14 félög lækkuðu í virði en fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf þrefaldaðist á þremur árum

Þau félög sem skráð voru á Aðalmarkað Kauphallar Íslands í upphafi árs 2022 lækkuðu samanlagt mikið í virði í fyrra, eða um á fimmta hundrað milljarða króna. Nýskráningar gerðu það hins vegar að verkum að heildarvirði skráðra félaga hélst svipað.

Stærsta nýskráning síðasta árs var Alvotech, sem nú er verðmætasta félagið í Kauphöllinni.
Stærsta nýskráning síðasta árs var Alvotech, sem nú er verðmætasta félagið í Kauphöllinni.
Auglýsing

Árið 2022 var brös­ótt á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Alls hækk­uðu bréf í níu félögum sem skráð eru á Aðal­markað en lækk­uðu í 14 félög­um. Mest hækk­uðu bréf í Origo, alls um 37,5 pró­sent, en þá hækkun má rekja til þess að félagið seldi tæp­lega 40 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Tempo á um 28,5 millj­arða króna í októ­ber. Tæpum tveimur mán­uðum síð­ar, þann 1. des­em­ber, voru 25 millj­arðar króna greiddir út til hlut­hafa Origo vegna söl­unnar og hlutafé sam­hliða lækkað um 68 pró­sent. 

Útgerð­ar­fé­lögin tvö sem skráð eru á mark­að, Síld­ar­vinnslan (19,8 pró­sent hækk­un) og Brim (16 pró­sent hækk­un) hækk­uðu næst mest á síð­asta ári. Alvot­ech, sem rauk upp í virði eftir færslu yfir á Aðal­mark­að­inn í des­em­ber og er nú verð­mætasta félagið í Kaup­höll Íslands, jók virði sitt um 13,8 pró­sent frá skrán­ingu fyrr á árinu 2022. Virði Alvot­ech er nú um 423 millj­arðar króna eftir mikla hækkun í frekar litlum við­skiptum í gær. 

Auglýsing
Bréf í Iceland Seafood International lækk­uðu mest allra á Aðal­mark­aði, eða um 59,1 pró­sent í fyrra. Virði félags­ins fór úr tæp­lega 40 millj­örðum króna í um 16,5 millj­arða króna á einu ári. Þar á eftir kom Mar­el, sem árum saman var stærsta félagið í íslensku Kaup­höll­inni þar til Alvot­ech tók við þeirri stöðu í des­em­ber, sem lækk­aði um 43,9 pró­sent. Í upp­hafi árs­ins 2022 var virði Marel 663,5 millj­arðar króna. Við lok við­skipta á mánu­dag var virðið komið niður í tæp­lega 367 millj­arða króna. Því hefur virði bréfa í Marel lækkað um næstum 300 millj­arða króna á einu ári. Bréf í Kviku banka lækk­uðu um 29,1 pró­sent í fyrra og bréf í Arion banka, sem tvö­fald­að­ist í virði á árinu 2021, lækk­uðu um 21,3 pró­sent á síð­asta ári. 

Eina nýskráða félagið á Aðal­mark­aði sem lækk­aði á síð­asta ári var Nova, sem lækk­aði um 15,9 pró­sent frá skrán­ingu. Auk Nova og Alvot­ech var Ölgerð­in, sem hækk­aði um 10,4 pró­sent, skráð á Aðal­markað og Arn­aroq Miner­als, sem hækk­aði um 29,8 pró­sent, skráð á First North.

Fjöldi ein­stak­linga sem á bréf hefur þre­fald­ast

Heilt yfir eru nú 30 félög á Aðal­mark­aði og First North. Sam­eig­in­legt mark­aðsvirði allra skráðra hluta­bréfa var í árs­lok 2.545 millj­arðar króna, sam­an­borið við 2.556 millj­arða króna lok árs 2021. Sú lækk­un, ell­efu millj­arðar króna, er ein­ungis 0,4 pró­sent. Þá á hins vegar eftir að taka til­lit til áður­nefndra nýskrán­inga, en sam­an­lagt mark­aðsvirði þeirra fjög­urra félaga var um 450 millj­arðar króna við lok mark­aða á mánu­dag. Því lækk­aði virði þeirra félaga sem voru skráð á mark­aði í upp­hafi árs um rúm­lega 460 millj­arða króna á síð­asta ári. Úrvals­vísi­talan lækk­aði alls um 27 pró­sent og Heild­ar­vísi­talan um 17 pró­sent, en tólf pró­sent að teknu til­liti til arð­greiðslna. 

Auglýsing
Í sam­an­­tekt Nas­daq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina, vegna síð­­asta árs kemur fram að fjöldi ein­stak­linga sem á hluta­bréf hafi meira en þre­fald­ast á þremur árum. „Stærstu tíma­mótin urðu í sept­em­ber þegar vísi­tölu­fyr­ir­tækið FTSE Russell hækk­aði Ísland um gæða­flokk í flokk nýmark­aða og í kjöl­farið komu nýir erlendir aðilar að hluta­bréfa­mark­aðn­um. Þetta setur íslenska mark­að­inn á annan stall, er við­ur­kenn­ing á auknum gæðum og eykur trú­verð­ug­leika.“

Aðstæður á heims­vísu knúðu fram verð­lækk­anir eins og víð­ast hvar ann­ars­stað­ar, Mark­aðsvirði er þó nán­ast það sama í lok árs 2021 þar sem nýskrán­ingar vógu á móti lækk­un­um. Þá var með­al­velta á dag svipuð og árið á und­an, en fjöldi við­skipta jókst um 15% sem rekja má að nokkru leyti til bæði ein­stak­linga og erlendra fjár­festa. Þrátt fyrir áfram­hald­andi óvissu á mörk­uðum eru góðir hlutir að ger­ast. Áhugi á skrán­ingum hefur aldrei verið meiri og við eygjum aukna þátt­töku erlendra fjár­festa og ein­stak­linga.“

Velta með hluta­bréf dróst lít­il­lega sam­an, fór úr 1.071 millj­arði króna 2021 í 1.051 millj­arð króna í fyrra. Það er sam­dráttur upp á tvö pró­sent. Vert er að taka fram að veltan árið á undan var sú mesta sem verið hafði frá banka­hruni og hún jókst um 77 pró­sent milli 2020 og 2021.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent