Kjarninn og Stundin sameinast
Nýr óháður fjölmiðill í dreifðu eignarhaldi með nýju nafni mun verða til á nýju ári. Hann verður byggður á ráðandi hugmyndafræði Kjarnans og Stundarinnar. Áhersla verður lögð á rannsóknarblaðamennsku, greiningar og daglegar fréttir frá sjónarhóli almennings fremur en sérhagsmuna. Ritstjórar verða Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson.
Aðstandendur Kjarnans og Stundarinnar hafa náð samstöðu um að sameina fjölmiðlana tvo. Útgáfufélög þeirra munu renna saman frá og með komandi áramótum og nýr miðill, með nýju nafni, mun verða til. Kjarnastarfsemi hans verður dagleg fréttasíða og prentútgáfa sem mun koma út tvisvar í mánuði. Fyrirhugað er að fyrsta útgáfa nýja miðilsins verði 13. janúar 2023. Þangað til munu Kjarninn og Stundin halda áfram að starfa í óbreyttu formi og þjónusta lesendur sína.
Eigendahópur sameinaðs útgáfufélags mun telja á fjórða tug einstaklinga, bæði starfsmanna og áhugafólks um fjölmiðlun. Enginn í hluthafahópnum fer með meira en tíu prósent eignarhlut. Stefnt er að því að valddreifing verði innsigluð í samþykktum útgáfufélagsins til framtíðar.
Markmiðið með sameiningunni er að setja saman öflugt íslenskt fjölmiðlafyrirtæki sem stendur að óháðri, vandaðri, gagnrýninni og uppbyggilegri aðhaldsblaðamennsku, býður upp á gott starfsumhverfi og móta fjölmiðil sem getur stækkað, vaxið og dafnað. Byggt verður á ráðandi hugmyndafræði Kjarnans og Stundarinnar um valddreifingu og valdeflingu almennings.
Ritstjórnirnar sameinast
Innan nýja fjölmiðilsins munu ritstjórnir Kjarnans og Stundarinnar sameinast í eina. Sameinuð ritstjórn mun samanstanda af blaðamönnum sem hafa fengið flest blaðamannaverðlaun einkarekinna miðla frá stofnun. Áhersla verður lögð á rannsóknarblaðamennsku, greiningar og daglegar fréttir frá sjónarhóli almennings fremur en sérhagsmuna.
Með stærra fyrirtæki og öflugri ritstjórn verður hægt að styðja enn betur við bakið á dýpri rannsóknarblaðamennsku, greiningu á málefnum líðandi stundar og veita valdhöfum sterkt aðhald. Samhliða stendur til að breikka efnistök, verða enn áhugaverðari og skemmtilegri, og fjölga þeim leiðum sem efni er miðlað ykkar, lesenda okkar.
Ingibjörg og Þórður ritstjórar
Ritstjórar hins sameiginlega nýja miðils verða Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson, sem stýra í dag Stundinni og Kjarnanum. Rannsóknarritstjóri verður Helgi Seljan. Framkvæmdastjóri verður Jón Trausti Reynisson.
Ingibjörg Dögg segir sameininguna tilkomna vegna sameiginlegs tilgangs beggja miðla. „Báðir miðlar eru í dreifðu eignarhaldi, óháðir hagsmunablokkum og hafa lifað eftir ákvörðunum almennings um að styrkja þá eða kaupa áskrift. Eina raunhæfa leiðin til að stunda almennilega rannsóknarblaðamennsku er að starfa á forsendum almennings.“
Þórður Snær segir að stærri miðil sem byggir á aðkomu og stuðningi almennings hafi mikil tækifæri til að vaxa og dafna í íslensku fjölmiðlaumhverfi. „Það er mikil eftirspurn eftir greinandi aðhaldsblaðamennsku sem stendur með almenningi og neytendum. Ég er sannfærður um að saman séum við sterkari en í sitthvoru lagi.“
Sjálfbær rekstur forsendan
Eitt af grunnmarkmiðum nýs fjölmiðils er sjálfbær rekstur til lengri tíma sem stendur undir sjálfstæði ritstjórnar. Reksturinn á þó í samkeppni við stærri fjölmiðla sem hafa fengið viðvarandi taprekstur niðurgreiddan af fjársterkum aðilum, meðal annars eigendum útgerða og kvóta.
Samkeppniseftirlitið hefur bent á að eignarhald stærri einkarekinna fjölmiðla hefur færst á hendur fjársterkra aðila sem standa fyrir tiltekna skilgreinda hagsmuni í íslensku atvinnulífi. Eftirlitið hefur sagt að sú ráðstöfun hafi það meginmarkmið að ljá hagsmunum viðkomandi aðila enn sterkari rödd og vinna þeim þannig frekari framgang.
Atgervisflótti er úr geiranum sem birtist meðal annars í því að starfandi á fjölmiðlum fækkaði um 45 prósent milli 2018 og 2020. Á sama tíma hefur fjöldi þeirra sem vinna við almannatengsl og hagsmunagæslu margfaldast.
Ísland hefur undanfarin ár fallið á lista yfir fjölmiðlafrelsi og situr nú í 15. sæti, en hinar Norðurlandaþjóðirnar skipa efstu sætin.
Aðkoma almennings
Í mótun nýs miðils verður leitað til almennings um hugmyndir, ábendingar og leiðsögn. Styrkjendum Kjarnans býðst að gerast áskrifendur að nýja miðlinum, en þeim býðst einnig að halda áfram óbreyttum stuðningi. Áskrifendur Stundarinnar þurfa ekki að skrá sig sérstaklega til áframhaldandi áskriftar.
Þau sem ekki hafa áskrift fyrir geta forskráð sig fyrir áskrift á slóðinni kjarninn.stundin.is.
Þar verður einnig hægt að fylgjast með nýjum fréttum af þróun nýs miðils.