Breska þingið kaus með Brexit

Mikill meirihluti þingmanna í neðri deild breska þingsins kaus með frumvarpi Theresu May um að 50. grein Lisabon-sáttmálans yrði virkjuð.

Theresa May varð forsætisráðherra Bretlands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um úrsögn Breta síðasta sumar.
Theresa May varð forsætisráðherra Bretlands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um úrsögn Breta síðasta sumar.
Auglýsing

Neðri deild breska þings­ins sam­þykkti frum­varp Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um að 50. grein Lisa­bon-sátt­mál­ans yrði virkjuð og þannig farið fram á úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Atkvæða­greiðslan fór fram í þing­inu í gær­kvöldi en síð­asta sumar hafði rík­is­stjórn David Camer­on, for­vera May í emb­ætti, efnt til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort Bretar vilji vera áfram í ESB.

Alls voru það 498 þing­menn sem kusu með frum­varpi for­sæt­is­ráð­herr­ans en 114 þing­menn kusu á móti. Áköf umræða hefur farið fram í þing­inu und­an­farna tvo daga síðan frum­varpið var lagt fram. Bresk stjórn­völd þurfa þess vegna ekki að breyta áætl­unum sínum um að fara fram á úrsögn fyrir lok mars á þessu ári.

Ekki stóð til að gefa breska þing­inu atkvæð­is­rétt um Brexit enda hafði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla farið fram og bresk stjórn­völd litu svo á að ekki þyrfti einnig að óska eftir stuðn­ingi þings­ins. Hæsti­réttur í Bret­landi komst svo að þeirri nið­ur­stöðu undir lok jan­úar að þingið yrði að veita stjórn­völdum umboð til þess að fara fram á úrsögn úr ESB.

Auglýsing

Í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar síð­asta sumar voru stjórn­mála­flokk­arnir klofnir í afstöðu sinni til já/­nei spurn­ing­ar­innar sem leggja átti fyrir Breta. Eftir að nið­ur­staðan lá fyrir sagði David Cameron af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Íhalds­flokks­ins enda hafði hann verið ein­dreg­inn tals­maður þess að Bretar ættu áfram að taka þátt í Evr­ópu­sam­band­inu.

Í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar í þing­inu fylgdu þing­menn flokkslínum að mestu, með fáeinum und­an­tekn­ing­um. Í breskum fjöl­miðlum er helst fjallað um klofn­ing Verka­manna­flokks­ins en Jer­emy Cor­byn, for­maður flokks­ins, hafði óskað eftir því að allir þing­menn flokks­ins myndu kjósa með frum­varp­inu. Fimmt­ungur þing­manna flokks­ins (47 af 229 þing­mönn­um) hunds­aði þau boð og greiddi atkvæði gegn úrsögn. Aðeins einn íhalds­þing­maður kaus gegn frum­varp­inu (af 329 þing­mönn­um), sjö frjáls­lyndir demókratar (af níu þing­mönn­um) og 50 þing­menn þjóð­ar­flokks Skota (af 54 þing­mönn­um).

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None