Velta Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) tæplega þrefaldaðist á árinu 2016, bónusar til leikmanna og þjálfara A-landsliðs karla námu 846 milljónum króna og greiðslur til aðildarfélaga fjórfölduðust. Þetta kemur fram í ársreikningi sambandsins sem birtur var í gær.
Alls námu tekjur sambandsins rúmum þremur milljörðum króna en þær voru um 1,1 milljarður króna árið 2015. Þessi aukna velta skilaði því að rekstrarhagnaður KSÍ var 861 milljón króna á síðasta ári en hann hafði verið 156 milljónir króna árið áður. Þegar búið var að taka tillit til greiðslu til aðildarfélaga KSÍ var hagnaður sambandsins samt sem áður 317 milljónir króna, en hann hafði verið um tíu milljónir króna árið áður. Það þýðir að eignir KSÍ hafa vaxið um 338 milljónir króna á milli ára og standa í rúmum milljarði króna. Óráðstafað eigið fé var 539 milljónir króna um síðustu áramót.
Ástæðan er fyrst þátttaka íslenska karlalandsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi í fyrrasumar og síðan góður árangur liðsins á mótinu. Helsta tekjulind KSÍ eru styrkir frá UEFA og umfang þeirra er beintengd árangri. Þannig hækkuðu styrkir og framlög um tæpa tvo milljarða króna á árinu 2016.
846 milljónir króna í bónus
Þátttökunni fylgdi líka aukin kostnaður. Þannig jókst kostnaður við rekstur landslið úr 448 milljónum króna árið 2015 í um 1,6 milljarð króna í fyrra. Þar munaði mest um A-landsliðin en rekstrarkostnaður þeirra fór úr 287 milljónum króna í 1,4 milljarð króna. Kostnaður vegna reksturs A-landsliðs karla á Evrópumótinu námu um 1,1 milljarði króna. Stóru stærðirnar í þeim kostnaði eru tvær: annars vegar nam flug- og dvalarkostnaður íslenska liðsins um 250 milljónum króna og hins vegar námu greiðslur til leikmanna og þjálfara vegna þátttöku þeirra í mótinu 846 milljónum króna. Til viðbótar námu laun og launatengd gjöld til starfsmanna KSÍ 164 milljónum króna og hækkuðu um 28 milljónir króna milli ára. Þar af fengu Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, og Geir Þorsteinsson, formaður sambandsins, samtals 33,4 milljónir króna.
Þátttakan í Evrópumótinu margfaldaði þau framlög sem aðildarfélög KSÍ fá úr sjóðum sambandsins. Árið 2015 skiptu þau á milli sín 147 milljónum króna en í fyrra nam sú upphæð 561 milljónum króna.
Framlög frá ÍSÍ og getraunum 1,7 prósent af tekjum
KSÍ er langstærsta sérsambandið á Íslandi og tekjur þess meiri en samanlagðar tekjur allra annarra sérsambanda. Líkt og áður sagði skiptir þar mestu máli að KSÍ fær háa styrki frá UEFA og FIFA auk þess sem sjónvarpstekjur þess eru háar. Alls komu níu af hverjum tíu krónum sem skiluðu sér í kassann hjá KSÍ í fyrra úr þessum þremur liðum og þar munaði langmest um 2,2 milljarða króna styrk frá UEFA.
Í ljósi þessarar sterku stöðu hefur verið uppi krafa hjá öðrum sérsamböndum um að KSÍ fari út úr ÍSÍ og leyfi öðrum sérsamböndum sem eiga mun erfiðara með að láta enda ná saman og sækja að njóta þeirra tekna sem til falla vegna styrkja ríkissjóðs og hlutdeildar sérsambanda í getraunartekjum. Á árinu 2016 fékk KSÍ fái 46 milljónir króna framlag frá ÍSÍ og 5,5 milljónir króna vegna íslenskra getrauna. Samanlagt er þessi tala, 51,5 milljónir króna, 1,7 prósent af tekjum KSÍ og ljóst að þær skipta sambandið ekki öllu máli. Þetta er hins vegar fé sem gæti skipt sköpum hjá mörgum minni sérsamböndum.