Enga bókun að finna um sérstaka afstöðu neins ráðherra til sölu á Íslandsbanka

Lilja Alfreðsdóttir hefur sagt að hún hafi ekki verið hlynnt þeirri aðferðarfræði sem beitt var við sölu á hlut í Íslandsbanka og að hún hafi komið þeim sjónarmiðum skýrt á framfæri. Ekkert var bókað um þá afstöðu í fundargerðum ráðherranefndar.

Þrír ráðherrar úr ríkisstjórninni sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þau eru Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Lilja Alfreðsdóttir.
Þrír ráðherrar úr ríkisstjórninni sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þau eru Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Lilja Alfreðsdóttir.
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið telur sér ekki heim­ilt að afhenda fund­ar­gerðir ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins þar sem þær séu und­an­þegnar upp­lýs­inga­rétti sam­kvæmt upp­lýs­inga­lög­um. Þar er vísað til greinar sem segir að réttur almenn­ings til aðgangs að gögnum taki ekki til fund­ar­gerða rík­is­ráðs og rík­is­stjórn­ar, minnis­greina á ráð­herra­fundum og gagna sem tekin hafa verið saman fyrir slíka fundi.

Þetta kemur fram í svari þess við fyr­ir­spurn Kjarn­ans þar sem óskað var eftir afriti af öllum fund­ar­gerðum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins þar sem fjallað er um sölu á hlutum íslenska rík­is­ins í Íslands­banka frá því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum síðla árs 2017 og fram til dags­ins í dag. 

Í svar­inu sagð­ist ráðu­neytið hins vegar vilja upp­lýsa að rætt var um sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka á fjórum fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins; 27. jan­úar 2021, 4. maí 2021, 4. febr­úar 2022 og 1. apríl 2022.

Í fund­ar­gerðum þeirra funda er ekki að finna neina bókun um sér­staka afstöðu ráð­herra til sölu­með­ferð­ar­inn­ar. 

Auglýsing
Í nefnd­inni sitja Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála- við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Lilja sagði í Morg­un­­­blað­inu í dag að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­­­sent hlut í Íslands­­­­­banka 22. mars síð­­­ast­lið­inn. Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­­­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­­­is­­­stjórnar sem situr í ráð­herra­­­nefnd um efna­hags­­­mál og end­­­ur­­­skipu­lagn­ingu fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins, seg­ist hafa komið þeim sjón­­­­­ar­miðum sínum skýrt á fram­­­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­­­sam­­­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­­­tíð­­­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“ 

Katrín sagði í við­tali við vef Frétta­­blaðs­ins fyrr í dag að hvorki Lilja né nokkur annar ráð­herra hafi óskað að færa neitt til bókar um sölu­­ferli á hlut Íslands­­­banka þegar málið var rætt í rík­­is­­stjórn og ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál. 

Salan tekin fyrir á fjórum fundum

Fyrst var sölu­með­ferðin til umfjöll­unar á fundi ráð­herra­nefnd­ar­innar 27. jan­úar í fyrra þegar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram og kynnti minn­is­blað um ákvörðun um að hefja sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að í fund­ar­gerð þess fundar komi fram að málið hafi verið rætt í ráð­herra­nefnd­inn­i. 

Rúmum þremur mán­uðum síð­ar, 4. maí 2021, lagði Bjarni svo fram og kynnti annað minn­is­blað um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka og glærur frá Banka­sýslu rík­is­ins um sama efni. Í fund­ar­gerð ráð­herra­nefnd­ar­innar kemur fram að málið hafi verið rætt. Síðar í saman mán­uði var ráð­ist í sölu á 35 pró­sent hlut í Íslands­banka  á 55,3 millj­­arða króna og bank­inn í kjöl­farið skráður á markað snemma í júní sama ár. 

­Sala á hlutum í bank­anum var svo aftur til umræðu á fundi sem fór fram 4. febr­úar síð­ast­lið­inn, fyrir rúmum tveimur mán­uð­um. Þar lagði Bjarni fram og kynnti loka­drög að skýrslu um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans seg­ir: „Í óstað­festri fund­ar­gerð kemur m.a. fram að málið hafi verið rætt í ráð­herra­nefnd­inni og ákveðið hafi verið að leggja skýrsl­una fyrir á næsta rík­is­stjórn­ar­fundi. Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði einnig fram og kynnti minn­is­blað um fram­hald á sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka ásamt grein­ar­gerð. Málið var rætt og ákveðið að leggja það fyrir á næsta rík­is­stjórn­ar­fund­i.“

22,5 pró­­­sent hlutur í Íslands­­­­­banka var svo seldur í lok­uðu útboði með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars 2022 fyrir 52,65 millj­arða króna. Verðið var 4,1 pró­sent undir mark­aðsvirði á þeim tíma sem þýðir að þeir 207 aðilar sem fengu að kaupa gerðu það á verði sem var 2,25 millj­örðum krónum undir mark­aðsvirði þess tíma. Kostn­aður við útboðið var um 700 millj­ónir króna. 

Fyrir tíu dög­um, þann 1. apr­íl, fund­aði ráð­herra­nefndin svo aft­ur. Þá hafði komið fram marg­háttuð gagn­rýni á söl­una í mars. Á þeim fundi kynntu full­trúar Banka­sýslu rík­is­ins glærur um sölu­með­ferð­ina 22. mars. „Í óstað­festri fund­ar­gerð um málið kemur m.a. fram að málið hafi verið rætt og óskað eftir því að Banka­sýslan birti upp­lýs­ingar um sölu­með­ferð­ina og kaup­endur allra fyrst.“

Listi yfir kaup­endur var svo birtur síð­ast­lið­inn mið­viku­dag eftir að Bjarni Bene­dikts­son hafði lagt sjálf­stætt mat á að hann ætti að birta. Það var gert í and­stöðu við ráð­legg­ingar Banka­sýslu rík­is­ins sem hafði meðal ann­ars fengið lög­fræði­á­lit frá LOGOS um að það væri óvar­leg­t. 

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að Katrín Jak­obs­dótt­ir, Bjarni Bene­dikts­son og Lilja Alfreðs­dótt­ir, sem mynda ráð­herra­nefnd­ina, hafi setið alla ofan­greinda fundi. Auk ráð­herr­anna sátu fund­ina emb­ætt­is­menn og starfs­fólk við­kom­andi ráðu­neyta og aðstoð­ar­menn ráð­herra. For­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar voru gestir á fund­unum 4. maí 2021 og 1. apríl 2022 en for­stjóri Banka­sýsl­unnar var þar að auki gestur á fund­inum 4. febr­úar 2022.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent