Skrautleg saga Skeljungs endar í milljarðahagnaði

shell-1.jpeg
Auglýsing

Halla Sig­rún Hjart­­ar­dótt­ir, stjórn­­­ar­­for­maður Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­­­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013. Frá þessu var grein­t  í Morg­un­blað­inu í dag. Í blað­inu kemur enn fremur fram að Halla Sig­rún hafi neitað því að hafa átt í félag­inu til þessa, en hún var skipuð for­maður stjórnar FME í des­em­ber í fyrra.

Afhjúpun Morg­un­blaðs­ins er enn einn kafl­inn í skraut­legri sögu Skelj­ungs und­an­farin ára­tug. Á þeim tíma hefur fyr­ir­tækið verið selt marg­sinnis fram og til baka, oft milli tengdra aðila. Miklar  efa­semdir hafa skap­ast um hvort þeir sem fóru með sölu félags­ins hafi haft hags­muni selj­enda eða kaup­enda að leið­ar­ljósi og á end­anum virð­ist lít­ill en tengdur hópur sem starf­aði í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitn­is/Ís­lands­banka þegar Skelj­ungur var seldur af bank­anum í tveimur skrefum sum­arið 2008 og árið 2009, og nýir aðal­eig­endur Skelj­ungs, hafa hagn­ast um marga millj­arða króna á við­skiptum með félagið og fær­eyska dótt­ur­fé­lagið P/F Magn.

Selt fram og til baka



Í febr­úar 2004 keypti eign­ar­halds­fé­lag á vegum Pálma Har­alds­son­ar, sem oft­ast er kenndur við Fons, og þáver­andi við­skipta­fé­laga hans, Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, Skelj­ung af Kaup­þingi. Tæpu ári síðar var félagið selt til Haga, sem þá voru í eigu Baugs­fjöl­skyld­unn­ar, en náið við­skipta­sam­band var á milli Pálma og henn­ar. Í kjöl­farið var versl­un­ar­rekstur Skelj­ungs færður yfir til 10-11, sem þá var einnig í eigu Haga.

Ári síð­ar, 1. mars 2006, var Skelj­ungur seldur að nýju og í þetta sinn til félags­ins Upp­sprettu ehf., dótt­ur­fé­lags Fons. Rekstur bens­ín­stöðv­anna var sam­hliða færður aftur frá 10-11 til Skelj­ungs. Sömu aðilar voru því að selja félagið fram og til baka á milli sín.

Auglýsing

Á manna­máli þýddi það að bank­inn skuld­batt sig til að kaupa olíu­fé­lagið á því verði ef eng­inn annar væri til­bú­inn til þess.

Þannig hélst eign­ar­haldið fram í des­em­ber 2007 þegar Glitnir ákvað að sölu­tryggja allt hlutafé Upp­sprettu í Skelj­ungi fyrir 8,7 millj­arða króna. Á manna­máli þýddi það að bank­inn skuld­batt sig til að kaupa olíu­fé­lagið á því verði ef eng­inn annar væri til­bú­inn til þess. Sú varð raunin og því eign­að­ist bank­inn félag­ið. Í árs­lok þess árs námu skuldir Skelj­ungs rúmum tíu millj­örðum króna en þorri þeirra var í erlendum gjald­eyri. Þær hækk­uðu því mikið við fall krón­unn­ar.

Borg­uðu með fast­eignum í Dan­mörku



Í ágúst 2008 keypti félagið BG Partners 51 pró­senta hlut í Skelj­ungi. Eig­endur þess voru hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son og við­skipta­fé­lagi þeirra, Birgir Þór Bielt­vedt. Heild­ar­virði Skelj­ungs var í þeim við­skiptum talið vera um þrír millj­arðar króna, sem er rúmur þriðj­ungur af sölu­trygg­ing­unni sem Glitnir veitti og tap­aði síð­ar. BG Partners greiddi sam­kvæmt því um 1,5 millj­arð króna fyrir ráð­andi hlut í Skelj­ungi.

Reyndar liggur ekki alveg fyrir hvert loka­verðið var því hluti kaup­verðs­ins var greiddur með fast­eignum í Dan­mörku sem hríð­lækk­uðu í verði eftir að alþjóða­lega fast­eigna­bólan sprakk með látum árið 2008. Staða Skelj­ungs á þessum tíma var ekki góð. Skuldir höfðu vaxið úr tíu millj­örðum króna í 18 millj­arða króna á einu ári og eigið fé félags­ins var nei­kvætt um rúm­lega 1,8 millj­arða króna.

Glitnir sölutryggði Skeljung fyrir 8,7 milljarða króna og tapaði stórkostlega á því þegar félagið var selt. Glitnir sölu­tryggði Skelj­ung fyrir 8,7 millj­arða króna og tap­aði stór­kost­lega á því þegar félagið var selt.

Sá 49 pró­senta hlutur sem Glitnir hélt eftir var færður yfir til Íslands­banka eftir banka­hrunið og bank­inn fékk tvo menn í fimm manna stjórn. Í lok maí 2009 var Einar Örn Ólafs­son ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs. Full­trúar Íslands­banka í stjórn félags­ins, þeir Rík­harð Ottó Rík­harðs­son og Hörður Fel­ix­son, greiddu ekki atkvæði með ráðn­ingu Ein­ars. Einar hafði áður unnið hjá fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka og var meðal ann­ars for­stöðu­maður hennar frá stofnun bank­ans í októ­ber 2008. Einar hafði einnig séð um söl­una á 51 pró­senta hlut í Skelj­ungi frá Glitni til BG Partners, félags þeirra Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birg­is, í ágúst 2008. Á meðal sam­starfs­fé­laga Ein­ars í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitn­is, og síðar Íslands­banka, voru Halla Sig­rún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son. Þau áttu eftir að koma mikið við sögu Skelj­ungs­við­skipta síðar meir.

Hætti vegna trún­að­ar­brests



Þegar Einar var ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs var það gert að til­lögu stjórnar félags­ins, þeirra Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birg­is. For­svars­menn Íslands­banka voru afar ósáttir við að ekk­ert sam­ráð var haft við þá áður en til­lagan var lögð fram, enda hafði Einar skömmu áður hætt störfum hjá bank­an­um.

­For­svars­menn Íslands­banka komust á snoðir um þetta og mátu það svo að óheppi­legt væri að Einar héldi áfram að vinna þar, meðal ann­ars vegna þess að hann hafði aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum í bank­anum sem gætu nýst Skelj­ungi.

Sam­kvæmt frétt DV um starfs­lok hans urðu þau vegna trún­að­ar­brests  sem skap­ast hafði milli Ein­ars og for­svars­manna bank­ans. Einar hafði, sam­kvæmt frétt­inni, verið að hugsa um að finna sér aðra vinnu um nokk­urt skeið og var far­inn að ræða við eig­endur Skelj­ungs um að taka við félag­inu á meðan hann starf­aði enn í bank­an­um. For­svars­menn Íslands­banka komust á snoðir um þetta og mátu það svo að óheppi­legt væri að Einar héldi áfram að vinna þar, meðal ann­ars vegna þess að hann hafði aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum í bank­anum sem gætu nýst Skelj­ungi. Ein­ari var því gert að hætta með skömmum fyr­ir­vara.

Bank­inn lét fara fram óháða rann­sókn



Í kjöl­far ráðn­ingar Ein­ars lét Íslands­banki óháðan aðila rann­saka sölu bank­ans á ráð­andi hlut í Skelj­ungi, sem Einar hafði séð um, því bank­inn vildi ganga úr skugga um að eðli­lega hefði verið staðið að söl­unni. Mikið var rætt um málið í stjórn Íslands­banka á þessum tíma og ljóst var að afstaða sumra stjórn­ar­manna var sú að BG Partners hefði fengið að kaupa gott rekstr­ar­fé­lag fyrir alltof lágt verð og auk þess borgað fyrir það með eignum sem stjórn­ar­menn­irnir töldu full­víst að væru minna virði en upp­haf­lega var af lát­ið.

Ráðn­ing Ein­ars til Skelj­ungs ýtti enn frekar undir þessa skoðun stjórn­ar­mann­anna. Eitt af því sem hinn óháði aðili var lát­inn rann­saka var hvort eðli­legt hefði verið að taka við greiðslu fyrir Skelj­ung í formi þeirra fast­eigna sem not­aðar voru til að greiða fyrir hlutinn.

Ráðn­ing Ein­ars til Skelj­ungs ýtti enn frekar undir þessa skoðun stjórn­ar­mann­anna. Eitt af því sem hinn óháði aðili var lát­inn rann­saka var hvort eðli­legt hefði verið að taka við greiðslu fyrir Skelj­ung í formi þeirra fast­eigna sem not­aðar voru til að greiða fyrir hlut­inn. Þessi rann­sókn virð­ist ekki hafa leitt neitt óeðli­legt í ljós. Bank­inn greip að minnsta kosti ekki til neinna aðgerða gegn nýjum eig­endum Skelj­ungs né Ein­ari sjálf­um. Rann­sóknin hefur hins vegar aldrei verið gerð opin­ber.

Þrjú til­boð í hlut­inn



Eftir að lægja tók var eft­ir­stand­andi eign­ar­hlutur Íslands­banka í Skelj­ungi síðan settur í form­legt sölu­ferli í nóv­em­ber 2009. Ljóst var að það ferli yrði erfitt, enda um minni­hluta­eign að ræða. BG Partners myndi alltaf ráða Skelj­ungi þótt ein­hverjir alls óskyldir fjár­festar kæmu að félag­inu.

Til­boð þeirra Nönnu, Guð­mundar og Birgis reynd­ist á end­anum hag­stæð­ast og var því tek­ið. Þau greiddu mun lægra verð fyrir en þegar þau keyptu upp­runa­lega hlutinn.

Þrátt fyrir það sýndu um 20 fjár­festar hlutnum áhuga í fyrstu og þrjú til­boð bár­ust í hann að lok­um: Frá sænska fyr­ir­tæk­inu Atl­antic Tank Stora­ge, félagi í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dótt­ur, eig­anda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum og að lokum frá meiri­hluta­eig­end­unum í félag­inu, sem áttu for­kaups­rétt sam­kvæmt fyrri kaup­samn­ingi. Til­boð þeirra Nönnu, Guð­mundar og Birgis reynd­ist á end­anum hag­stæð­ast og var því tek­ið. Þau greiddu mun lægra verð fyrir en þegar þau keyptu upp­runa­lega hlut­inn.

Birgir seldi sinn hlut í Skelj­ungi árið 2011. Hann er í dag aðal­eig­andi Dom­in­o´s Pizza á Íslandi. Svan­hildur Nanna og Guð­mundur áttu eftir það um 92 pró­senta hlut í Skelj­ungi.

Allt gengur upp



Á síð­ustu árum virð­ist allt hafa gengið upp hjá Skelj­ungi. Félagið hagn­að­ist um tæpan 1,5 millj­arð króna á árunum 2010 og 2011. Í febr­úar 2012 end­ur­fjár­magn­aði Arion banki allar skuldir móð­ur­fé­lags Skelj­ungs sem greiddi með því upp allar skuldir sínar við Íslands­banka. Þar með var slitið á tengslin við for­tíð­ina. Heild­ar­skuldir voru enn háar, um 10,6 millj­arðar króna í lok árs 2011, en eig­in­fjár­staðan var jákvæð um 3,7 millj­arða króna.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu vegna þess­arar afkomu sagði að mark­miðið með þessum við­skiptum hefði verið að stuðla „að vexti félags­ins, auka verð­gildi þess og jafn­framt að gera það að áhuga­verð­ari fjár­fest­ing­ar­kost­i". Þar sagði enn­fremur að „mikil umbreyt­ing [hefði] átt sér stað á rekstri og efna­hag Skelj­ungs á und­an­förnum árum […] Nettó vaxta­ber­andi skuldir þess eru kr. 4.882 millj. og hafa lækkað um kr. 6.980 millj. síðan núver­andi eig­endur komu að rekstr­inum haustið 2008".

Skýr­ingar á þess­ari lækkun á skuldum voru nokkr­ar. Sú sem mestu skipti var svokölluð höf­uð­stólsleið­rétt­ing á skuldum sem Íslands­banki bauð fyr­ir­tækjum upp á. Við hana voru erlend lán Skelj­ungs færð yfir í krón­ur. Í öðru lagi hafði hagn­aður félags­ins verið ágætur auk þess sem það seldi höf­uð­stöðvar sínar árið 2011. Það gerði Skelj­ungi kleift að greiða hraðar niður skuld­ir.

Eign­ast 66 pró­sent í P/F Magn



Í frétt Morg­un­blaðs­ins í morgun kemur fram að Svan­hildur og Guð­mund­ur, í gengum eign­ar­halds­fé­lagið Heddu, hafi keypt fær­eyska félagið P/F Magn af þrota­búi Fons vorið 2009 og að kaup­verðið hafi ein­ungis verið á þriðja hund­rað millj­ónir króna. Sú tala þykir mjög lág því á  síð­asta ári, 2013, var velta félags­ins 17 millj­arðar króna og hagn­aður þess um 440 millj­ónir króna.

Morg­un­blaðið segir að á árinu 2011 hafi Halla Sig­rún Hjart­ar­dótt­ir, Einar Örn Ólafs­son og Kári Þór Guð­jóns­son, sem öllu unnu í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitn­is/Ís­lands­banka þegar Guð­mundur og Nanna keyptu Skelj­ung, eign­ast 66 pró­sent hlut í Heddu, sem á þeim tíma átti P/F Magn að öllu leyti.  Hvert og eitt þeirra átti eftir þetta 22 pró­sent hlut í Heddu.

Halla Sigrún Hjaltadóttir, stjórnarformaður FME og fjárfestir. Halla Sig­rún Hjalta­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður FME og fjár­fest­ir.

Í mars 2012, mán­uði eftir að Skelj­ungur var end­ur­fjár­magn­að­ur, var Skelj­ungur lát­inn kaupa 34 pró­sent hlut í P/F Magn af Heddu, félagi þeirra Svan­hildar og Guð­mund­ar. Í aðdrag­anda kaupanna var hlutafé Skelj­ungs aukið um 447 millj­ónir króna á geng­inu þrjár krónur á hlut. Sam­kvæmt því var kaup­verðið á hlutnum í fær­eyska félag­inu í kringum 1,3 millj­arðar króna. Kaup­verðið var greitt með nýju hlutafé í Skelj­ungi, og eftir við­skiptin átti Hedda 25 pró­sent í Skelj­ungi auk 66 pró­sent hlutar í P/F Magn. Morg­un­blaðið segir hins vegar að fjórð­ungs­hlutur Heddu í Skelj­ungi hafi áfram verið einka­eign Guð­mundar og Svan­hildar Nönnu. P/F Magn hafi Skelj­ungs­hjónin átt ásamt þre­menn­ing­unum Höllu Sig­rúnu, Ein­ari og Kára.

Félögin seld á átta millj­arða



Í árs­reikn­ingi fyrir árið 2011 hjá einu þeirra félaga sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur áttu og hélt á hlut í Skelj­ungi kom fram að heild­ar­virði Skelj­ungs hefði verið 6,9 millj­arðar króna í lok þess árs. Það byggði á mati sem Straumur fjár­fest­inga­banki hafði unnið fyrir félagið og var unnið út frá núvirtu sjóð­streymi þess. Miðað við það hafði virði Skelj­ungs, sem keypt var af Íslands­banka á minna en þrjá millj­arða króna, auk­ist mikið á árunum eftir banka­hrun. Á sama tíma er ljóst að Íslands­banki hafði tapað stór­kost­lega á félag­inu, bæði vegna 8,7 millj­arða króna sölu­trygg­ing­ar­innar sem fyr­ir­renn­ari bank­ans veitti Pálma Har­alds­syni og vegna afskrifta á skuldum sem fylgdu hinni svoköll­uðu höf­uð­stólsleið­rétt­ingu sem félagið fékk hjá bank­an­um.

Árið 2013 var svo greint frá því að Svan­hildur Nanna og Guð­mundur hefðu ákveðið að selja allan hlut sinn í olíu­fé­lag­inu Skelj­ungi og dótt­ur­fé­lag­inu P/F Magn. SÍA II, sjóður sem rek­inn er af sjóðs­stýr­inga­fé­lag­inu Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion banka, leiddi kaup­in. Morg­un­blaðið segir að kaup­verðið fyrir Skelj­ung hafi verið yfir fjórir millj­arðar króna. Auk þess hafi 3,95 millj­arðar króna verið greiddir fyrir fær­eyska félag­ið. Sam­tals var því greitt um átta millj­arðar króna fyrir félögin tvö.

Neit­aði að eiga í Skelj­ungi eða tengdum félögum



Halla Sig­rún var skipuð stjórn­ar­for­maður FME í des­em­ber í fyrra af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra. Hún hafði áður starfað hjá Straumi í tvö ár en starfs­lok hennar þar bar skyndi­lega að. Full­yrt var í fjöl­miðlum að starfs­lokin hefðu verið til­komin vegna þess að upp komst um fjár­fest­ingar hennar í Skelj­ungi og P/F Magn. Halla neit­aði því í sam­tali við DV og sagð­ist aðspurð að hún ætti ekk­ert í Skelj­ungi eða félögum sem tengj­ast olíu­fé­lag­inu. „Ég vil ekki tjá mig um fjár­fest­ingar mínar í fjöl­miðlum […] Ég hef ekki átt nein við­skipti við Skelj­ung umfram það að kaupa bens­ín.“ Hún neitar því að komið hafi upp trún­að­ar­brestur á milli hennar og Straums áður en hún lét af störfum hjá bank­an­um. „Nei, alls ekki.“ Halla Sig­rún seg­ist kann­ast við þessa „leið­in­legu kjafta­sögu“ en segir að hún vilji ekki ræða málið í fjöl­miðl­um.

Halla Sigrún Hjaltadóttir var skipuð stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins í lok árs 2013. Um svipað leyti fór fram sala á Skeljungi og P/F Magn. Halla Sig­rún Hjalta­dóttir var skipuð stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í lok árs 2013. Um svipað leyti fór fram sala á Skelj­ungi og P/F Magn.

Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að Halla Sig­rún hefði hagn­ast um lið­lega 830 millj­ónir króna þegar gengið var frá söl­unni á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magn í lok árs 2013. Sam­kvæmt því hefur Halla Sig­rún því átt tölu­verð við­skipti við Skelj­ung umfram það að kaupa bens­ín.

Frétta­skýr­ingin byggir að hluta til á kafla úr bók­inni „Ís­land ehf – auð­menn og áhrif eftir hrun“, eftir höf­und frétta­skýr­ing­ar­innar og Magnús Hall­dórs­son.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None