Núll-stefnan loks frá og COVID-bylgja á uppleið

Eftir að hörðum aðgerðum vegna COVID-19 var loks aflétt í Kína nýverið hóf bylgja smita að rísa. Tugþúsundir gætu látist.

Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí.
Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí.
Auglýsing

Bál­stofur vítt og breitt um Kína eiga orðið í mestu erf­ið­leikum með að anna eft­ir­spurn þar sem líkum nán­ast rignir inn í kjöl­far stórrar bylgju af dauðs­föllum vegna COVID-19. Heil­brigð­is­yf­ir­völd eiga að sama skapi í vand­ræðum með að anna eft­ir­spurn sjúkra. Reynt er að koma fyrir sem flestum sjúkra­rúmum á spít­ölum og setja upp aðstöðu til að taka á móti fólki til grein­ing­ar.

Eftir að hörðum sam­komu­tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veirunnar var aflétt í Kína er COVID-19 að sækja veru­lega í sig veðrið meðal þjóðar sem er lítið bólu­sett, telur 1,4 millj­arða manna í víð­feðmu landi þar sem erfitt getur reynst að veita heil­brigð­is­þjón­ustu. Ástandið virð­ist þó enn sem komið er verst í borg­un­um, m.a. í Pek­ing. Þar anna bál­stofur og lík­hús þó enn eft­ir­spurn en í öðrum borg­um, m.a. Chongqing, þar sem 30 millj­ónir búa, er allt orðið yfir­fullt og ekki hægt að taka við fleiri líkum að svo stöddu.

Auglýsing

Flestir eru á því að skýr­ingin á auknum fjölda and­láta teng­ist COVID-19 en yfir­völd í Kína eru þó ekki á því. Þau segja að á þriðju­dag hafi orðið þrjú stað­fest and­lát vegna sjúk­dóms­ins og að um væri að ræða fyrstu dauðs­föllin vegna hans í fleiri vik­ur.

Raun er það svo að frá því að heims­far­aldur COVID-19 braust út hafa aðeins 5.242 mann­eskjur lát­ist af völdum hans sam­kvæmt opin­berum töl­um. Það er langan veg frá því sem gerst hefur í öðrum ríkjum heims­ins.

Þess vegna efast flestir um að þetta sé rétt og telja að and­látin séu miklu fleiri.

Frá því að núll-­stefnan svo­kall­aða, það er að segja að stefna að engu smiti af kór­ónu­veiru í land­inu með mjög hörðum tak­mörk­un­um, var aflétt nýverið hafa sjúkra­hús yfir­fyllst af fólki og hillur apó­teka standa tóm­ar. Þetta tvennt þykir sterk vís­bend­ing um að eitt­hvað meiri­háttar sé á seyði og flestir benda á kór­ónu­veiruna.

Í frétta­skýr­ingu Al Jazeera um málið er haft eftir sér­fræð­ingum í smit­sjúk­dómum að um 60 pró­sent kín­versku þjóð­ar­innar eigi eftir að sýkj­ast af COVID-19 á næstu mán­uð­um. Þá telja þessir sömu sér­fræð­ingar að um 2 millj­ónir gætu lát­ist.

Auglýsing

Rík­is­rekna dag­blaðið Global Times afneitar ekki smit­bylgj­unni nú en hefur eftir sínum sér­fræð­ingum að um 2,7 millj­ónir Kín­verja gætu þurft á gjör­gæslu­inn­lögn að halda á næstu mán­uð­um. Þess vegna væru sjúkra­hús að efla starf­semi sína, m.a. með því að stækka gjör­gæslu­deild­ir. Í borg­inni Guangzhou á til að mynda að fjölga gjör­gæslu­rýmum úr 455 í 1.385. Þá segir dag­blaðið að búist sé við því að bylgjan nái hámarki snemma í jan­ú­ar.

Einnig hefur blaðið eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að koma eigi fyrir grein­ing­ar­stöðvum víðs vegar í borg­um, m.a. á íþrótta­leik­vöng­um. Í Shang­hai hefur verið komið upp yfir 2.500 básum þar sem fólk getur látið mæla hita og farið í PCR-­próf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent