Almenningur heldur uppi frjálsri fjölmiðlun

Styrktu sjálfstæða íslenska fjölmiðlun

Lesendur Kjarnans geta kosið að greiða fast mánaðarlegt framlag til fjölmiðilsins til að efla starfsemi hans enn frekar. Markmiðið er upplýstari, gagnrýnni og málefnalegri umræða. Hjálpið okkur við að ná því markmiði með því að ganga til liðs við Kjarnasamfélagið.


Algengar spurningar

Athugasemdir og fyrirspurnir berist til takk@kjarninn.is

Hvað?

Margir lesendur hafa sett sig í samband við Kjarnann og óskað eftir því að fá að greiða fyrir þá þjónustu sem hann veitir. Vegna þessa, og metnaðar okkar til að bæta verulega í, höfum við ákveðið að bjóða áhugasömum upp á að greiða mánaðarlegt framlag til Kjarnans.

Af hverju?

Til að styðja við frjálsa, opna, gagnrýna og óháða fjölmiðlun. Öll framlög fara í að efla starfsemi Kjarnans: ráða fleira fólk, auka fréttaþjónustu og fjölga þeim fjölmiðlavörum sem við bjóðum upp á. Því hærri framlög, því stærri, metnaðarfyllri og umsvifameiri Kjarni.

Er aðeins hægt að greiða með kreditkorti?

Nei, við tökum einnig við debitkortum. Hafir þú áhuga á því að greiða með öðrum leiðum þá vinsamlegast sendu okkur póst á takk@kjarninn.is og við finnum leið sem hentar þér.

Hvernig?

Með því að skrá sig fyrir föstu mánaðarlegu framlagi til Kjarnans. Hægt er að velja fjórar mismunandi leiðir: að greiða 690 krónur, 1.290 krónur,  1.990 krónur eða 9.900 krónur. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega. Hægt er að segja upp hvenær sem er með því að senda póst á takk@kjarninn.is.