Segja skimun kínverskra ferðamanna ekki byggða „á neinum vísindalegum rökum“

Kínversk stjórnvöld segja það með öllu óásættanlegt að mörg ríki hafi sett á takmarkanir, m.a. kröfu um skimun fyrir COVID-19, á kínverska ferðamenn.

Fólk dansaði af lífs og sálarkröftum á pönkhátíð í Peking í gær. Enda loks búið að aflétta ströngum samkomutakmörkunum í Kína.
Fólk dansaði af lífs og sálarkröftum á pönkhátíð í Peking í gær. Enda loks búið að aflétta ströngum samkomutakmörkunum í Kína.
Auglýsing

„Sum lönd hafa inn­leitt tak­mark­anir sem bein­ast aðeins gegn kín­verskum ferða­mönn­um. Þetta er ekki byggt á neinum vís­inda­legum grunni og sumar þess­ara aðgerða eru óásætt­an­leg­ar.“

Þetta segir Mao Ning, tals­kona utan­rík­is­ráðu­neytis Kína eftir að mörg ríki, m.a. nokkur Evr­ópu­ríki, tóku upp á því að krefja kín­verska ferða­menn um nei­kvæð COVID-­próf. Til þess­ara aðgerða hefur verið gripið þar sem ný bylgja smita er að rísa í Kína eftir að hörðum sam­komu­tak­mörk­unum í land­inu var aflétt fyrir nokkrum vik­um. Mao Ning segir að mögu­lega muni kín­versk stjórn­völd grípa til „gagn­að­gerða“.

Auglýsing

Nokkrir leið­togar þeirra þjóða sem sett hafa tak­mark­anir á ferða­menn frá Kína hafa svarað fyrir aðgerðir sínar eftir að ummæli Mao Ning féllu. „Rík­is­stjórn mín er að gegna því hlut­verki sínu að vernda franska borg­ara og biðja [kín­verska ferða­menn] um COVID-­próf,“ segir Elisa­beth Borne, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands.

Ítölsk stjórn­völd voru þau fyrstu til að taka upp skimun eftir kór­ónu­veirunni meðal kín­verskra ferða­manna við komu þeirra til lands­ins. Sú skimun hófst 28. des­em­ber. Banda­ríkin fylgdu í kjöl­farið og hafa boðað sam­bæri­lega skimun frá 5. jan­ú­ar. Frakk­ar, Spán­verjar og Bretar hafa svo einnig ákveðið að gera slíkt hið sama. Og fleiri ríki hafa bæst í hóp­inn allra síð­ustu daga.

Aðgerð­irnar eru þó mis­jafnar milli landa. Í sumum þurfa kín­verskir ferða­menn að fram­vísa nei­kvæðu COVID-­prófi við komu til áfanga­staða sinna en í öðrum þurfa þeir að und­ir­gang­ast slíkt próf við kom­una.

Í Frakk­landi var síð­ari kost­ur­inn val­inn. Franskir heil­brigð­is­starfs­menn munu því taka PCR-­próf af kín­verskum far­þeg­um. Rað­greina á svo þau sýni til að fylgj­ast með hvaða afbrigði eru á ferð­inni og þá mögu­lega hvort að ný afbrigði séu að dúkka upp í Kína þar sem kór­ónu­veiran SAR­S-CoV-2 er talin hafa orðið til fyrir rúm­lega þremur árum.

Kínverskir ferðamenn þurfa við komuna til nokkurra landa að framvísa neikvæðu COVID-prófi eða gangast undir slíkt. Þannig er því m.a. farið í Suður-Kóreu. Mynd: EPA

„Við viljum ganga úr skugga um að það séu engin ný afbrigð­i,“ segir Borne. „Við erum að gera rað­grein­ingar til að fylgja reglum Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­inn­ar.“

WHO hefur nú í tvígang á allra síð­ustu dögum hvatt kín­versk stjórn­völd til að veita raun­tíma­upp­lýs­ingar um far­ald­ur­inn í land­inu. Þær upp­lýs­ingar sem hafa borist síð­ustu vikur eru tak­mark­aðar og sýna í raun engan veg­inn fram á þann veru­leika sem þykir blasa við í lík­húsum og á sjúkra­hús­um. Myndir af troð­fullum bráða­mót­tökum sjúkra­húsa m.a. í Pek­ing hafa birst í fjöl­miðlum síð­ustu daga. WHO hefur líka kallað eftir því að rað­grein­ingar verði gerðar í Kína og þeim upp­lýs­ingum deilt.

Ekki hefur enn verið tekin ákvörðum um hvort að kín­verskir ferða­menn verða skimaðir við kom­una til Íslands eða þeir beðnir um að fram­vísa nei­kvæðum próf­um. Hins vegar gæti það breyst bráð­lega. Sótt­varna­læknir hefur sagt að hingað til hafi íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd fylgt ákvörð­unum Evr­ópu­sam­bands­ins í þessum efn­um. Sam­eig­in­leg stefna hefur ekki verið mörkuð innan ESB en til hennar hefur þó verið hvatt, m.a. frá ítölskum stjórn­völd­um. Þau eru vissu­lega mjög brennd af sinni reynslu. Þar braust far­ald­ur­inn fyrst út í Evr­ópu í upp­hafi árs 2020. Sjúkra­hús yfir­fyllt­ust og þús­undir týndu lífi.

Óskað eftir neyð­ar­fundi

Í morgun kom svo fram í fréttum að Svíar hafa óskað eftir neyð­ar­fundi hjá Evr­ópu­sam­band­inu til að ræða við­brögð við fjölgun Covid-smita í Kína. Mik­ill ferða­hugur er hjá Kín­verjum og yfir­völd fjölda ríkja, þar á meðal hér á landi, íhuga aðgerðir á landa­mær­un­um.

Sér­fræð­ingar ESB í sjúk­dóma­vörnum eru sagðir hafa lýst því yfir á fundi nýverið að tak­mark­anir sem gripið hefur verið til gagn­vart kín­verskum ferða­mönnum séu ótíma­bærar og órétt­læt­an­leg­ar. Því var það nið­ur­staðan að fara ekki í sam­eig­in­legar aðgerðir en nokkur aðild­ar­ríki hafa ekki viljað taka neina sénsa. Þannig er því farið með Frakk­land og Ítalíu til dæm­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent