Vilja að utanaðkomandi aðilar meti virði Ögurvíkur

HB Grandi hefur gert samkomulag um að kaupa félagið Ögurvík af stærsta eiganda sínum og forstjóra, Guðmundi Kristjánssyni, á 12,3 milljarða króna. Stjórn og hluthafafundur eiga eftir að samþykkja kaupin.

Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi HB Grandi og settist nýverið sjálfur í forstjórastól félagsins.
Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi HB Grandi og settist nýverið sjálfur í forstjórastól félagsins.
Auglýsing

Hlut­hafar í HB Granda, sem Kjarn­inn hefur rætt við, vilja að utan­að­kom­andi aðilar verði fengnir til að meta virði Ögur­víkur ehf. áður en að gengið verði frá kaupum á félag­inu. Til­kynnt var um það eftir lokun mark­aða á föstu­dag að HB Grandi hefði gert sam­komu­lag um að kaupa Ögur­vík á 12,3 millj­arða króna.

Það sem er sér­stakt við kaupin er að núver­andi eig­andi Ögur­vík­ur, Brim hf., er líka stærsti eig­andi HB Granda með 35 pró­sent eign­ar­hlut. Guð­mundur Krist­jáns­son, eig­andi Brim, sett­ist auk þess nýverið í for­stjóra­stól HB Granda. Með sam­komu­lag­inu er væri HB Grandi því að kaupa eign af stærsta eig­anda sín­um, sem er í eigu for­stjóra félags­ins.

Í gær var send út til­kynn­ing til Kaup­hallar þar sem greint var frá því að boðað hafi verið til stjórn­ar­fundar í HB Granda næst­kom­andi fimmtu­dag þar sem fjallað verður um sam­komu­lag­ið, en stjórn og hlut­hafa­fundur félags­ins þurfa að sam­þykkja það áður en hægt verður að ganga frá kaup­un­um.

Líf­eyr­is­sjóðir eiga stóran hlut í HB Granda

Stærstu eig­endur HB Granda, að Brim frá­töldu, eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna á 13,66 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 9,94 pró­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut og Birta líf­eyr­is­sjóður á 8,62 pró­sent hlut.

Auglýsing
Fulltrúar ann­arra hlut­hafa sem Kjarn­inn hefur rætt við segja að eðli­legt sé að hin ætl­uðu kaup verði kynnt á hlut­hafa­fundi svo þeir geti tekið afstöðu til þeirra. Þeir leggja einnig mikla áherslu á að utan­að­kom­andi aðilar verði fengnir til að leggja mat á þau verð­mæti sem HB Grandi er að kaupa, í ljósi þess að verið sé að kaupa félag sem fyrir er í eigu for­stjóra HB Granda og stærsta eig­anda þess.

Við­skiptin eru einnig háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Til stendur að fjár­magna kaupin með eigin fé og láns­fjár­magni.

Hár marg­fald­ari á eigið fé

Kjarn­inn greindi frá því á mánu­dag að sam­kvæmt árs­reikn­ingi Ögur­víkur fyrir árið 2017 þá hafi hagn­aður félags­ins numið 37 millj­ónum króna. Það hagn­að­ist hins vegar um 485 árið 2017. Félagið var með 747 millj­­ónir í eigið fé í lok árs. Eignir námu 6,25 millj­­örðum króna en skuldir 5,5 millj­­örðum króna. Þar af voru lang­­tíma­skuldir í erlendri mynt, 4,8 millj­­arðar króna.

Verð­mið­inn sem til­­kynnt var um til kaup­hallar er því 16,4 sinnum eigið fé félags­­ins, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra.

Til sam­an­­burðar er verð­mið­inn á HB Granda nú 56,5 millj­­arðar króna, en eigið fé félags­­ins var um mitt þetta ár 250 millj­­ónir evra, eða sem nemur um 32,5 millj­­örðum króna. Mark­aðsvirðið er því 1,7 sinnum eigið fé félags­­ins.

Gerir út einn frysti­tog­ara

Ögur­vík er útgerð­ar­fé­lag í Reykja­vík sem gerir út frysti­togar­ann Vigra RE 71. Afla­heim­ildir hans á fisk­veiði­ár­inu sem hófst í byrjun mán­aðar eru 7.680 tonn af botn­fiski og 1.663 tonn af mak­ríl. Vigri RE er eitt kvóta­hæsta fiski­skip íslenska flot­ans.

Rúm tvö ár eru síðan að Brim keypti Ögur­vík, en þá var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar