May lofar Brexit-beiðni fyrir lok mars 2017

Bretland ætlar að segja sig úr Evrópusambandinu áður en mars 2017 er úti.

Theresa May í pontu á flokksþingi Íhaldsflokksins í Bretlandi í dag.
Theresa May í pontu á flokksþingi Íhaldsflokksins í Bretlandi í dag.
Auglýsing

Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, seg­ist ætla að virkja 50. grein Lisa­bon-sátt­mál­ans fyrir lok mars á næsta ári. Eftir því hefur verið beðið að bresk stjórn­völd hefji útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu form­lega með því að óska eftir því við fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins að fá að hætta.

50. grein Lisa­bon-sátt­mál­ans fjallar um það ferli sem fer í gang ef ríki óskar þess að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Bretar greiddu atkvæði um það í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu. Hið svo­kall­aða Brexit hefur hins vegar gengið hægar en búist var við. 

Á flokks­þingi Íhalds­flokks­ins í Bret­landi sagði May að aðskiln­aður Breta frá Evr­ópu­sam­band­inu verði alger. Verði það þannig að Bretar muni ekki fá aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu án þess að hlýða reglum um frjálst flæði fólks yfir landa­mæri, verði það það þannig. Það sé mik­il­væg­ara að Bret­land stjórni landa­mærum sínum en að hafa aðgang að sam­eig­in­lega mark­að­in­um.

Auglýsing

Ný rík­is­stjórn Ther­esu May tók við af rík­is­stjórn David Cameron eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una. Hún hefur hingað til ekki viljað gefa út nákvæma dag­setn­ingu á því hvenær Bret­land hygg­ist óska eftir útgöngu úr ESB. Fyrir því liggja margar tækni­legar ástæður enda er það öllum ljóst að gríð­ar­lega flókið verk­efni er að afnema Evr­ópu­lög í Bret­landi eða aðlaga þau að breyttum veru­leika.

Rík­is­stjórn May hefur þess vegna ítrekað óskað eftir lengri tíma til þess að ganga frá mál­unum heima­fyrir þvert á það sem helstu leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa farið fram á. Á meg­in­land­inu er það talið vera lyk­il­at­riði fyrir fram­tíð Evr­ópu­sam­bands­ins að aðskiln­að­ur­inn við Bret­land gangi sem hrað­ast fyrir sig.

Um leið og Bret­land óskar form­lega eftir útgöngu úr ESB hefst tveggja ára ferli þar sem samið verður um þær leiðir sem farnar verða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None