Lífeyrissjóðirnir standa saman og mynda sameiginlegan vettvang vegna ÍL-sjóðs

ÍL-sjóður mun að óbreyttu tapa 200 milljörðum króna. Fjármála- og efnahagsráðherra vil „spara“ ríkissjóði að bera ábyrgð á um 150 milljörðum króna af því tapi. Þeir sem þurfa að axla þorra þess, lífeyrissjóðir, eru ekki sammála um að það sé góð hugmynd.

Almenningur mun þurfa að axla tapið vegna ÍL-sjóðs, annað hvort í gegnum ríkissjóð eða lífeyrissjóðakerfið.
Almenningur mun þurfa að axla tapið vegna ÍL-sjóðs, annað hvort í gegnum ríkissjóð eða lífeyrissjóðakerfið.
Auglýsing

Flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa ákveðið að mynda sam­eig­in­lega vett­vang til að greina stöðu sjóð­anna vegna ÍL-­sjóðs. Hver og einn sjóður mun þó á end­anum taka sjálf­stæða ákvörðun um hvað hann vill gera í mál­inu.

Í til­kynn­ingu segir að frá þessu hafi verið greint á fjöl­mennum upp­lýs­inga­fundi sem flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins mættu til í dag. Þar kom fram að einu­hugur væri um sam­starf vegna grein­ingu stöð­unnar vegna þessa máls, enda gríð­ar­legir hags­munir í húfi fyrir íslenska sjóð­fé­laga. „Þegar hefur verið gengið frá ráðn­ingu lög­fræði­stof­unnar Logos sem lög­fræði­legs ráð­gjafa líf­eyr­is­sjóð­anna, unnið er að því að greina lög­fræði­leg álita­mál, hags­muni sjóð­anna – og þar með almenn­ings í land­inu – og frek­ari fram­gangi máls­ins. Þá hafa fjár­hags­legir ráð­gjafar jafn­framt verið ráðn­ir.“

Vill að líf­eyr­is­sjóð­irnir taki höggið

ÍL-­­sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­­­mögnun á félags­­­legri upp­­­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­­­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-­­sjóð. Skulda­bréf­in, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­­greið­an­­leg en lánin sem sjóð­­ur­inn veitti eru það hins veg­­ar. 

Auglýsing
Vandi ÍL-­­sjóðs er til­­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru nú ein­ungis um 20 pró­­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréf­in. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­­arðar króna. 

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í síð­asta mán­uði að hann vildi semja við kröf­u­hafa ÍL-­­sjóðs um að þeir sam­­þykki að gefa eftir hluta eigna sinna. Líf­eyr­is­­sjóðir eiga um 75-80 pró­­sent allra skulda­bréfa sem útgefin eru af ÍL-­­sjóði og þeir þurfa því að taka mesta högg­ið, eigi til­­laga Bjarna að ganga upp. Tak­ist ekki að semja ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­­­lok sem felur í sér að ÍL-­­­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­­­falla og með því myndi ein­­­föld rík­­­is­á­­­byrgð virkj­­­ast. 

Póli­tísk ákvörðun sem fór illa

Við­brögð þeirra sem gæta hags­muna líf­eyr­is­­sjóða lands­ins við þeirri hótun fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra að lög verði sett sem muni rýra eignir sjóð­anna um meira en 100 millj­­arða króna, sam­­þykki þeir ekki að gefa eftir sam­­bæri­­lega upp­­hæð í frjálsum samn­ingum um slit ÍL-­­sjóðs, hafa verið hörð.

Þeirra mat er að verið sé að reyna að knýja líf­eyr­is­þega til að borga fyrir póli­tíska ákvörðun sem fór illa, og sam­hliða rétta við skulda­stöðu rík­is­sjóðs á hátt sem líti betur út fyrir núver­andi ráða­menn. Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um ÍL-­sjóð. Hægt er að lesa þá umfjöllun alla hér til hlið­ar.

Tapið sem eig­endur bréfa í ÍL-­sjóði telja sig verða fyrir kemur til að þegar bréf­in, sem eru á gjald­daga allt til árs­ins 2044, voru verð­lögð miðað við 3,75 pró­sent verð­tryggða vexti út líf­tíma þeirra. Á heima­síðu Gild­is, eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, segir að ef bréfin væru greidd upp miðað við stöðu þeirra í dag væri hægt að ávaxta þá fjár­muni á um 1,7 til 1,8 pró­sent vöxtum með kaupum á verð­tryggðum rík­is­skulda­bréf­um. Tapið felst í mun­inum á þessu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent