WHO ýtir enn og aftur við Kínverjum – Nauðsynlegt að fá nýjustu gögn um COVID-bylgjuna

Kínversk yfirvöld hafa enn ekki brugðist við ákalli WHO um að afhenda rauntímagögn um þá skæðu bylgju COVID-19 sem gengur þar yfir. Takmarkanir hafa verið settar á kínverska ferðamenn í mörgum löndum.

Fjölmenni á strætum og torgum Peking eftir að núll-covid stefnunni var aflétt.
Fjölmenni á strætum og torgum Peking eftir að núll-covid stefnunni var aflétt.
Auglýsing

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­in, WHO, hefur enn á ný hvatt kín­versk stjórn­völd til að deila raun­tíma­gögnum um stöðu á far­aldri COVID-19 í land­inu. Stofn­unin segir slíka gagna­miðlun nauð­syn­lega svo að önnur ríki geti brugð­ist við með réttar upp­lýs­ingar að vopni. Eftir að svo­kall­aðri „núll-covid“ stefnu og með­fylgj­andi hörðum aðgerðum var hætt fyrir nokkrum vikum hefur kór­ónu­veiran tek­ist á flug í þessu fjöl­menna landi. Ótt­ast er að heil­brigð­is­kerfið ráði alls ekki við þann fjölda sem mun veikj­ast alvar­lega. Mörg lönd hafa þegar sett kín­verskum ferða­mönnum skil­yrði. Þannig gætu þeir þurft að gang­ast undir PCR-­próf við komu til þess­ara ríkja og þurft að sæta ein­angrun eða sótt­kví.

Auglýsing

„WHO hefur aftur beðið um að fá reglu­lega raun­tíma­gögn á stöðu far­ald­urs­ins, m.a. um rað­grein­ingu sýna, um inn­lagnir á sjúkra­hús, á gjör­gæslu­deildir og dauðs­föll,“ sagði í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar í gær eftir að for­svars­menn hennar höfðu átt fund með kín­verskum yfir­völd­um. Á fund­inum var ítrekað hversu mik­il­vægt væri að gögnum sem þessum yrði deilt svo að hægt væri að meta hættu, innan sem utan Kína.

Áhyggjur hafa vaknað utan Kína vegna stórrar bylgju sem þar gengur nú yfir eftir að losað var um tak­mark­anir til að fram­fylgja hinni ströngu „núll-covid“ stefnu. Kín­verjar hafa birt ákveðna töl­fræði en sam­kvæmt henni hafa aðeins fáir greinst með COVID-19 og skráð dauðs­föll einnig verið fá. Hins vegar eru vís­bend­ingar um og fréttir hafa verið fluttar af því að sjúkra­hús og lík­hús séu sum hver yfir­full.

Xi Jin­p­ing, for­seti Kína, hvatti þjóð sína í sjón­varps­ávarpi til að standa saman er nýr kafli í bar­átt­unni gegn far­aldri COVID væri haf­inn. Hann sagði að Kín­verjar hefðu nú þegar kom­ist yfir for­dæma­lausa erf­ið­leika í bar­áttu sinni og að stefnan væri að bregð­ast við ástand­inu þegar þörf reyn­ist á því. Hann sagði heil­brigð­is­starfs­fólk og aðra leggja mikið á sig en bætti við að „dög­un“ væri framundan – þ.e. að endir­inn á far­aldr­inum nálg­að­ist.

For­dæma­laus mót­mæli

Núll-Covid stefnan var afnumin fyrir um þremur vik­um. Það var gert í kjöl­far þess að for­dæma­laus mót­mæli brut­ust út í land­inu vegna tak­mark­ana. Fólk taldi aðgerð­irnar hefta frelsi sitt og líf. Þetta eru mestu mót­mæli sem orðið hafa í Kína lengi og þau lang­mestu sem orðið hafa í tíu ára valda­tíð Xi.

WHO ótt­ast ekki aðeins að gögnum um raun­veru­legt umfang far­ald­urs­ins verði deilt heldur einnig að örv­un­ar­bólu­setn­ingar séu allt of sjald­gæfar meðal kín­versks almenn­ings. Því gæti bylgjan sú sem nú gengur yfir kostað fjölda manns­lífa.

Auglýsing

Þegar veira fær að ganga um óhindr­að, og hefur marga næma lík­ama til að hreiðra um sig í, eins og gera má ráð fyrir að sé staðan í Kína, eykst hættan á því að ný afbrigði verði til. Hins vegar er ómögu­legt að segja hverjir eig­in­leikar þeirra gætu orð­ið. Þau gætu orðið skæð­ari en þau gætu líka orðið mild­ari.

Fyrir þremur árum, næstum því upp á dag, greind­ist ný kór­ónu­veira í fyrsta sinn í Kína. Hún fékk síðar nafnið SAR­S-CoV-2 og sjúk­dóm­ur­inn sem hún veldur heitið COVID-19. Upp­tökin eru rakin til kín­versku borg­ar­innar Wuh­an.

Síðan þá hafa yfir 6,6 millj­ónir manna, svo stað­fest sé, lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. WHO telur hins vegar að and­látin séu mun fleiri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent