Telur gott að virkir eigendur komi að íslenskum bönkum

Lykilmaður í framkvæmdahóp um losun hafta segir að þeir sem hafa keypt stóran hlut í Arion banka geti vel verið þeir eigendur sem þurfi á íslenskum banka. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur aðkomu Goldman Sachs að kaupunum óskýra.

Sigurður Hannesson.
Sigurður Hannesson.
Auglýsing

Sig­urður Hann­es­son, sem sat í fram­kvæmda­hópi síð­ustu rík­is­stjórnar um losun hafta, segir að það sé mjög gott að virkir hlut­hafar komi að íslenskum bönk­um, sem hafi verið mun­að­ar­lausir frá stofn­un. Það þurfi að hag­ræða í bönk­unum sem væru allt of stórir og með allt of mikið eigið fé. Aðspurður taldi Sig­urður að þeir aðilar sem keyptu hlut í Arion banka um síð­ustu helgi, þrir vog­un­ar­sjóðir og Gold­man Sachs, gætu vel verið þessir eig­end­ur. Það þurfi þó að koma fram frek­ari upp­lýs­ingar um fyr­ir­ætl­anir þeirra.

Sig­urður var á meðal gesta á vett­vangi dags­ins í Silfr­inu í dag. Hann var einn helsti ráð­gjafi Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í efna­hags­málum á síð­asta kjör­tíma­bili og gegndi mik­il­vægum trún­að­ar­stöðum í lyk­il­málum á borð við fram­kvæmd Leið­rétt­ing­ar­innar og losun hafta. Sig­mundur Davíð hefur gagn­rýnt harð­lega að þrír vog­un­ar­sjóðir og Gold­man Sachs hafi keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka og eigi kaup­rétt að 21,9 pró­sent hlut í við­bót af sjálfum sér, en sömu aðilar eiga 66 pró­sent hlut í Kaup­þingi, sem var selj­andi hlut­ar­ins.

Auglýsing

Mik­il­vægt að byggja upp horfið traust

Í máli Sig­urðar kom fram að það hefði ekki tek­ist að byggja upp traust á kerf­inu að nýju eftir hrun­ið, hvorki gagn­vart bönkum né öðrum stofn­un­um. Í könnun sem Gallup gerði og birti nið­ur­stöður úr í lok febr­úar nýtur banka­kerfið minnst trausts allra stofn­ana sam­fé­lags­ins sem spurt var um. Ein­ungis 14 pró­sent sögð­ust treysta því. Næst minnst traust ber almenn­ingur til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þeirrar stofn­unar sem mun ákveða hverjir fá að eiga íslenska banka og hverjir ekki. Ein­ungis 19 pró­sent lands­manna treysta því.

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar, sagð­ist ánægð með að salan hefði átt sér stað, enda mun sölu­and­virðið renna í rík­is­sjóð. Hún tók undir að það sé mik­il­vægt að byggja upp traust og að fram þurfi að koma hverjir séu end­an­legir eig­endur og stjórn­endur þeirra aðila sem keyptu hlut­inn í Arion banka síð­asta sunnu­dag. Þá sé ekki æski­legt, líkt og fram hefur kom­ið, að um sé að ræða aðila sem eru í eigu félaga skráðum á stöðum eins og Tortóla eða öðrum aflands­svæð­um.

Aðkoma Gold­man Sachs óskýr

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði að það þurfi að nálg­ast upp­lýs­ingar um hverjir séu eig­endur sjóð­anna og hverjar fyr­ir­ætl­anir þeirra séu. Bankar á Íslandi þurfi að vera starf­ræktir þannig að þeir þjóni við­skipta­vinum sínum en mega ekki verða drag­bítar á lífs­kjör­um. Vil­hjálmur segir að eftir 40 ára athugun sína á áhuga erlendra banka á banka­starf­semi á Íslandi þá hafi engir þeirra áhuga á því. Þeir velji sér mun frekar þá við­skipta­vini hér­lendis sem þeir vilji. Þess vegna sé aðkoma Gold­man Sachs að kaup­unum á Arion banka mjög óskýr í hans huga.

For­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Logi Ein­ars­son, sagði að þær upp­lýs­ingar sem Fjár­mála­eft­ir­litið hafi veitt efna­hags- og við­skipta­nefnd á föstu­dag hafi stað­fest það sem margir ótt­ast. Vog­un­ar­sjóðir hafi það ekki í fartesk­inu að hugsa með sam­fé­lags­legum hætti heldur muni þeir reyna að græða eins mikið og þeir geta á sem skemmstum tíma. Það sé í eðli þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None