Listamenn skreyta veggi í Reykjavík fyrir Iceland Airwaves
Miðborgin er listagallerí í tenglsum við Iceland Airwaves. Víða um miðbæ Reykjavíkur má sjá listaverk örvuð með tónlist þeirra sem koma fram á hátíðinni.
Vegfarendur í miðborg Reykjavíkur hafa tekið eftir því að búið er að skreyta heilu byggingarnar með risastórum vegglistaverkum. Nokkrir listamenn fengu frelsi til að sköpunar í verkefni sem er á vegum Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar sem fer fram í Reykjavík um helgina og Urban National Berlin.
Yfirskrift verkefnisins er Veggjaskáldskapur 2015 (e. Wall Poetry) þar sem listamenn reyna að framkalla sjónræn áhrif tónlistarinnar sem þeir hlusta á á meðan þeir mála, spreyja eða teikna. Myndirnar hafa meðal annars verið birtar á Facebook-síðu Reykjavíkurborgar og verið deilt þaðan meira en þúsund sinnum. Reykjavík er fyrsti vettvangur þessa verkefnis.
Markmiði verkefnisins er lýst þannig að málarinn á „að taka hið ósýnilega skapandi ferli þegar hann hlustar á tónlist meðan hann málar málverk“. Einnig er hægt að snúa ferlinu við og ímynda sér tónlistarmann sem sér fyrir sér ákveðið málverk sem tengist tilfinningunni sem fylgir laginu og textanum.
Í Reykjavík hefur listamönnum verið úthlutað veggjum í miðborginni sem þeir fengu frelsi til að skreyta að vild. Útkomuna má sjá á myndunum hér að neðan sem ljósmyndarinn Nika Kramer tók.
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Li-Hill-Gamla-bio-1-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Telmomiel-Holmaslod-1-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Telmomiel-Holmaslod-4-1024x68.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC6869-1024x681.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Tankpetrol-Grandi-4-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Elle-Laugavegur-3-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Elle-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9203-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9233-1024x681.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9217-1-1024x681.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
Hverfisgata - Samhjálparskotið
eftir Ernest Zacharevic + Dikta
undir áhrifum af laginu We'll meet again
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/Ernest-Zacharevic-Hverfisgata-1-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DEIHXLF-Vesturgata-1-1024x681.max-1048x675.jpg)
Laugavegur/Klapparstígur
eftir Caratoes's + Ylja
undir áhrifum af laginu Óður til móður
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9374-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9021-1024x681.max-1048x675.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC6520-1024x681.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
![](http://kjarninn.overcastcdn.com/images/DSC9182-1024x681.2e16d0ba.fill-721x405-c100.jpg)
Listamennirnir sem tóku þátt í verkefninu eru:
DEIH XLF + VÖK
EVOCA 1 + SAUN & STARR
ERNEST ZACHAREVIC + DIKTA
LI HILL + JOHN GRANT
ELLE + ÚLFUR ÚLFUR
CARATOES S + YLJA
TANKPETROL + GUSGUS
TELMOMIEL + MERCURY REV
UGLY BROTHERS + GÍSLI PÁLMI
DFACE + AGENT FRESCO AND LAXDÆLA
Hægt er að skoða allar myndirnar á vef Iceland Airwaves.
Myndirnar eru birtar með góðfúslegu leyfi Iceland Airwaves.