Björgólfur Thor: „Svika-hópurinn“ í blekkingarleik og lygavef

Björgólfur Thor Björgólfsson vandar helstu leikendum í fléttunni sem tengdist viðskiptum með hlut ríkisins í Búnaðarbankanum ekki kveðjurnar.

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.
Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, sem á árum áður var einn stærsti eig­andi Lands­bank­ans ásamt föður sínum Björgólfi Guð­munds­syni, segir að Hauck & Auf­häuser fléttan hafi „allt verið ein lygaflétta.“ Rétt­nefni á S-hópnum svo­nefnda sé Svika-hóp­ur­inn.



Eins og greint var frá í gær þá telur rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að blekk­ingum hafi verið beitt við sölu rík­is­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um, þar sem Ólafur Ólafs­son hefði verið einn aðal­leik­and­inn, frá A til Ö.

Þetta kemur fram í umfjöllun á vef hans, btb.is. „Rétt eins og í Al-T­hani mál­inu nokkrum árum síðar var hönnuð lygaflétta til að blekkja stjórn­völd, mark­að­inn og almenn­ing. Hópur þjóð­kunnra tæki­fær­is­sinna setti saman Svika-hóp­inn sem átti ekk­ert erlent fjár­magn og var skuld­settur upp að öxl­um, not­að­ist við lánsfé og tók síðan fleiri lán til við­bót­ar. Allt einka­væð­ing­ar­ferlið breytt­ist strax og Svika-hóp­ur­inn kom að því. Einka­væð­ing beggja banka fór þá að mið­ast í öllu við þarfir þessa hóps og óskir, tíma­setn­ingar og fram­kvæmd öll fór eftir duttl­ungum hans,“ segir Björgólfur Thor, sem segir mik­il­vægt að rann­saka einka­væð­ingu bank­anna, þar á meðal einka­væð­ingu Lands­bank­ans. Hann segir löngur tíma­bært að segja þá sögu alla og tíma­bært að stjórn­mála­menn standi við yfir­lýs­ingar um gagn­sæi.

Hann segir jafn­framt að það megi vel líkja Al-T­hani mál­inu svo­nefnda saman við það sem nú hefur komið fram, um söl­una á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um. Í því hlutu æðstu stjórn­endur Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sig­urður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son, þunga fang­els­dóma, sem og Ólafur Ólafs­son. Hann hlaut 4 og hálfs árs fang­els­is­dóm.

Auglýsing

„Svika-hóp­ur­inn þurfti samt að sýna fram á, að hann stydd­ist við öfl­ugan, erlendan banka, til að eiga von til þess að ríkið vildi selja þessum sam­an­safni lukku­ridd­ara ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Lengi vel létu þeir eins og franski stór­bank­inn Société Général væri með þeim í kaup­un­um, en að lokum reynd­ist stóri, erlendi bank­inn vera lít­ill, þýskur einka­banki sem eng­inn þekkti til. Og sá banki bara ómerki­legur leppur Ólafs Ólafs­son­ar. Svo vel þótti Ólafi Ólafs­syni og mönnum hans til takast með blekk­ing­arn­ar, að þeir voru reiðu­búnir að end­ur­taka leik­inn rúmum 5 árum síð­ar, haustið 2008, og þá með ridd­ara á arab­ískum hesti, sem kom til bjargar á ögur­stundu. Um þær æfingar hefur Hæsti­réttur haft miður fal­leg orð: „ . . . þaul­skipu­lögð, drýgð af ein­beittum ásetn­ingi og ein­dæma ófyr­ir­leitni og skeyt­ing­ar­leysi“ „ . . . beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild“. Þessi orð er allt eins hægt að nota um fléttu Ólafs Ólafs­sonar og „the usual suspects“ við kaupin á Bún­að­ar­bank­an­um,“ segir Björgólfur Thor.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None