Eignir lífeyrissjóða þær sömu og fyrir ári og hafa lækkað um 299 milljarða frá áramótum

Lækkandi hlutabréfaverð hefur gert það að verkum að eignir íslenskra lífeyrissjóða hafa dregist verulega saman það sem af er ári. Sjóðirnir vilja fá að fjárfesta meira erlendis til að forðast bólumyndun á Íslandi en stjórnvöld vilja bremsa þá útgöngu af.

Lífeyrissjóðir taka við lögbundnum iðgjöldum almennings og eiga að ávaxta þá til að tryggja sem flestum áhyggjulaust ævikvöld.
Lífeyrissjóðir taka við lögbundnum iðgjöldum almennings og eiga að ávaxta þá til að tryggja sem flestum áhyggjulaust ævikvöld.
Auglýsing

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða hafa alls skroppið saman um 299 millj­arða króna það sem af er ári. Í lok sept­em­ber voru þær 6.438 millj­arðar króna en um liðin ára­mót voru þær 6.747 millj­arðar króna. Þá á eftir að taka inn í dæmið þær inn­greiðslur sem hafa ratað í sjóði lands­ins, sem eru vel á annað hund­rað millj­arðar króna á ári. 

Í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna kemur fram að eigna­staða þeirra í lok sept­em­ber var nán­ast sú sama og hún var ári áður og raunar sjö millj­örðum króna lak­ari. Til sam­an­burðar þá juk­ust eignir sjóð­anna milli sept­em­ber 2020 og 2021 um 946 millj­arða króna. 

Inn­lendar eignir sjóð­anna lækk­uðu um 108 millj­arða króna milli mán­aða og þær erlendu um 110 millj­arða króna. 

Hluta­bréf lækkað mikið

Sú mikla lækkun sem orðið hefur á eignum sjóð­anna á þessu ári er fyrst og síð­ast til­komin vegna lækk­andi hluta­bréfa­verðs, jafnt inn­an­lands sem erlend­is. Inn­lend hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini í eigu líf­eyr­is­sjóði hafa til að mynda lækkað um 125 millj­arða króna það sem af er ári og eigna­flokk­ur­inn hefur ekki staðið lægra síðan í maí í fyrra. 

Sam­drátt­ur­inn í virði erlendra hluta­bréfa hefur verið enn skarpari, eða 241 millj­arður króna. 

Auglýsing
Upptaktur hefur hins vegar verið í útlánum sjóðs­ins til sjóðs­fé­laga vegna íbúð­ar­kaupa í kjöl­far mik­ils sam­drátt­ar. Sá sam­dráttur varð vegna vaxta­lækk­anna Seðla­banka Íslands og ákvörð­unar hans um að auka svig­rúm kerf­is­legra mik­il­vægra banka til útlána um mörg hund­ruð millj­arða króna til að takast á við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Það varð til þess að bank­arnir dældu út íbúða­lánum og fóru með mark­aðs­hlut­deild sína í þeim úr 55 pró­sent í rúm­lega 70 pró­sent á skömmum tíma. Á sama tíma flúðu lán­tak­endur líf­eyr­is­sjóð­ina. Frá miðju ári 2020 og fram til loka októ­ber 2021 voru útlán þeirra nei­kvæð um 67 millj­arðar króna. Síðan þá hafa þau hins vegar verið jákvæð og í sept­em­ber voru ný útlán, umfram upp- og umfram­greiðsl­ur, alls 5,6 millj­arðar króna.

Tveir þriðju inn­lendar eignir

Alls eru tveir þriðju hlutar eigna líf­eyr­is­sjóða inn­lendar eign­ir. Hlut­­­­fallið hefur hækkað á þessu ári vegna þess verð­­­­falls sem varð á erlendu eign­un­um framan af ári, en auk hluta­bréfa sam­anstendur inn­­­­­­­lenda eignin að upp­­­i­­­­­stöðu af skulda­bréfum og lánum sem sjóð­irnir hafa veitt sjóðs­fé­lögum til hús­næð­is­­­­kaupa. 

Skulda­bréfa­eign sjóð­anna gæti rýrnað umtals­vert í nán­ustu fram­tíð ef áform fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að neyða þá til að semja um að taka á sig að minnsta kosti tug millj­arða króna tap vegna skulda­bréfa sem útgefin voru af ÍL-­sjóði verða að veru­leika. Hægt er að lesa um mál­efni ÍL-­sjóðs hér og hér

Mega bara vera með 50 pró­sent eigna erlendis

Sam­­­­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­­­­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­­­­sent eigna sinna erlend­­­­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­­­­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískygg­i­­­­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­­­­sjóðir komnir með hlut­­­­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­­­­sent af heild­­­­­­ar­­­­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­­­­fallið yfir 40 pró­­­­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­­­­sjóður verzl­un­ar­manna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­­­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­­­­­­­legt hámark.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Mynd: Eyþór Árnason

Sam­kvæmt frum­varpi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram í haust munu sjóð­irnir fá að auka hlut­­fall eigna sinna utan Íslands um 1,5 pró­­sent­u­­stig í fjögur ár frá 2024. Eftir það mun heim­ild þeirra hækka um eitt pró­­sent­u­­stig á ári þangað til að hún verður orðin 65 pró­­sent árið 2036. 

Þegar drög að sam­­bæri­­legu frum­varpi var lagt fram í vor stóð til að hlut­­fallið myndi hækka um eitt pró­­sent­u­­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka árs 2038. 

Of hæg útganga

Þetta þótti allt of hægur taktur að mati ýmissa líf­eyr­is­­sjóða. Í umsögn Lands­­­sam­­­taka líf­eyr­is­­­sjóða um drögin kom fram að djúp­­­stæð óánægja væri meðal full­­­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­­­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­­­sent­u­­­­stig á ári þangað til að 65 pró­­­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið hefði verið að ítr­­­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­­­mark nást í árs­­­­lok 2027 að óbreytt­u. 

Auglýsing
Þegar frum­varpið var lagt fram í apríl síð­­ast­liðnum hafði verið gerð sú breyt­ing á því að heim­ildin yrði hækkuð um 1,5 pró­­sent­u­­stig á árunum 2024, 2025 og 2026 og yrði þannig 54,5 pró­­sent í lok síð­­asta árs­ins. Það frum­varp náði ekki í gegn fyrir þing­­lok snemm­sum­­­ars en er nú lagt fram að nýju með sama upp­­takti í rýmkun heim­ilda.

Í umsögn sem Lands­­sam­­taka líf­eyr­is­­sjóða skil­aði um frum­varpið í maí síð­­ast­liðnum kom fram að breyt­ing­­arnar sem gerðar höfðu verið frá því að drögin voru birt í sam­ráðs­­gátt stjórn­­­valda væru til bóta, en að afstaða sam­tak­anna hefði hins vegar ekk­ert breyst. Þau teldu áfram sem áður að ganga mætti hraðar í þessum efnum enda liggi fyrir að rýmkunin varði aðeins nokkra sjóði. Aðrir séu enn vel undir núgild­andi mörk­­um. 

Hætta á ruðn­ings­á­hrifum og bólu­myndun

Í umsögn Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða um frum­varpið í vor sagði að full­­­­trúar þeirra sjóða sem væru næst hámarks­­­­hlut­­­­falli eigna erlendis teldu ein­fald­­­­lega að boðuð skref væru allt of var­­­­færin og ná yfir of langt tíma­bil. Afar brýnt væri að fara hraðar í breyt­ingar „með hags­muni sjóð­­­­fé­laga að leið­­­­ar­­­­ljósi“.

Í umsögn­inni sagði að ef „hömlur á fjár­­­­­­­fest­ingar í erlendum gjald­miðlum gera það að verkum að stórir sjóðir neyð­­­­ast til að fjár­­­­­­­festa í inn­­­­­­­lendum eignum umfram það sem þeir telja æski­­­­legt út frá hags­munum sinna sjóð­­­­fé­laga verður að sama skapi tals­verð hætta á ruðn­­­­ings­á­hrifum og bólu­­­­myndun á inn­­­­­­­lendum eigna­­­­mark­aði sem getur leitt til þess að inn­­­­­­­lend eigna­­­­söfn líf­eyr­is­­­­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­­­­bær til fram­­­­tíð­­­­ar­“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent