Mögulega mest smitandi afbrigðið hingað til

XBB.1.5, nýtt undirafbrigði ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar er farið að valda töluverðum áhyggjum í Bandaríkjunum. Sumir vísindamenn telja að það sé mest smitandi afbrigði veirunnar sem veldur COVID-19 hingað til.

Maður gengur framhjá minnisvarða um fórnarlömb COVID-19 í Bandaríkjunum.
Maður gengur framhjá minnisvarða um fórnarlömb COVID-19 í Bandaríkjunum.
Auglýsing

Fyrst kom alfa. Svo beta og þá gamma og delta. Fyrir ári var svo komið að ómíkron og þá fór allt á hlið­ina. Enn einu sinni. Ómíkron var meira smit­andi en fyrri afbrigði SAR­S-CoV-2 kór­ónu­veirunnar en olli ekki jafn alvar­legum ein­kenn­um, sér­stak­lega ekki þar sem millj­ónir manna höfðu verið bólu­settar gegn veirunni.

Ómíkron, rétt eins og afbrigðin sem það yfir­bug­aði, er stöðugt að breyt­ast. Þró­ast. Breyt­ing­arnar þurfa að vera ákveðið miklar svo talað sé um nýtt afbrigði og að því er ekki enn komið þótt nú sé hið óþjála und­ir­af­brigð­is­heiti XBB.1.5 á allra vörum enda bráðsmit­andi og jafn­vel það mest smit­andi hingað til vilja margir meina.

Það er þegar farið að valda usla í Banda­ríkj­unum og breið­ist þar hratt út. Einnig hafa til­felli greinst í Bret­landi sem og víð­ar.

Auglýsing

Þau ein­kenni sem XBB.1.5 veldur eru keim­lík þeim sem önnur und­ir­af­brigði ómíkron valda. Flestir finna fyrir flensu­líkum ein­kenn­um, fá hita, kvef og jafn­vel hósta.

XBB.1.5 þró­að­ist út frá afbrigð­inu XBB sem hóf að smit­ast manna á milli í sept­em­ber. Í frétta­skýr­ingu BBC segir að XBB hafi stökk­breyt­ingar sem auð­velda veirunni að kom­ast inn fyrir ónæm­is­varnir lík­am­ans. En XBB.1.5 er enn hæf­ara og getur bund­ist frumum lík­am­ans ólíkt fyr­ir­renn­ara sín­um. Og þannig getur það smit­ast hratt frá einum lík­ama til ann­ars.

Vís­inda­menn sem BBC ræðir við segja að veiran sé alltaf að þró­ast og stundum leiði það til þess að henni tekst að kom­ast með auð­veld­ari hætti fram­hjá vörnum lík­ama okk­ar. Þess vegna sé enn mjög mik­il­vægt að greina smit og rað­greina sýni til að sjá hvað í raun og veru er að ger­ast.

Mögu­lega varð XBB.1.5 til í lík­ama ein­hvers sem hafði smit­ast af tveimur ólíkum afbrigðum ómíkron.

Úr 4 pró­sentum í 40

Um 40 pró­sent af öllum COVID-til­fellum sem eru að grein­ast í Banda­ríkj­unum um þessar mundir eru af völdum XBB.1.5 og er afbrigðið því það útbreiddasta í land­inu í augna­blik­inu. Í byrjun des­em­ber voru aðeins um 4 pró­sent til­fella vegna þess svo aug­ljós­lega hefur það nú algjör­lega kaf­fært önnur afbrigði ómíkrón.

Síð­ustu vikur hefur sjúkra­húsinn­lögnum vegna COVID-19 fjölgað víða í Banda­ríkj­unum og stjórn­völd hafa dustað rykið af COVID-­prófum sem þau hvetja fólk með ein­kenni til að und­ir­gang­ast.

Líkt og með önnur afbrigði af veirunni hingað verður að telj­ast lík­legt, nær full­víst, að afbrigðið muni ber­ast landa á milli og til Íslands.

Fólk þarf að vera á varð­bergi

Vís­inda­menn sem BBC ræðir við segja XBB.1.5 ekki vekja sér­stakar áhyggjur umfram önnur afbrigði kór­ónu­veirunn­ar. Að minnsta kosti ekki enn. Fátt bendir til þess að það valdi alvar­legri veik­indum en þau sem hafa verið á sveimi síð­ustu miss­eri. Verndin gegn veik­indum felist aðal­lega í bólu­setn­ing­um. Ástæða er þó til að vera á varð­bergi, ekki síst hvað varðar við­kvæma hópa, aldr­aða og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, sem hafa ekki fengið jafn­mikla vörn og aðrir með bólu­setn­ingum sín­um.

Auglýsing

Enn er margt á huldu um hegðun XBB.1.5 og því þurfa heil­brigð­is­yf­ir­völd enn og aftur að vera á tán­um. Gríð­ar­lega mik­il­vægt er að fylgj­ast með þróun far­ald­urs­ins á svæðum á borð við Kína þar sem strangar sam­komu­tak­mark­anir hafa verið í gildi frá upp­hafi far­ald­urs­ins og allt þar til nýver­ið. Kín­versk yfir­völd hafa hins vegar ekki deilt raun­tíma upp­lýs­ingum um rað­grein­ingar og útbreiðslu líkt og WHO hefur ítrekað hvatt til. Það hefur orðið til þess að mörg ríki hafa ákveðið að setja ferða­tak­mark­anir á kín­verska ferða­menn, m.a. að skylda þá til að fram­vísa nei­kvæðu COVID-­prófi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent