Fréttaskýring#Stjórnmál#Alþingi
Hvaða reynslu hafa aðstoðarmenn ráðherra?
Mikil umræða hefur spunnist um nýjustu ráðninguna í starf aðstoðarmanns ráðherra. Kjarninn tók saman reynslu þeirra fimmtán einstaklinga sem gegna þessum störfum.
Gauti Geirsson er nýjasti aðstoðarmaður ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Hann var ráðinn í hálft starf í gær. Umræður hafa spunnist upp um ráðninguna, en það er langt frá því í fyrsta skiptið sem það gerist. Fyrir tæpu ári síðan sagði umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, að hann teldi að ráðherrar þyrftu reynda ráðgjafa til að vega upp á móti sínu eigin reynsluleysi. Það væri meðal annars sá lærdómur sem draga mætti af lekamálinu, sem þá var enn í hámæli.
„Þarna kemur til starfa fólk sem hefur ekki það sem ég kalla mikla samfélagsreynslu. Það hefur ekki verulega reynslu af þingstörfum, ekki af þessum samskiptum að koma málum í gegnum stjórnsýsluna, það hefur oft á tíðum ekki mikla reynslu úr atvinnulífinu, það hefur kannski fyrst og fremst reynslu úr pólitískum störfum fyrir stjórnmálaflokkana,“ sagði Tryggvi um ráðherra. Hann sagðist telja að búa þurfi ráðherrum betri aðstöðu til að rækja störf sín, reynda aðstoðarmenn sem gætu veitt hlutlausa ráðgjöf í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.
Kjarninn tók saman reynslu þeirra fimmtán einstaklinga sem gegna starfi aðstoðarmanns ráðherra í ríkisstjórninni. Öll nema eitt eru með háskólagráðu, og meirihluti þeirra hafði starfað fyrir flokk viðkomandi ráðherra áður en þau voru ráðin í störf aðstoðarmanna.
Aðstoðarmenn forsætisráðherra
Jóhannes Þór Skúlason er fæddur árið 1973 og er 43 ára. Hann er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og starfaði sem grunnskólakennari í Seljaskóla þar til hann tók við starfi aðstoðarmanns formanns Framsóknarflokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, árið 2011. Hann var líka um margra ára skeið þjálfari MORFÍS-liða í hjáverkum. Þegar Sigmundur Davíð varð forsætisráðherra í maí 2013 tók Jóhannes við starfi aðstoðarmanns forsætisráðherra. Hann hafði ekki starfað í Framsóknarflokknum fyrir þennan tíma en var mjög virkur í starfi InDefence-hópsins, og bauð sig fram til stjórnlagaþings árið 2010.
Matthías Páll Imsland er fæddur árið 1974 og er 42 ára gamall. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og er með MS-próf frá Háskólanum í Lundi. Hann hefur einnig stundað nám í viðskiptafræði við HÍ og stjórnunarnám við North Park University í Chicago. Matthías hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn í gegnum tíðina. Meðal annars hefur hann verið í miðstjórn og landsstjórn flokksins. Hann starfaði sem rekstrarstjóri þjónustudeildar Símans eftir nám og hefur starfað sem sviðsstjóri fræðslu-, félags- og menningarsviðs á Blönduósi og í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstjóri Iceland Express til ársins 2011 og svo framkvæmdastjóri rekstrarsviðs WOW-air til 2012. Hann vann sem ráðgjafi eftir það og var svo kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar. Eftir það var hann aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra, þangað til nú í ársbyrjun er hann varð aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Aðstoðarmenn fjármálaráðherra
Svanhildur Hólm Valsdóttir er fædd árið 1974 og er 41 árs gömul. Hún er menntaður lögfræðingur og lauk prófi frá Háskóla Íslands árið 2009. Hún starfaði í fjölmiðlum frá 1995 til 2009, sem blaðamaður, útvarpsmaður og síðast í sjónvarpi, bæði á RÚV og Stöð 2. Hún var ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins haustið 2009 og svo aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar haustið 2012. Hún fylgdi Bjarna svo í fjármálaráðuneytið þegar hann varð ráðherra vorið 2013. Hún hafði sinnt félagsstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og var í stjórn og svo annar varaformaður SUS árin 1997 til 2001.
Teitur Björn Einarsson er fæddur árið 1980 og er 35 ára. Hann er lögmaður, útskrifaðist frá Háskóla Íslands 2006 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2007. Hann starfaði hjá LOGOS lögmannsstofu eftir útskrift, var í framkvæmdastjórn og stjórn Eyrarodda 2007 til 2011 og svo lögmaður hjá OPUS lögmönnum frá 2011 og þar til hann var ráðinn í fjármálaráðuneytið sumarið 2014. Teitur hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var varaformaður SUS og hefur setið í ráðum og nefndum flokksins. Hann hefur einnig boðið sig fram í prófkjöri fyrir Alþingiskosningar.
Aðstoðarmenn utanríkisráðherra
Sunna Gunnars Marteinsdóttir er fædd árið 1984 og er 31 ára gömul. Hún er með BA-gráðu í almannatengslum frá Háskólanum í Westminster, og hefur stundað nám í hagnýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands. Áður en hún varð aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í september 2013 var hún skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins frá árinu 2010, og var aðstoðarmaður kosningastjóra flokksins árið 2009. Hún var líka til skamms tíma aðstoðarmaður formanns Framsóknarflokksins. Hún hefur gegnt ýmsum félagsstörfum, og setið í nefndum á vegum Framsóknarflokksins.
Gauti Geirsson er fæddur árið 1993 og er 22 ára gamall. Hann er nemi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hann lærir rekstrarverkfræði. Hann er í hálfu starfi í ráðuneytinu til að byrja með. Gauti hefur starfað sem háseti og vélstjóri á togara og farþegaskipum. Hann var kosningastjóri hjá Framsóknarflokknum á Ísafirði í síðustu kosningum og skipar 15. sætið á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi nú. Hann er einnig formaður Félags ungra framsóknarmanna á norðanverðum Vestfjörðum og ritari Félags ungra framsóknarmanna.
Aðstoðarmenn menntamálaráðherra
Sigríður Hallgrímsdóttir er fædd árið 1971 og er 45 ára. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Áður en hún tók við starfi aðstoðarmanns Illuga Gunnarssonar var hún ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri hjá Sjá, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Creditinfo Group og hjá Industria. Hún hefur einnig setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja. Hún hefur einnig setið í stjórnum félagasamtaka og verið virk í störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.
Jóhannes Stefánsson er fæddur árið 1988 og er 27 ára. Hann er héraðsdómslögmaður, með BA- og meistaragráðu í lögfræði frá HR, sem hann lauk árið 2014. Hann var ráðinn aðstoðarmaður í október síðastliðnum, en þá hafði hann starfað sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu um nokkurt skeið. Hann vann einnig áður sem blaðamaður á Fréttablaðinu og fréttamaður á Stöð 2. Hann hefur líka starfað fyrir sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík, hjá Arion banka og LEX lögmannsstofu.
Jóhannes var formaður Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, frá 2011 til 2013 og sat í aðalstjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna árið 2011 til 2013
Aðstoðarmenn innanríkisráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er fædd árið 1987 og er 28 ára. Hún lauk ML námi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna frá vori 2013 og þar til hún var ráðin aðstoðarmaður Ólafar Nordal innanríkisráðherra rétt fyrir jólin 2014. Hún hefur starfað hjá embætti sýslumanns á Akranesi, hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og hjá Marel. Hún var kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar. Hún hefur verið virk í störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, verið formaður félags ungra sjálfstæðismanna á Akranesi og setið í stjórn SUS.
Kristín Haraldsdóttir er fædd árið 1970 og er 45 ára. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LLM-gráðu í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi. Hún hefur starfað sem fulltrúi á lögmannstofu, var lögfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu í sex ár og síðar lögfræðilegur aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg. Hún hefur verið sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2009 og forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar lagadeildarinnar. Hún hefur einnig setið í stjórnum fyrirtækja og nefndum á vegum ríkisins. Hún var ráðin lögfræðilegur aðstoðarmaður Ólafar Nordal í desember 2014.
Aðstoðarmenn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Benedikt Sigurðsson er fæddur árið 1964 og er 51 ára gamall. Hann er með BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann var ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga í ágúst 2013 en var fyrir það sviðsstjóri samskipta hjá Actavis á Íslandi. Hann var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar frá 2009 til 2011 og 2006 til 2008 var hann fjölmiðlafulltrúi hjá Kaupþingi. Tólf ár þar á undan vann hann sem fréttamaður.
Ágúst Bjarni Garðarsson er fæddur árið 1987 og er 28 ára gamall. Hann er með BA próf í stjórnmálafræði og meistarapróf í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, en því námi lauk hann síðastliðið vor. Ágúst tók við starfi aðstoðarmanns Sigurðar Inga Jóhannssonar í maí síðastliðnum, en áður hafði hann verið ráðinn í tímabundin verkefni hjá utanríkisráðuneytinu.
Hann hefur verið formaður Sambands ungra framsóknarmanna frá því í febrúar 2015, en áður var hann einnig varaformaður félagsins. Hann er einnig oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði.
Aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Ingveldur Sæmundsdóttir er aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra. Hún er fædd árið 1970 og er 45 ára gömul. Hún er með BS-próf frá CBS, viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, og diplómu í alþjóðlegri markaðshagfræði frá Business Academy Copenhagen North. Hún hefur líka stundað nám í stjórnun og stefnumótun í Háskóla Íslands. Hún starfaði sem verslunarstjóri og síðar vörustjóri hjá Pennanum, og sem vörustjóri hjá Hátækni. Hún var svo kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík fyrir síðustu þingkosningar og var svo ráðin aðstoðarmaður þegar ríkisstjórnin var mynduð.
Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir er fædd árið 1981 og er 34 ára gömul. Hún er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, sem hún lauk árið 2012. Hún starfaði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll frá árinu 2007 til haustsins 2012, þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún var svo ráðin aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra í júní 2013.
Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Ingvar Pétur Guðbjörnsson er fæddur árið 1979 og er 36 ára gamall. Hann er búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Hann hefur einnig lagt stund á stjórnmálafræði og sagnfræði í Háskóla Íslands. Áður en hann varð aðstoðarmaður Ragnheiðar Elínar Árnadóttur árið 2013 starfaði hann sem blaðamaður á Morgunblaðinu í átján mánuði. Áður starfaði hann hjá Landsvirkjun, við almannatengsl og kynningarmál, og við skrifstofustörf hjá Sláturhúsinu á Hellu. Hann sat í sveitarstjórn Rangárþings ytra 2002 til 2010 og aftur frá 2011 til 2012. Hann hefur verið mjög virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins, meðal annars í stjórn SUS og í fulltrúa- og kjördæmisráðum.