Laun ráðherra og aðstoðarmanna samtals 636 milljónir á næsta ári
Hækka þarf framlag ríkissjóðs til rekstrar ríkisstjórnar Íslands um 153 milljónir króna vegna fjölgunar aðstoðarmanna hennar. Þeir mega vera 25 alls og er sú heimild nú nánast fullnýtt.
Rekstur ríkisstjórnar Íslands, sem í felast launagreiðslur ráðherra og aðstoðarmanna þeirra, er áætlaður 636 milljónir króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í morgun. Það er 38 prósent aukning á milli ára en samkvæmt fjárlögum ársins 2018 var áætlað að kostnaður við rekstur hennar næmi 461 milljón króna á árinu 2018. Þar munar mestu um 153 milljóna króna hækkun vegna launa aðstoðarmanna ráðherra, sem hefur fjölgað mikið.
Alls má ríkisstjórnin ráða 25 aðstoðarmenn og eru heimildir laga til slíkra ráðninga nú nánast fullnýttar. Allir ráðherrar eru til að mynda með tvo aðstoðarmenn en auk þeirra hefur ríkisstjórnin ráðið tvo af þeim þremur aðstoðarmönnum sem hún má ráða samkvæmt lögum. Annar þeirra er Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sem hefur starfsaðstöðu í forsætisráðuneytinu. Hinn er Unnur Brá Konráðsdóttir, sem var ráðinn í stöðu aðstoðarmanns til að sinna starfi sem verkefnisstjóri við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Unnur starfar í umboði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Heimild til að fjölga
Lögum um Stjórnarráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heimild til að fjölga aðstoðarmönnum ráðherra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heimild fyrir ríkisstjórnina að ráða þrjá aðstoðarmenn til viðbótar ef þörf krefur. Í lögunum segir að „meginhlutverk aðstoðarmanns ráðherra er að vinna að stefnumótun á málefnasviði ráðuneytis undir yfirstjórn ráðherra og í samvinnu við ráðuneytisstjóra.“ Ekki þarf að auglýsa aðstoðarmannastöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráðherra fyrir sig, enda oftast um að ræða nánustu samstarfsmenn ráðherra á meðan að hann gegnir embætti.
Skömmu eftir að lögunum var breytt var ráðherrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.
Síðan hefur ráðherrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri ríkisstjórninni og í dag eru þeir ellefu. Það þýðir að fjöldi leyfilegra aðstoðarmanna hefur líka aukist.
xxxxxxxxx
Laun og starfskjör aðstoðarmanna ráðherra miðast við kjör skrifstofustjóra í ráðuneytum samkvæmt ákvörðunum kjararáðs.
Aðstoðarmennirnir hafa fengið duglega launahækkun á undanförnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrifstofustjóra í ráðuneytum hækkuð um allt að 35 prósent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoðarmanna um 1,2 milljónir króna á mánuði.
Ráðherrar hafa líka fengið umtalsverða launahækkun á undanförnum árum. Í nóvember 2015 hækkaði Kjararáð til að mynda laun ráðherra um 9,3 prósent. Árið síðar, á kjördag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 prósent. Eftir þá hækkun eru laun forsætisráðherra 2.021.825 krónur á mánuði og laun annarra ráðherra 1.826.273 krónur á mánuði.
Kostnaðurinn aldrei hærri
Kostnaður við rekstur ríkisstjórnarinnar hefur aldrei verið hærri en í ár, og hann á að hækka umtalsvert á næsta ári líka.
Samkvæmt samþykktum fjárlögum fyrir árið 2018 átti kostnaður við rekstur ríkisstjórnarinnar að vera 461 milljón króna. Ljóst er að sú upphæð hefur ekki dugað til að greiða laun allra ráðherra og aðstoðarmanna og því má búast við að það bil verði brúað á komandi fjáraukalögum.
Á næsta ári mun kostnaðurinn svo enn aukast og verða 636 milljónir króna. Í krónum talið hefur aukningin numið 383 milljónum króna frá árinu 2011 og út næsta ár, en þá á eftir að gera ráð fyrir verðbólgu.