Trump tilnefnir Brett Kavanaugh í Hæstarétt

Íhaldsmaðurinn Brett Kavanaugh er val Donalds Trump Bandaríkjaforseta á nýjum Hæstaréttardómara. Framundan er hörð barátta milli Repúblikana og Demókrata sem mun snúast að mestu um réttinn til fóstureyðinga og kosningar til öldungadeildarinnar í nóvember.

Brett Kavanaugh dómari Donald Trump Hæstiréttur
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur til­nefnt dóm­ar­ann Brett Kavan­augh til emb­ættis Hæsta­rétt­ar­dóm­ara. For­set­inn til­kynnti um val sitt í beinni útsend­ingu í nótt þar sem hann sagði val á hæsta­rétt­ar­dóm­urum eina af djúp­stæð­ustu skyldum hvers for­seta, ef frá væru taldar ákvarð­anir um stríð og frið.



Valið kom lítið á óvart, Kavan­augh var einn af fjórum sem flestir fjöl­miðlar töldu að kæmu til greina hjá Trump.

Auglýsing

Hver er Brett Kavan­augh?

Kavan­augh er 53 ára gam­all og starfar sem dóm­ari við áfrýj­un­ar­dóm­stól í Was­hington DC. Hann starf­aði náið með George W. Bush á sínum tíma og tók meðal ann­ars þátt í rann­sókn­inni á sam­skiptum Bill Clinton Banda­ríkja­for­seta og Mon­icu Lewin­sky auk þess sem hann var einn þeirra sem kom að end­ur­taln­ingu atkvæða fyrir hönd Bush í for­seta­kosn­ing­unum árið 2000. Kavan­augh var á árum áður aðstoð­ar­maður Ant­hony Kenn­edy, hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans sem nú lætur af störfum og Kavan­augh tekur við af.

Fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum greina frá því að verði Kavan­augh stað­festur af þing­inu og settur í emb­ætti sé það alveg ljóst að rétt­ur­inn muni í kjöl­fari fær­ast lengra til hægri í nið­ur­stöðum sín­um.

Þegar Kavan­augh var settur í emb­ætti dóm­ara við áfrýj­un­ar­dóm­stól­inn deildi hann ekki frá skoð­unum sínum á hinum svo­kall­aða Roe v. Wade dómi, sem að heim­il­aði fóst­ur­eyð­ingar í Banda­ríkj­unum þegar hann féll árið 1973. Óstað­festar fregnir herma að hags­muna­sam­tök and­stæð­inga fóst­ur­eyð­inga hafi barist gegn því á bak við tjöldin að Trump tilf­nefndi Kavan­augh og vildu frekar dóm­ara sem hafði opin­berað harð­ari afstöðu gegn fóst­ur­eyð­ing­um. Gera má ráð fyrir því að dóm­stóll­inn fái fljót­lega til sín mál þar sem verður látið reyna á það að snúa for­dæm­inu sem Roe v. Wade setti.

Fjöl­miðlar telja þó ein­sýnt að Kavan­augh muni alla jafna dæma með íhaldsam­ari kol­legum sínum við rétt­inn.

Í aðdrag­anda til­kynn­ingar Trump í nótt höfðu ein­hverjir íhalds­menn áhyggjur af því að Kavan­augh væri ekki nægi­lega langt til hægri í skoð­unum sín­um, sér­stak­lega þegar kemur að fóst­ur­eyð­ingum og heil­brigð­is­mál­um. Að auki voru uppi áhyggjur af teng­ing­unni við Bush fjöl­skyld­una.

Hæstiréttur Bandaríkjanna. Anthony Kennedy sem nú lætur af störfum er næst lengst til vinstri í fremri röð. Mynd: Hæstiréttur Bandaríkjanna

Repúblikönum liggur á 

Til að setja Kavan­augh í emb­ætti þarf stað­fest­ingu þings­ins á til­nefn­ingu Trump. Kosið verður til öld­unga­deildar þings­ins í nóv­em­ber og óljóst hvor flokk­ur­inn verður í meiri­hluta eftir kosn­ing­arn­ar. Repúblikönum liggur því á að klára mál­ið.

Demókratar hafa sagt það ólýð­ræð­is­legt að setja dóm­ara í emb­ætti svo stuttu fyrir kosn­ing­ar, auk þess sem Trump sé um þessar mundir til rann­sóknar í máli sem er ekki úti­lokað að muni á end­anum fara fyrir Hæsta­rétt. Því sé eðli­legt að bíða með að skipa nýjan dóm­ara þar til rann­sókn þeirri sé lok­ið.

Það er þó ekki búist við því að þessi atriði muni vefj­ast mikið fyrir Repúblík­ön­um. Hins vegar er það spurn­ingin um við­snún­ing á for­dæmi Roe v. Wade sem gæti flækt mál­ið. Frjáls­lynd­ari Repúblikanar í öld­unga­deild­inni eru fylgj­andi því að Roe v. Wade séu gild­andi lög og þar bein­ast allra augu að tveimur öld­unga­deild­ar­þing­mönnum sem eru hlynntir rétt­inum til fóst­ur­eyð­inga: Lisu Murkowski frá Alaska og Susan Coll­ins frá Maine. Ef allir þing­menn Demókrata kjósa gegn til­nefn­ing­unni hafa þó Repúblikanar efni á að missa tvö atkvæði úr sínum ranni.

Búist er við miklum slag næstu vikur og miss­eri og óvíst hversu langan tíma stað­fest­ingin mun taka. Drag­ist ferlið á lang­inn er hætt við því að næsti Hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Kavan­augh eða ann­ar, verði eitt stærsta kosn­inga­málið í nóv­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnFanney Birna Jónsdóttir
Meira úr sama flokkiErlent