Sigmundur Davíð ræddi ekki við neinn um nýjan spítala

Sigmundur
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ræddi hvorki við Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra né stjórn­endur Lands­spít­al­ans áður en að opin­ber­aði þann vilja sinn í gær að byggja nýjan Lands­spít­ala við Víf­ils­staði í Garðabæ í stað þess að hann verði byggður við Hring­braut, þar sem spít­al­inn stendur í dag. Þetta sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Lands­spít­al­ans, í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Sig­mundur skrif­aði grein á vef­síðu sína í gær þar sem hann lýsti yfir þeim vilja sínum að stjórn­völd skoði hvort ekki sé best að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði í Garða­bæ. Í Morg­un­blað­inu í gær var rætt við bæj­ar­stjór­ann í Garðabæ um mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Bæj­ar­yf­ir­völd þar segj­ast reiðu­búin í sam­starf um bygg­ingu nýs spít­ala þar, og hægt sé að liðka fyrir mál­inu á ýmsan hátt. 

Auglýsing

Sig­mundur Davíð sagð­ist í grein sinni vera mjög jákvæður gagn­vart þess­ari hug­mynd. „Að mínu mati ber stjórn­völdum að bregð­ast við þessu til­boði Garða­bæj­ar, taka því fagn­andi og skoða hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Með því væri hægt að byggja spít­al­ann hrað­ar, á hag­kvæm­ari hátt og miklu, miklu bet­ur.“ 

Hann sagði einnig að margt muni vinna með ef spít­al­inn verði byggður á nýjum stað. Ekki bara staða rík­is­sjóðs sem hafi batn­að. „Verð­mæti fast­eigna og lóða í miðbæ Reykja­víkur hefur hækkað gríð­ar­lega frá því að síð­ast var lagt mat á stað­setn­ingu spít­al­ans. Með því að selja hús­næði og lóðir gætu ríki og borg náð tug­millj­arða tekj­um. Þessar tekjur gæti rík­is­sjóður nýtt til að standa straum af umtals­verðum hluta bygg­ing­ar­kostn­aðar nýs spít­ala.“ 

Hægt væri að selja hús­næði og lóðir og nýta fjár­magn strax til að flýta fyrir fram­kvæmdum á nýjum stað þótt spít­al­inn myndi ekki flytja strax. „Einnig gæti ríkið veitt öðru fjár­magni, t.d. arði úr bönk­unum í spít­ala­bygg­ing­una þar til tekjur af sölu eigna við Hring­braut skil­uðu sér.“ Aðrar leiðir komi til greina en hvaða leið sem farin yrði „myndu tugir millj­arða skila sér í rík­is­sjóð við það að færa spít­al­ann. Pen­ingar sem ekki yrðu til ella.“ Þá pen­inga mætti nýta í aðra inn­viða­upp­bygg­ingu, ekki síst á lands­byggð­inn­i. 

Páll brást við skrifum for­sæt­is­ráð­herra með pistli á heima­síðu Lands­spít­al­ans í gær þar sem hann sagði m.a. :„Við þessar aðstæður er alger­lega óþol­andi að heyra enn úrtöluraddir um upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Hring­braut. Hér er alvöru­mál á ferð­inni sem snýst um örygg­is­mál allra lands­manna. Eftir 15 ára yfir­legu hefur stað­setn­ing spít­al­ans verið ákveðin og þeir sem kjósa að hleypa þessu máli upp nú þegar fram­kvæmdir eru hafnar og mál­inu hefur verið siglt í höfn verða að gera sér grein fyrir ábyrgð sinn­i.“

Í Viku­lok­unum í dag var Páll spurður um hvort hann viti til þess að Sig­mundur Davíð hefði rætt hug­myndir sínar við heil­brigð­is­ráð­herra áður en hann setti þær fram. Páll sagð­ist ekki vita til þess að hug­mynd­irnar hefðu verið ræddar við neinn. Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­endenda, var einnig gestur í þætti dags­ins. Hann sagði að í sið­mennt­uðu landi myndu ummæli Sig­mundar Dav­íðs, og inn­grip hans inn á verk­svið ann­ars ráð­herra, þýða stjórn­ar­kreppu. 

Krist­ján Þór hefur margoft sagt að upp­bygg­ing nýs Lands­spít­ala verði við Hring­braut og það er sú stefna sem rík­is­stjórnin vinnu eft­ir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sig­mundur Davíð viðrar skoð­anir sínar á því að byggja nýjan Lands­spít­ala ann­ars stað­ar. Það gerði hann einnig í 1. apríl í fyrra. Þá sagði hann í fréttum RÚV að hann teldi ástæðu til að kanna hvort skyn­sam­legt væri að reisa nýjan Lands­spít­ala á lóð Rík­is­út­varps­ins. Skoða ætti hvort skyn­sam­legt væri að selja fast­eignir spít­al­ans og „ná þannig inn jafn­vel tugum millj­arða strax sem hægt væri að nota til þessa að setja upp­bygg­ingu nýs spít­ala alveg á fullt á nýjum stað.“

Krist­ján Þór hafn­aði þeim hug­myndum í ræðu sinni á árs­fundi Lands­spít­al­ans nokkrum vikum síðar og sagði það enga spurn­ingu í sínum huga að nýbygg­ingar Lands­spít­al­ans muni rísa við Hring­braut. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None