milli Rússa og hóps valda­manna í Banda­ríkj­un­um, sem styður aukin sam­skipti við Rúss­land, einkum á sviði varn­ar­mála og við­skipta. Boston Globe greindi frá þessu í gær.

Fundað í Ind­lands­hafi

Fund­ur­inn fór fram á Seychelles eyjum í Ind­lands­hafi, níu dögum áður en Trump tók form­lega við sem for­seti Banda­ríkj­anna, og var yfir honum mikil leynd, að því er fram kom í Boston Globe

Umfjöllun blaðs­ins byggir á við­tölum við emb­ætt­is­menn í Banda­ríkj­un­um, Evr­ópu og Sam­ein­uðu arab­ísku fur­st­dæm­un­um, en þeir eru allir sagðir búa  yfir upp­lýs­ingum um fund­inn, og þær upp­lýs­ingar er nú til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Banda­ríkj­un­um. Áður en fund­ur­inn fór fram hitt­ust aðil­ar, sem komu fund­inum á, í New York og lögðu á ráð­in.

Auglýsing

Alrík­is­lög­reglan FBI er sögð vera að rann­saka til­efni fund­ar­ins og tengsl hans við aðra atburði þar sem tengslin milli Rússa og ein­stak­linga í bak­landi Don­alds Trumps, Banda­ríkja­for­seta, einkum í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum í fyrra, eru í brennid­epli. 

Á meðal þess sem er til rann­sóknar er hvort sam­skipti við Rússa frá Banda­ríkj­unum hafi leitt til þess að gerðar voru tölvu­árásir á Banda­rík­in, þar á meðal fram­boð Hill­ary Clint­on, fram­bjóð­anda Demókrata í for­seta­kosn­ing­un­um.



Prince er einn af helstu stuðn­ings­mönnum Don­alds Trumps og hefur opin­ber­lega lýst því yfir að hann styðji stefnu hans í varn­ar­mál­um.



Rússa­rann­sókn

Eins og fram hefur komið eru fundir Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um, með áhrifa­mönnum í Banda­ríkj­unum á meðal þeirra atburða sem eru sér­stak­lega til rann­sókn­ar. 

Hann fund­aði í nokkur skipti með Jeff Sessions, sem nú er dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Mich­ael Flynn, sem gengdi stöðu þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa frá 20. jan­úar til 13. febr­ú­ar, þegar hann var lát­inn taka pok­ann sinn. Ástæðan var sú að Flynn ræddi við­skipta­þving­anir Banda­ríkj­anna gegn Rússum við sendi­herrann, en hann hafði áður upp­lýst vara­for­set­ann, Mike Pence, um að það hefði ekki borið á góma í sam­tölum þeirra.

Michael Flynn með Jared Kushner, tengdasyni Donalds Trump, Bandríkjaforseta. Mynd: EPA.

Engin frið­helgi?

Flynn hefur nú komið þeim skila­boðum til yfir­valda í Banda­ríkj­unum að hann sé til­bú­inn að tala og veita upp­lýs­ing­ar, gegn því að fá frið­helgi þannig að ekki sé hægt að sækja hann til saka. FBI, CIA og Banda­ríkja­þing hafa hins vegar ekki orðið við þessu og ekki liggur fyrir enn­þá, hvern­ig Sessions gekk hins vegar svo langt að neita því eið­svar­inn frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings, að hann hefði ekki átt í neinum sam­skiptum við Rússa í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber. 

FBI bjó hins vegar yfir gögnum um fundi Sessions og Kis­lyak og stað­festi Sessions síðar að fund­irnir hefðu farið fram. Hann sagði síð­ann að hann hefði mis­skilið spurn­ing­una um þetta í þing­inu, og því hefði hann sagt að hann hefði ekki verið í neinum sam­skiptum við Rússa.



Blackwa­ter eitt púslið

Blackwa­ter einka­her­inn komst í kast­ljósið í Íraks­stríð­inu, þar sem hann fékk stór hlut­verk í ýmsum aðgerð­um, í sam­starfi við Banda­ríkja­her. Þá hefur Blackwa­ter einnig starfað mikið fyrir olíu­iðn­að­inn í Banda­ríkj­unum og sinnt örygg­is­gæslu víða um heim­inn fyrir hann. 

Blackwa­ter komst meðal ann­ars í frétt­irnar fyrir að bera ábyrgð á pynt­ingum og morðum í Írak. Tveir liðs­menn þessa einka­hers voru sak­felldir fyrir að myrða óbreytta borg­ara. 

Prince sagði í opin­berri yfir­lýs­ingu í gær að þessi fundur hefði ekk­ert tengst fram­boði Trumps, og þaðan af síður verið mik­il­vægur fyrir ein­hvers konar teng­ingu milli ríkj­anna. Hann skýrði hins vegar ekki nákvæm­lega hvað hefði verið rætt, en gaf í skyn að leyni­þjón­ustu­stofn­anir Banda­ríkj­anna ættu að eyða tíma sínum í eitt­hvað annað en að fylgj­ast með fundum eins og þess­um. 

For­svars­menn FBI og CIA hafa sagt, að sá tími verði tek­inn í rann­sókn­ina á þessum hlutum sem þarf. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None