Gamlir lykilmenn í FL Group í hópi sem hefur eignast meirihluta í félaginu

Fjögur félög, Tryggingamiðstöðin og hollenskt félag hafa eignast meirihluta í Stoðum, áður FL Group. Innan hópsins eru stórir eigendur í TM og fyrrverandi lykilmenn í FL Group. Eina eign Stoða er hlutur í Refresco, sem hefur hækkað mikið í verði.

FL Group var umsvifamikið fjárfestingarfélag á árunum fyrir hrun. Það hét Flugleiðir fram á vorið 2005 þegar félaginu var breytt í fjárfestingafélag.
FL Group var umsvifamikið fjárfestingarfélag á árunum fyrir hrun. Það hét Flugleiðir fram á vorið 2005 þegar félaginu var breytt í fjárfestingafélag.
Auglýsing

Á und­an­förnum mán­uðum hafa tvö félög, ELL 323 ehf. og S121 ehf., eign­ast meiri­hluta í Stoð­um, sem áður hét FL Group. Stærsti selj­andi þeirra hluta sem félögin tvö hafa verið að kaupa var Glitn­ir­Holdco, eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitn­is, banka sem FL Group og tengdir aðilar voru með tögl og haldir í á loka­metrum íslenska góð­ær­is­ins fyrir hrun. Félagið sjálft átti 32 pró­sent hlut í Glitni. Banka sem lán­aði FL Group sam­stæð­unni tugi millj­arða króna sem leiddi svo til þess að kröfu­hafar bank­ans eign­uð­ust stærstan hluta í félag­inu eftir að það fór í gegnum nauða­samn­ing sum­arið 2009.

Félögin tvö sem hafa verið að kaupa hluti í félag­inu, sem nú heitir Stoð­ir, eiga nú ásamt hol­lenskum fjár­festi sem þau starfa með rúm­lega 52 pró­sent í Stoð­um. Stærstu eig­endur ELL 323 og S121, sem bæði voru stofnuð á síð­ustu mán­uðum af lög­fræði­stof­um, eru fjögur eign­ar­halds­fé­lög og Trygg­inga­fé­lagið Trygg­inga­mið­stöð­in. Eign­ar­halds­fé­lögin heita Helg­ar­fell ehf., Esju­borg ehf, Einir ehf. og GGH ehf.



Og eig­endur þeirra, eða helstu stjórn­end­ur, eru að mestu leyti menn sem gegndu lyk­il­hlut­verkum í FL Group fyrir hrun.

Refresco eina eignin sem er eftir í Stoðum

Stoðum hefur gengið vel að selja eft­ir­stand­andi eignir sínar á und­an­förnum árum og greiða and­virði þeirra út til hlut­hafa sinna, Þ.e. fyrr­ver­andi kröfu­hafa sem breyttu kröfum sínum í hluta­bréf í Stoð­um, Hagn­aður félags­ins á tíma­bil­inu 2010-2016 nam 36 millj­örðum króna og alls hafa 57 millj­arðar króna verið greiddir út til fyrr­ver­andi kröfu­hafa Stoða. Þótt það hljómi sem gríð­ar­lega há upp­hæð þá nær hún ekki yfir nema hluta þess tjóns sem lán­veit­endur FL Group/Stoða urðu fyrir þegar félagið komst í greiðslu­þrot. Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér snemma í apríl 2009, þegar það óskaði eftir heim­ild til að leita nauða­samn­inga við lán­ar­drottna, kom fram að skuldir væru áætl­aðar um 287 millj­arðar króna og að eignir þess væru áætl­aðar um 25-30 pró­sent af and­virði skulda. Því töp­uðu kröfu­hafar Stoða ævin­týra­legum fjár­hæðum á lán­veit­ingum til félags­ins.

Auglýsing

Í Stoðum í dag er ein­ungis eftir ein eign, 8.87 pró­sent hlutur í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­ann Refresco. Mark­aðsvirði þess hlutar er um 15 millj­arðar króna. Og það mark­aðsvirði hefur hækkað mikið á und­an­förnum mán­uð­um. Frá ára­mótum hefur það hækkað um 24 pró­sent, eða um þrjá millj­arða króna.

Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvenær hóp­ur­inn sem nú á meiri­hluta í Stoðum hóf upp­kaup sín á bréf­um, hvað hann greiddi fyrir hlut­inn né hvernig þau kaup voru fjár­mögn­uð.

Gamlir lyk­il­leik­menn úr FL Group kaupa í Stoðum

Félögin fjögur sem eiga ELL 323 og S121 með Trygg­inga­mið­stöð­inni heita Helg­ar­fell ehf., Esju­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni.

Esju­borg er í 50 pró­sent eigu félags sem heitir Jökla­borg. Það er skráð í 100 pró­sent eigu Jóhanns Arn­ars Þór­ar­ins­son­ar, for­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­ur­inn í Esju­borg er í eig Riverside Capi­tal SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­kvæmt Panama­skjöl­unum er það félag í end­an­legri eigu For­town Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted. Riverside Capi­tal á líka 2,63 pró­sent hlut í Trygg­inga­mið­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capi­tal ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar. Örvar var yfir starf­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­þingi í níu ár.  Hann er nú umsvifa­mik­ill fjár­fest­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins, se fór fram 21. apríl síð­ast­lið­inn.

Einar Örn Ólafs­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar. Hann á 2,76 pró­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­ráðum í Stoð­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­banka á árum áður. Hann var meðal ann­ars for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­anum vegna trún­að­ar­brests. Í kjöl­far ráðn­­ingar Ein­­ars lét Íslands­­­banki óháðan aðila rann­saka sölu bank­ans á ráð­andi hlut í Skelj­ungi, sem Einar hafði séð um, því bank­inn vildi ganga úr skugga um að eðli­­lega hefði verið staðið að söl­unni. Þessi rann­­sókn virð­ist ekki hafa leitt neitt óeðli­­legt í ljós. Bank­inn greip að minnsta kosti ekki til neinna aðgerða gegn nýjum eig­endum Skelj­ungs né Ein­­ari sjálf­­um. Hann er í dag umsvifa­mik­ill fjár­fest­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­stöð­inni, að und­an­skildum líf­eyr­is­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6.34 pró­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­ustu mán­uð­um.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fen­ger, Kristín Fen­ger Ver­munds­dóttir og Ari Fen­ger. Björg er eig­in­kona Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða. Jón tók við sem stjórn­ar­for­maður Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins fyrir tæpum mán­uði síð­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í ELL 323 og S121 heitir GGH ehf.  Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­lenska félags­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra lög­fræð­is­sviðs FL Group) sem á eitt pró­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félags­ins.

Sam­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­lensk fjár­fest­is.

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­ir. Í S121 er Gunnar Sturlu­son lög­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­starfs­maður Hann­esar Smára­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, var lög­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­kvæmda­stjóri félaga í eigu Hann­es­ar. Gunnar er líka í stjórn ELL 323. Þar situr hann ásamt Þor­steini M. Jóns­syni, sem á árum áður var oft­ast kenndur við kók. Þor­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­ins og tók við sem stjórn­ar­for­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­ráðum yfir bank­an­um.

Veita ekki upp­lýs­ingar um sölu­verðið

Líkt og áður sagði er eina eft­ir­stand­andi eign Stoða 8,87 pró­sent hlutur í Refresco. Bæði Jón Sig­urðs­son og Þor­steinn M. Jóns­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

Í apríl gerði félagið  PAI Partners SAS, sem er fjár­­­fest­inga­­fé­lag sem ein­blínir á Evr­­ópu­­mark­að, yfir­­­tökutil­­boð í Refresco. Til­boðið var upp á 1,4 millj­arða evra. Sam­kvæmt því til­boði myndu Stoðir fá 14,4 millj­arða króna fyrir sinn hlut. Það er aðeins minna en skráð mark­aðsvirði Refresco en umtals­vert meira en þeir 12 millj­arðar króna sem hlut­ur­inn var met­inn á í árs­reikn­ingi Stoða fyrir árið 2016.

Til­boð­inu var hins vegar hafnað og Bloomberg greindi frá því í lok apríl að von væri á nýju yfir­tökutil­boði sem gæti hljóðað upp á 1,62 millj­arða evra. Það myndi þýða að hlutur Stoða væri met­inn á 16,7 millj­arða króna, eða tæp­lega 40 pró­sent meira en hann var bók­færður á í lok síð­asta árs.

Glitni­Holdco hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um hvert sölu­verðið var á 40,28 pró­sent hlut þess í Stoðum né hvenær hlut­ur­inn var nákvæm­lega seld­ur. Því er ekki hægt að slá neinu föstu um hver ávinn­ingur nýju eig­end­anna er af kaup­unum á meðan að svo er. En sé hann í takti við hækk­anir á bréfum Refresco á mark­aði, og það gengi sem rætt er um í nýju yfir­tökutil­boði, er ljóst að þeir munu hagn­ast um millj­arða króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar