Skýrsla Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka „á lokametrunum“

Ríkisendurskoðun er að klára að skrifa skýrslu sína um sölu á 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka til 207 fjárfesta í lokuðu útboði með afslætti. Þegar því er lokið á eftir að rýna hana og senda í umsagnarferli. Upphaflega átti að skila skýrslunni í júní.

Höfuðstöðvar Íslandsbanka
Höfuðstöðvar Íslandsbanka
Auglýsing

Skrif skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um stjórn­sýslu­út­tekt sem emb­ættið hefur fram­kvæmt á sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum er nú á loka­metr­un­um. Þetta stað­festir Guð­mundur Björg­vin Helga­son rík­is­end­ur­skoð­andi í sam­tali við Kjarn­ann. 

Hann segir að þegar búið sé að skrifa skýrsl­una fari hún í rýni og umsagn­ar­ferli. „Hún verður ekki send for­seta Alþingis fyrr en að því loknu. Ég vil ekki nefna ein­hverja sér­staka dag­setn­ingu í mán­uð­inum í því sam­bandi; eins og sum­arið hefur sýnt er þetta ýmsum breytum háð.“

Þing­störf hefj­ast að nýju 13. sept­em­ber næst­kom­andi, eða eftir viku.

Því er ljóst að ekki mun þurfa að kalla þing sér­stak­lega saman úr sum­ar­fríi til að ræða skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar eins og stefnt hafði verið að. Skýrslan verður ekki afhent for­seta Alþingis áður en þing verður sett. 

Nið­­ur­­staða átti að liggja fyrir í júní

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann bað for­m­­­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun sam­­­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­ferlið var harð­­lega gagn­rýnt víða í sam­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­ast um hvort fram­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­laga­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­skipta­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­ar.

Auglýsing
Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­­­inni.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­­­kvæmd úttekt­­­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­­­ur­­­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­­­greindra laga er rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­andi sjálf­­­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­­­kvæmt lög­­­­­un­­­­­um. Stefnt er að því að nið­­­­­ur­­­­­staða úttekt­­­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­­­í­mán­uði 2022.“

Júní varð júlí sem varð ágúst sem varð sept­em­ber

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­­­ar­­­­son­­­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­­­neyt­is­­­­stjóri í nýju við­­­­skipta- og menn­ing­­­­ar­ráðu­­­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­­­lok. 

Því var sú staða uppi að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun var falið að ráð­­­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­­­fé­lags­­­­máli síð­­­­­­­ari ára, þar sem 88,4 pró­­­­sent þjóð­­­­ar­innar telja sam­­­­kvæmt könnun Gallup að óeðli­­­­legir við­­­­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­­­­sent þjóð­­­­ar­innar er óánægt með fram­­­­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda. 

Guð­­­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­­­ist eftir emb­ætt­in­u. 

Guðmundur Björgvin Helgason Mynd: Ríkisendurskoðun

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­­­ingu rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­­­­­banka­­­­söl­una til Alþingis í síð­­­­­­­ustu viku jún­­­í­mán­að­­­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­and­i. 

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­­­ast­lið­inn var það gert til að þing­­­menn gætu verið í sum­­­­­ar­fríi til 13. sept­­­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­­­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­­­son, bað þing­­­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­­­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka. 

Skýrslu­skilin frest­uð­ust þó fljótt. Þegar fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um stöðu mála seinni hluta jún­í­mán­aðar feng­ust þau svör að búist væri við því að skýrslan yrði til­­­búin fyrir lok júlí­mán­að­­ar, fyrir versl­un­­ar­­manna­helg­i. 

Þegar leið að versl­un­­ar­­manna­helgi spurð­ist Kjarn­inn fyrir um afdrif skýrsl­unnar og fékk þá þau svör að hún yrði til­­­búin fyrri hluta ágúst­mán­að­­ar. 

Seint í ágúst sagði Birgir Ármanns­­son, for­­seti Alþing­is, svo við RÚV að hann bygg­ist við skýrsl­una um kom­andi mán­að­ar­mót. Skömmu síðar var greint frá því að skýrslan myndi birt­ast upp úr mán­að­ar­mót­unum ágúst/sept­em­ber. Nú er staðan sú að henni verður skilað til for­seta Alþingis ein­hvern tím­ann í sept­em­ber.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks vildu úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­­­sonar að fela Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun að gera úttekt á banka­­­söl­unni var harð­­­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­þing­­­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­­­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i. Spil­aði þar meðal ann­­ars inn í að faðir Bjarna, Bene­dikt Sveins­­son, var á meðal þeirra 207 fjár­­­festa sem fengu að kaupa í Íslands­­­banka.

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­­­sent lands­­­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd en 26,4 pró­­­­sent taldi nægj­an­­­­legt að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­­­endur Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­unar nægði til. Tæp­­­­lega þriðj­ungur kjós­­­­enda hinna stjórn­­­­­­­ar­­­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­­­endur stjórn­­­­­­­ar­and­­­­stöð­u­­­­flokka voru nær allir á því að rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd sé nauð­­­­syn­­­­leg.

Hlut­­ur­inn hefur hækkað um tæpa sex millj­­arða

Sá hópur fjár­­­festa sem var val­inn til að taka þátt í lok­aða útboð­inu á 22,5 pró­­sent hlut íslenska rík­­is­ins í Íslands­­­banka borg­aði 117 krónur fyrir hvern hlut. Heild­­ar­­upp­­hæðin var 52,65 millj­­arðar króna. Það var rúm­­­lega fjögur pró­­­sent undir skráðu gengi bank­ans á þeim tíma og afslátt­­­ur­inn rök­studdur með því að það væri alvana­­­legt alþjóð­­­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­­­­­boðs­­­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt. 

Auglýsing
Við lokun mark­aða í gær var gengi bréfa í Íslands­­­banka 129,8 krón­­ur, eða 10,9 pró­­sent yfir því verði sem hóp­­ur­inn fékk að kaupa á í mars. Virði þess hlutar sem var seldur er nú því 58,4 millj­­arðar króna, eða um 5,8 millj­­örðum krónum meiri en það var í mar­s. 

Ljóst er að hluti þeirra sem tóku þátt í útboð­inu hafa þegar selt hlut­ina sína með hagn­aði. Nokkrum vikum eftir útboðið lá fyrir að að minnsta kosti 34 fjár­­­festar hefði selt og að nöfn 60 fjár­­­festa birt­ust ekki á hlut­hafa­­skrá af ýmsum ástæð­u­m. 

Hlut­höfum hefur fækkað um 40 pró­­sent

Ríkið hóf að selja hluti í Íslands­­­banka í fyrra, þegar 35 pró­­sent hlutur var seld­­ur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­­anum 24 þús­und tals­ins. Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­­geng­ið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­­skipta hækk­­aði verðið enda um 20 pró­­sent og í dag er það 68 pró­­sent hærra en það var í útboð­inu.

Þegar Íslands­­­­­banki birti upp­­­­­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í lok síð­­asta mán­aðar kom fram að hlut­hafar í bank­­­anum séu nú 14.300 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um 9.700 frá því í júní í fyrra, eða um 40 pró­­­sent. ­Kaup­endur af þorra þeirra bréfa sem seld hafa verið eru íslenskir líf­eyr­is­­­sjóð­ir, í eigu íslensks almenn­ings, sem eiga að minnsta kosti sam­an­lagt um 28 pró­­­sent hlut í bank­an­­­um.

Bjarni rólegur

Bjarni Bene­dikts­­son ræddi stórn­sýslu­út­tekt Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar í við­tali við Dag­­mál á mbl.is í síð­asta mán­uði. Þar sagð­ist hann bíða rólegur eftir skýrsl­unni. „Það skiptir mig í sjálfu sér engu máli hvort hún komi um miðjan mán­uð­inn, í lok mán­aðar eða í byrjun sept­­­em­ber. Umræðan fer bara fram þegar það ger­ist.“

Hann hafi hugsað mikið um fram­­­kvæmd­ina á banka­­­söl­unni frá því að þingið lauk störfum og ekki séð margt í henni sem ráðu­­­neyti hans bar ábyrgð á sem þau hefðu viljað gera öðru­­­vísi. „„Við höfum bent á nokkra fram­­­kvæmd­­­ar­­­lega þætti sem eflaust koma fram í skýrsl­unni. En við verðum að sjá hver megin nið­­­ur­­­staðan verður þar.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni sagði í við­tal­inu við Dag­­­mál að hann yrði áfram sem áður tals­­­maður þess að ríkið dragi úr eign­­­ar­að­ild sinni í Íslands­­­­­banka, þegar mark­aðs­að­­­stæður væru góðar og umræðum og upp­­­­­gjöri við skýrslu Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar væri lok­ið, en ríkið á enn 42,5 pró­­sent hlut í bank­an­­um. „En mínar vænt­ingar standa til þess að við getum síðan í fram­hald­inu haldið áfram að selja ríkið úr Íslands­­­­­banka þar sem við erum orðin minn­i­hluta­eig­andi. Og mér finnst nokkuð ljóst að við munum fara leið mark­að­­­ar­ins. Það var kannski helst það sem var gagn­rýnt síð­­­­­ast. Að það hefði ekki verið opið fyrir alla að taka þátt.“

Helst myndi hann ekki ekki bara vilja losa ríkið úr eign­­­ar­hluta í Íslands­­­­­banka heldur líka selja hlut í Lands­­­bank­­­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut. „Þó ekki væri nema að tryggja höf­uð­­­stöðvar kerf­is­lega mik­il­vægs banka á Ísland­i.“

Ríkið á sem stendur 98,2 pró­­­sent hlut í Lands­­­bank­an­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar